Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

ERU ENGIN TAKMÖRK FYRIR ÞVÍ HVAÐ "SUMIR" HALDA AÐ ÞEIR GETI BOÐIÐ ÞJÓÐINNI UPP Á?????

Þessi maður hefur gert þvílíkt og annað eins af sér og bara til að draga fram nýjustu "afrekin" hans þá hraktist hann úr Fjármálráðuneytinu, vegna sölunnar á Íslandsbanka og héldu menn að þar með ætlaði hann að "axla ábyrgð" á verkum sínum. en nei hann stökk yfir í Utanríkisráðuneytið (ekki er sjáanlegt að hann hafi náð að setja mark sitt á það, sennilega vegna þess að tíminn þar var mjög stuttur).  En svo "verðlaunar" hann sjálfan sig með því að setja sjálfan sig með því að setja sig í Forsætisráðuneytið.  ER ÞETTA EKKI AÐ SENDA ÞJÓÐINNI FINGURINN??????????


mbl.is Bjarni verði forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SUMIR KUNNA EKKI AÐ SKAMMAST SÍN........

Hvað hefur Íslenska þjóðin eiginleg gert af sér, til að verðskulda þennan ófögnuð og hvernig er það er hún ennþá sendiherra WHO og erindreki World Economic Forum og þiggur hún laun frá þessum stofnunum??????


mbl.is Katrín býður sig fram til forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AUÐvITAÐ ÞARF FORSÆTISRÁÐHERRA AÐ SEGJA AF SÉR FARI HÚN Í FORSETAFRAMBOÐ.....

Þó svo að það standi hvergi í lögum, það þarf nú varla neinn speking til að sjá það.  Það getur hver maður séð það sjálfur að það hlýtur að vera það mikill "erill" í kringum framboðið að það getur ekki verið að það sé nokkur tími "afgangs" til að sinna Forsætisráðherraembættinu en aftur á móti ef svo er þá þarf virkilega að fara að endurskoða launamál Forsætisráðherra því ef það er bara hlutastarf þá hlýtur það að ver allt of hátt launað?  Svo er náttúrulega að það myndi skapa Forsætisráðherra óðægilega mikið forskot á aðra frambjóðendur hvað varðar forgang að fjölmiðlum og annars konar kynningu.  ÞÓ EKKI VÆRI NEMA AF SIÐFERÐILEGUM ÁSTÆÐUM VERÐUR FORSÆTISRÁÐHERRA AÐ SEGJA AF SÉR EF HÚN FER Í FORSETAFRAMBOÐ.......


mbl.is Gæti haldið áfram þrátt fyrir framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ÞETTA FER NÚ AÐ VERÐA SVOLÍTIÐ ÞREYTANDI"................

Þessar forsetakosningar nú verið GERÐAR að algjörum FARSA með því að það er hvaða "sótraftur", sem er dreginn fram í forsetaframboð og svo á að gera enn  meiri FARSA úr þessu með því að draga forsætisráðherra út í dæmið og það er látið í veðri vaka að framtíð þjóðfélagsins standi og falli með ákvörðun hennar.  ER ÖRVÆNTING ELÍTUNNAR OG RÚV ORÐIN SVONA MIKIL?????


mbl.is Beðið eftir Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER KANNSKI VERIÐ AÐ TRYGGJA ÞAÐ AÐ EKKI VERÐI NEIN ALMENNILEG VINNA Á ALÞINGI ÞAÐ SEM EFTIR ER AF ÞESSU ÞINGI????

Ég vil byrja á því að lýsa ánægju minni með það að "meðferð krabbameinsins hjá henni" hafi skilað góðum árangri.  En það sem þetta "veikindaleyfi" hefur líka gert er að það hefur aðeins FENNT yfir LÖGBROT HENNAR og að sjálfsögðu eru lögbrotin ekki jafn "FERSK" og þau hefðu annars verið og þeir sem leggja fram vantrauststillöguna verða að fara í "upprifjunarvinnu".  En getur verið að stjórnarflokkarnir hafi ekki komið sér saman um aðgerðir vegna málsins, fyrr en núna??????


mbl.is Svandís snýr til baka úr veikindaleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERU VIRKILEGA EINHVERJIR ÞARNA ÚTI SEM HALDA AÐ HÚN EIGI MÖGULEIKA????

En eins og sagt er; "það er ekki ein báran stök í 12 vindstigum".  En það hefur hver maður/kona sínar skoðanir um sig og eigið ágæti og svosem ekki mikið um það að segja en sumir mættu nú endurskoða þessar skoðanir eitthvað, ég efast um að þjóðfélagið færi nokkuð á "hliðina" þótt einhverjir myndu draga framboð til embættis forseta Íslands til baka........


mbl.is Lénið katrinjakobs.is stofnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VANTAR FLEIRI Í FRAMBOÐSFLÓRUNA??????????

Nú þegar eru komnir hátt í 60 manns í framboð til embættis forseta Íslands og að eins EINN af öllum þessum fjölda á erindi í þetta embætti en það er Arnar Þór Jónsson lögmaður og fyrrverandi dómari.  Og ekki fjölgar þeim neitt sem hafa eitthvað í þetta embætti að gera þótt forsætisráðherra bjóði sig fram, nema síður sé.  Og svo skilst mér að flestir landsmenn séu búnir að fá mikið meira en nóg af þessari manneskju og því fyrirséð að atkvæðin sem hún fengi verði fremur fá.  En kannski er það það sem vantar, HÚN VIRÐIST ÞURFA Á ÞVÍ AÐ HALDA AÐ VERÐA NIÐURLÆGÐ SVO UM MUNAR........


mbl.is Býður Katrín sig fram til forseta?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÁ UM AÐ GERA AÐ "SLÁTRA GÆSINNI SEM VERPIR GULLEGGJUNUM".....

Einhvern tíma var talað um það fólk sem svona gerði sem frekar "trega" einstaklinga, sem ekki ættu að koma að neins konar rekstri.  Hversu mörg á ætli séu í það að arður af hagnaði til ríkisins næði 100 milljörðum??  Og eftir það yrðu arðgreiðslurnar eins og hver annar happdrættisvinningur. Ég vil nú ekki brigsla Davos dúkkulísunni um heimsku en ég set verulegar athugasemdir við það sem virðist fara fram í kollinum á henni.....


mbl.is Sala á Íslandsbanka geti skilað 100 milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEFUR EKKI "GLEYMST" AÐ TAKA TILLIT TIL "UPPSAFNAÐS KOSTNAÐAR" Í MÁLEFNUM HÆLISLEITENDA??????

Það er nefnilega málið að hælisleitandi sem kemur til landsins árið 2023 hann hættir ekkert að vera kostnaður þann 31 desember það sama ár heldur verður hann áfram á framfærslu ríkisins allt árið 2024 og guð veit hversu lengi eftir.  Þannig að ef kostnað kostnaður vegna hælisleitenda árið 2023 er að lágmarki 20 milljarðar fyrir það ár má reikna með að kostnaður ríkisins af þessu sama fólki verði að lágmarki 10-12 milljarðar árið eftir (2024) og vonandi er hægt að reikna með að einhver fækkun verði á þeim sem verða á framfæri ríkisins eftir því sem árin líða, en á móti kemur að hælisleitendur bætast við á hverju ári.  Það er bara ekki þannig að kostnaður vegna hælisleitenda sé bara kostnaður sem detti bara einu sinni á og svo ekki söguna meir.  ER EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ TEKIÐ VERÐI ALMENNILEGA TIL Í ÞESSUM MÁLOFLOKKI OG TALAÐ UM MÁLIN AF FULLRI HREINSKILNI????


HEFUR "STÝRIVAXTASTIG" EINHVER ÁHRIF Á VERÐBÓLGU??????

Stutta svarið  við þessari spurningu er að ÁHRIFIN ERU ENGIN.  Er ekki rétt að fara yfir það hvaða þætti vextir hafa áhrif?  Jú þeir hafa fyrst og fremst áhrif á NEYSLU en NEYSLA skiptist í tvo þætti í hagfræðinni það er EINKANEYSLA og SAMNEYSLA,  einkaneysla er samkvæmt skilgreiningu hagfræðinnar neysla almennings á landinu.  Það er yfirleitt  EKKI mælt með því að almenningur taki lán fyrir neyslu sinni þó svo að vissulega séu dæmi fyrir því.  Af heildarneyslunni er EINKANEYSLAN aðeins lítill hluti af heildarneyslunni, ef tekið er „lán“ fyrir hluta þessara neyslu er að sjálfsögðu ekki um neitt annað að ræða en að taka þau lán hér innanlands og afskaplega hæpið að halda því fram að sú lántaka sé „VERÐBÓLGUHVETJANDI“.  Öðru máli gegnir um SAMNEYSLUNA,  þar er um OPINBERA NEYSLU að ræða (heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, löggæslu og fleira).  SAMNEYSLAN er fíllinn í postulínsversluninni, útgjöld hins opinbera hafa AUKIST ALVEG GÍFURLEGA SÍÐUSTU ÁR og það sem er alvarlegast er það að ÖLL ÞESSI AUKNING OPINBERRA ÚTGJALDA ER TEKIN AÐ LÁNI OG ÞAÐ ER ÞAÐ SEM VELDUR VERÐBÓLGUNNI.  HVER SKYLDI ÁSTÆÐAN VERA FYRIR ÞVÍ AÐ VERÐBÓLGA HÉR ER HÆRRI EN Í NÁGRANNALÖNDUNUM?  JÚ Í SINNI EINFÖLDUSTU MYND ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ VERÐBÓLGA SKAPIST VIÐ ÞAÐ AÐ VIÐ EYÐUM MEIRU EN VIÐ ÖFLUM.  Síðustu árin og síðustu áratugina hafa hagfræðingar verið að  reyna að átta sig á því almennilega hvað VERÐBÓLGA er í rauninni og hvað það er sem raunverulega veldur henni.  Ef við rennum stuttlega yfir söguna sjáum við að hún einkennist nokkuð mikið , fyrstu árin, af tilraunastarfsemi og „tilgátum“ til dæmis voru  á árunum 1960-1980 voru hagfræðingar mjög uppteknir af að sýna fram á tengst verðbólgu og atvinnuleysis, seinna kom svo Milton Friedman með hina svokölluðu PENINGAMAGNSKENNINGU sem átti að leysa endanlega verðbólguvandann og varð sú „kenning“ nánast heilög nokkuð lengi, næst var farið að tengja saman STÝRIVEXTI og VERÐBÓLGU  og var sú „tilgáta“ talin rétt og óumdeild þar til upp úr 2010 en þá fóru að koma fram efasemdarraddir og ýmsir virtir hagfræðingar eins og Krugman, Taylor, Mankiw og fleiri fóru að koma með verulegar athugsemdir við þessa kenningu og Stieglitz skaut þetta endanlega niður.  Stundum fæ ég það á tilfinninguna „sumir“ telji það að  þegar þeir útskrifist úr einhverju námi, séu þeir „BÚNIR“ að læra, hendi ÖLLUM námsbókum og hætti að fylgjast með öllum framförum í þeirri grein sem þeir menntuðu sig í og loki sig af í einhverjum fílabeinsturni þar sem þeir geta bara verið í friði fyrir almenningi.........


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband