Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

OG ÆTLAST HANN VIRKILEGA TIL AÐ FÓLK TREYSTI ÞESSU BULLI?????

Það segja það flugmenn og flugumferðarstjórar að þetta hafi MIKIL áhrif á flug og rekstraröryggi flugvallarins, eigum við ekki að treysta þeim, hvaða "sérfræðingar" eru þetta sem Einar vísar til???  Þessi nefn segir að áhrif á flug séu til staðar en með "MÓTVÆGISAÐGERÐUM" MEGI MINNKA ÞESSI ÁHRIF, en það er ekki nefnt hverjar þessar mótvægisaðgerðir eiga að vera og enn síð er kostnaðurinn nefndur........


mbl.is „Treysti niðurstöðum sérfræðinganna í þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ER FRAMSÓKN FARIN AÐ STYÐJA DAG B. Í AÐFÖRINNI AÐ FLUGVELLINUM Í REYKJAVÍK...

Og ekki lagast það ef Samfylkingin kemst í ríkisstjórn, þá má telja það ÖRUGGT að Reykjavíkurflugvöllur hverfi úr Vatnsmýrinni.  ÞAÐ VÆRI KANNSKI EKKI ÚR VEGI AÐ RIFJA ÞAÐ UPP  AÐ HELSTU RÖKIN FYRIR ÞVÍ AÐ "NÝR" LANDSPÍTALI VAR BYGGÐUR Á UMFERÐAREYJU VIÐ HRINGBRAUTINA VAR STAÐSETNINGIN VIÐ FLUGVÖLLINN.  En um leið og var búið að taka ákvörðun um þessa staðsetningu fyrir spítalann, var byrjað á "plottinu" við að koma flugvellinum ú borgarlandinu.........


mbl.is Gengið fram hjá þinginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FYRIR ÞAÐ FYRSTA ÞÁ ERU SKEMMTIFERÐASKIPIN EKKI ÍSLENSK FYRIRTÆKI

Og þar af leiðandi fá þau EKKI innskattinn, sem greiða vegna rekstrar ENDURGREIDDAN, eins og hótelin og gistihúsin hér á landi.  Dæmi eru um það að mörg hótel og gistiheimili greiði ENGAN virðisaukaskatt hér á landi, vegna þess að þau eru með ALLAR tekjur sínar í 11% þrepinu en kostnaðurinn er allur í 24% þrepinu og eftir því sem veltan eykst hjá þeim og kostnaðurinn að sama skapi, þá minnkar virðisaukaskatturinn og þegar þetta hefur náð jafnvægi eru bara ENDURGREIÐSLUR sem taka við.  Þar af leiðandi er þessi krafa alveg hreint með öllu óskiljanleg.........


mbl.is Kvarta yfir mismunun í sköttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERÐUR ÞÁ NÆSTU VAXTAHÆKKUN SLEPPT Í LJÓSI "NÝRRA" UPPLÝSINGA???

Vegna þess að HÚSNÆÐISLIÐURINN er inní neysluvísitölunni og sérstakra aðstæðna hér á landi, ÞÁ HAFA BREYTINGAR Á STÝRIVAXTASTIGI ENGIN ÁHRIF Á VERÐBÓLGUNA.  Auk þess eru mörg ár síðan að það var sýnt framá það að það er EKKERT SAMBAND milli stýrivaxtastigs og verðbólgu.  Auk þess þarf nú ekki mikinn speking til að sjá það að það getur ekki slegið mikið á verðbólgu að HÆKKA vextina og gera með því húsnæðiskaupendum erfitt fyrir að greiða lánin sín.  Og það er bara einfaldlega ekki rétt að Seðlabankinn hafi ENGIN önnur vopn gegn verðbólgu en STÝRIVAXTABREYTINGAR.......


mbl.is „Mér er bara hálf brugðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"SUMIR" ÞURFA NÚ Á ÞVÍ AÐ HALDA AÐ FARA Í LYFJAPRÓF............

Það er alveg með ólíkindum að lesa svona lagað kjaftæði og það sem er enn verra er að þetta skuli koma frá einum af ráðherrum landsins (það er ekki von á góðu þegar kollurinn á ráðamönnum þjóðarinnar er svona "heiðskýr").  

Varla sér maður nokkurn miðil án þess að þar sé fjallað um „loftslagsbreytingar og virðist vera einhverskonar „mission“ í gangi hjá „rétttrúnaðarliðinu“ og þá „BAKBORÐSLAGSÍÐULIÐINU“ að telja fólki trú um að þessar loftslagsbreytingar séu af mannavöldum og ef ekki takist að stöðva þessa þróun sé nánast heimsendir í nánd eftir um það bil 8 ár og vestrænar þjóðir verði að vera búnar að gera ráðstafanir  fyrir árið 2030, annars verður „allt búið“.  En Kínverjar og Indverjar fá „frest“ til ársins 2042 til að hætta að menga og að gera ráðstafanir í loftslagsmálum.  En verður ekki dómsdagur genginn yfir þá?  Við erum búin að fá margar „DÓMSDAGSSPÁR“ í gegnum tíðina; til dæmis sagði Al Gore að ALLUR ís á heimskautunum yrði horfinn um aldamótin 2000, vegna hlýnunar af mannavöldum, vissulega hefur ísinn á heimsskautunum bráðnað en alls ekki að fullu en það  er síður en svo af mannavöldum og kem ég að því seinna í þessum pistli.  Hver man ekki eftir því,  þeir sem eru komnir til vits og ára, þegar OZONLAGIÐ var að hverfa og jörðin átti að vera í stórhættu vegna þess að við notuðum svo mikið af ozoneyðandi efnum eins og FREON og AMMONÍAK og eitthvað fleira sem ég get ekki munað hvað var .  Um daginn var haldinn 27 „lokatilraunin“ til þess að bjarga jörðinni frá því að farast vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum. Þessi svokallaða ráðstefna var haldin í Egyptalandi og fékk nafnið  COP27 og eins og áður segir var þarna um að ræða 27 „lokatilraunina“ að ræða til að ná samkomulagi um að bjarga jörðinni frá loftslagsvánni, sem hangir yfir okkur.  Eins og við var að búast skilaði þessi „ráðstefna“ engu þrátt fyrir fjölmenni sem mætti og sem dæmi má nefna að Ísland sendi 44 aðila þarna niður eftir (ekki datt neinum í hug að notast við fjarfundabúnað til að minnka „kolefnissporið“ vega fundarins) og það hlálegasta var að á svæðið mætti fólk á 400 EINKAÞOTUM.  Finnst mönnum það líklegt að fólk sem ferðast um á einkaþotum, sé eitthvað á þeim buxunum að spá í og bjarga loftslagsvá?  Svo bárust fregnir af því að ekki hafi fæðan borið þess merki að mikið væri tekið tillit til loftslagsins þarna, dýrindis nautasteikur og kjötvörur voru á boðstólum og ýmsar fæðutegundir, sem eru ekki hollar fyrir loftslagið og sem það lið sem berst mest í þessum málum, segir að sé bannvara.  Ekki er ósennilegt að eftir át á þessum veisluréttum hafi verið sleppt út nokkuð miklu magni af „ÞARMAGASI“, sem er víst mjög slæmt fyrir loftslagið. Og svo til að bíta hausinn af skömminni þá var að birtast í nýjasta hefti „Bændablaðsins“, rannsókn sem þar sem niðurstaðan er sú að það að loflagsbreytingar af því að moka aftur ofan í skurði, þar sem áður var mýrlendi og eyðileggja þar með ræktarland, hefur EKKERT að segja hvað loftslagið varðar þvert á það sem haldið hefur verið fram.  Og þetta sama á örugglega við á fleiri sviðum?   Margt fleira get ég talið upp en það virðist vera að eitthvert „rétttrúnaðarlið“ nærist á því að reyna að  stjórna okkur sauðsvörtum almúganum með HRÆÐSLU og HRÆÐSLUÁRÓÐRI (eins og covid-19 og svo þessu loftslagskjaftæði og margt fleira hefur verið notað í gegnum tíðina og benti ég aðeins á brot af því fyrr í þessum pistli).

EN NÚ Á EFTIR ÆTLA ÉG AÐ KVEÐA ENDANLEGA NIÐUR ÞESSA „LOFTSLAGSHLÝNUN AF MANNAVÖLDUM“ OG SÝNA FÓLKI FRAM Á HVAÐ ER „RAUNVERULEGA“ Í GANGI OG VELDUR SENNILEGA ÞESSUM ÖFGUM Í VEÐURFARINU.: 

Í nokkur ár hafa ég og nokkrir aðrir hér á „blogginu“, verið óþreytandi við að benda á þá augljósu staðreynd að MIKIL færsla hefur verið á „SEGULPÓLNUM“ allt frá aldamótunum 1899/1900 (sem þau gögn ná til sem ég hef undir höndum).  Þessi staðreynd kollvarpar með öllum  „loftslagsragnarakaspám“ BAKBORÐUSLASÍÐULIÐSINS, sem stendur mest að „loftslagshræðsluáróðinum“ sem er í gangi núna.  Þetta lið virðist hafa mjög góðan aðgang að fjölmiðlum og svo kann það mjög vel að nýta sér samfélagsmiðlana í áróðri sínum og þeir sem ekki taka undir blaðrið í þeim eru umsvifalaust „bannaðir“ í umræðunni, því ekki má fara gegn „RÉTTTRÚNAÐINUM“.  Áhrif staðsetningar Segulpólsins á veðurfar eru mjög vanmetin og mjög litlar rannsóknir eru til hvað þetta varðar og er það mjög miður og er þess valdandi að auðveldara er fyrir „loftslagshamfaraliðið“ og „glóbalistaliðið“ að hafa áhrif á almenning svo hægt sé að „senda“ mikið fjármagn (að lágmarki 50 milljarða ISK næstu fimm árin) í einhverja loftslagssjóði, sem staðsettir eru einhvers staðar úti í heimi og enginn veit hvað verður um nema að sjálfsögðu þeir sem „höndla“ með þessa peninga.

  

 Færsla Segupólssin 1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mynd 1 sýnir færslu Segulpólsins frá árinu 1900 og fram til ársins 2020

 

ATH. „KLIKKIГ Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA 

Þegar þetta er skrifað standa yfir svokölluð PÓLSKIPTI og er „hlýnunin mest á pólsvæðunum.   Það gefur auga leið að það svæði sem Segulpóllinn yfirgefur koma til með að hlýna og er bráðnun Grænlandsjökuls skýrasta dæmið um það og svo að sjálfsögðu bráðnunin á Suðurskautinu.   Myndin sýnir ferðalag Segulpólsins nyrðri frá aldamótum 1899/1900 til ársins 2020 hann stefnir á norðurhluta Síberíu og samkvæmt spám frá NASA þá kemur hann til með að enda í Indlandshafi.  Miðað við gögn, sem ég tíndi upp af „netinu“.  Þegar þetta er skrifað er Segulpóllinn staðsettur suðaustur af hinum reiknaða Norðurpól EN SEGULPÓLLIN NYRÐRI ER HINN RAUNVERULEGI NORÐURPÓLL OG ÞAÐ SAMA GILDIR AÐ SJÁLFSÖGÐU UM SEGULPÓLINN SYÐRI.  Segulpóllinn syðri er alltaf í 180° suður af nyrðri Segulpólnum, þannig að syðri Segulpóllin færist til samhliða nyrðri pólnum.  Sem dæmi um breytingarnar á veðurfarinu má nefna, að á þeim árum sem ég kláraði námið frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík (1981) lá hin svokallaða „lægðabraut“ milli Grænlands og Íslands og fór syðst yfir Ísland en núna liggur „lægðabrautin langt suður af Íslandi og aðallega yfir Írland og suðurhluta Skotlands og kemur að öllum líkindum til með að færast enn meira til.

   

 Segulsvið jarðar mynd 1

 

 

 

 

 

Mynd 2 sýnir staðsetningu Segulpólsins árið 1980 og segulsvið jarðar

 

ATH. „KLIKKIГ Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA

Samkvæmt myndinni þá er segulsvið jarðarminnst við Segulpólana sjálfa en verður sterkara eftir því sem nær dregur miðbaug en fer þá aftur að minka þar af leiðandi eru öll geimför, sem send eru út fyrir lofthjúp jarðar látin yfirgefa segulsvið jarðar sem næst Segulpól jarðar til að spara eldsneyti annars væri einnig möguleiki á því að eldflaugin kæmist einfaldlega ekki útfyrir lofthjúp jarðar.  Síðustu pólskipti áttu sér stað fyrir 780.000 árum.  Vísindamenn eru ekki sammála um hvaða áhrif yfirstandandi pólskipti hafi en flestir eru sammála um að áhrifin séu „minniháttar“ (hvað sem það nú þýðir) . 

Framhjá ÖLLUM þessum staðreyndum hefur verið horft í sambandi við þessi loftslagsmál og vil ég fullyrða að þessar loftslagsbreytingar, sem nú  eiga sér stað, séu að mjög litlum hluta af mannavöldum heldur séu þær af náttúrulegum völdum sem mannkynið hefur enga stjórn á og það hefur afskaplega litla þýðingu að vera að henda fjármunum í hina og þessa sjóði til að koma í  veg fyrir hlýnun.  Að sjálfsögðu eigum við að ganga vel um jörðina og hafa það í huga að við fleygjum ekki rusli á stofugólfið heima hjá okkur.   EN HVERS VEGNA GÖNGUM VIÐ ÞÁ SVONA ILLA UM JÖRÐINA???????


mbl.is Þurfum að hlaupa hratt og hraðar varðandi loftslagsmálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER SAGT AÐ FJÁRHGSVANDI SVEITARFÉLAGANNA SÉ VEGNA FATLAÐS FÓLKS....

En á sama tíma ÞORIR ekki einn einasti sveitarstjórnarmaður hér á landi að segja það að innflutningur hælisleitenda hafi í för með sér NEIN vandamál fyrir sveitarfélögin, af hræðslu við að fá "GÓÐA FÓLKIÐ" yfir sig með sína "HAKKAVÉL". Ég bý í Reykjanesbæ og hef heldur betur fengið að kynnast "hælisleitendavandamálinu" hér í bæ þessa síðustu mánuði og menn hafa bara sagt við mig að þeir hefðu aldrei trúað því að ástandið í Reykjanesbæ væri svona slæmt eins eins og raun ber vitni ef einhver hefði sagt þeim það, þeir urðu að sjá þetta og reyna á eigin skinni (ég tek það fram að enginn þessara aðila bjó hérna í bæjarfélaginu).  Hér eru úthlutanir á vegum fjölskylduhjálparinnar tvisvar í viku og á "úthlutunardögum" eru biðraðir eftir matargjöfum fleiri hundruð metrar.  Ekki er eitt einasta herbergi á lausu hérna í bæjarfélaginu og svo heldur "GÓÐA FÓLKIÐ" því fram að hælisleitendaflaumurinn hafi ENGIN áhrif á fasteignaverð eða leiguverð, menn þurfa nú ekki að hafa mikið á milli eyrnanna til að sjá það rétta í því.  Það er algjör PLÁGA" að fara í Bónus og Krónuna á fitjum, þar hanga stórir hópar af hælisleitendum og fólk  er bara skíthrætt við þetta lið.  En verst er ástandið við Nettó í Krossmóum (en þar er skiptistöð fyrir strætó, en ég kem nánar að þeim þætti síðar í þessum pistli).  Þarna í Nettó í Krossmóum keyrir alveg um þverbak með fjölda hælisleitenda sem hanga þarna og helsta ástæðan fyrir því að þeir hópast þarna að er víst að þar komast þeir í frítt internetsamband, ég segi nú fyrir mig (það eru víst fleiri sem gera það sama orðið) að ég fer helst ekki þarna í Krossmóana nema ég eigi þangað MJÖG brýnt erindi.  Þá kemur að ALVARLEGASTA vandamálinu, að mínu mati vegna hælisleitendanna en það er að hælisleitendur fá FRÍTT í strætó og þar heldur sig ALLA DAGA hópur af mönnum á aldrinum 20 til 30+ ára gamlir og virðast ekkert hafa fyrir stafni en að áreita ungur stúlkur á grunnsólaaldri.  Ég veit um nokkuð marga foreldra hér á svæðinu sem þurfa að keyra dætur sínar úr og í skóla, því þær ÞORA ekki lengur að fara í strætó.  Nú virðist vera að Félagsmálaráðherra sé MIKIÐ Í MUN að viðhalda þessu kerfi, sem VG hefur komið á og berst fyrir með kjafti og klóm með stuðningi Pírata, Viðreisnar og Samfylkingar og þar á bæ er ekkert verið að spá í kostnað  eða áhrif á samfélagið.  Hann (Félagsmálaráðherra) veifar peningum framan í forráðamenn sveitarfélaga þar sem fjárhagsstaðan er erfið og hreinlega "mútar" þeim til að gera samning um að  taka við hælisleitendum og svo er bara talað um að  staða sveitarfélaganna sé svona slæm vegna fatlaðs fólks??????


mbl.is Sveitarfélögin vantar 30 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÆRSTI SÖKUDÓLGURINN ER AÐ SJÁLFSÖGÐU SJÓKVÍAELDIÐ........

Þetta er búið að vera þekkt lengi og þarf ekki að halda neinar ráðstefnur um vandamál sem er alveg þekkt, það sem þarf eru AÐGERÐIR til að LEYSA vandann.  Það er ekki mikið mál að koma veg fyrir þennan vanda; ÞAÐ ÞARF BARA AÐ FÆRA ALLT FISKELDI UPP Á LAND. 

Kannski væri ekki úr vegi að nefna það aðeins hér einhverja þá kosti sem LANDELDI hefur umfram SJÓKVÍAELDI:

  • Í sjókvíaeldi er allt að því ómögulegt að hafa stjórn á hitastigi í eldiskvíunum þar af leiðandi skapast mikil hætta á ótímabærum dauða fisks í kvíunum og erfiðara verður að sjá til þess að fjarlægja sýkta einstaklinga úr kvíunum og sjúkdómshætta verður meiri.
  • Nýting á fóðri verður mun lakari og myndast "haugar" af fóðri og úrgangi frá fiskunum undir kvíunum.  Svo þegar "drulluhaugarnir" undir kvíunum eru orðnir mjög háir þarf að "hvíla" fjörðinn og búa hann undir næstu TÖRN.  Spilar ekki súrefnismettun fjarðarins einhverja rullu þarna?
  • "Slysasleppingar" vegna óveðra og vöntunar á viðhaldi eru mjög algengar í sjókvíaeldi en með öllu óþekktar í landeldi.  Og það eru þessar slysasleppingar sem eru að ganga frá villta laxastofninum í Íslenskum ám.
  • Laxalús er alveg gífurlegt vandamál sjókvíaeldinu og þegar villtur  lax syndir framhjá kvíunum fær "lúsin" sér far með honum og smitast víðar, en sem betur fer þá drepst laxalúsin þegar hún kemur í ferskvatn.
  • Umhverfisáhrifin af sjókvíaeldinu eru alveg gífurlega mikil og NEIKVÆÐ og til dæmis í þröngum fjörðum hafa sjókvíar verulega neikvæð áhrif á opinberar siglingaleiðir skipa og þar með öryggi sjófarenda.
  • Það er vitað að stofnkostnaðurinn við að  koma upp landeldi er nokkuð mikið meiri en að byrja með sjókvíaeldi en þá kemur að rekstrinum en það munar mjög miklu á því hversu reksturinn á landeldinu er hagkvæmari og til lengri tíma litið er hægt að segja að landeldið sé mun ódýrara en sjókvíaeldið.

ER EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ HÆTTA ÞESSU KJAFTÆÐI, HANDÓNÝTU RÁÐSTEFNUM OG BULLI OG FARA AР FRAMKVÆMA EITTHVAÐ AF VITI????????

 

 


mbl.is Laxinn í útrýmingarhættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞANNIG HÓFST LÍKA "HRUNIÐ" 2008............

Munurinn er að mestu leiti sá að nú verður ekki bankahrun heldur almennt efnahagshrun en vissulega munu bankarnir finna fyrir því líka en stærsti skellurinn kemur á almenning eins og alltaf hefur verið.  OG AÐ SJÁLFSÖGÐU VERÐUR ÞAÐ ALMENNINGUR OG ÞÁ LÁGLAUNAFÓLK, SEM FÆR "REIKNINGINN" Í HAUSINN..........


mbl.is Aukin vanskil og gjaldþrot fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN SAMT SEM ÁÐUR, Á AÐ HALDA VITLEYSUNNI ÁFRAM, ÞRÁTT FYRIR AÐ "MEIRIHLUTANUM SÉ LOKSINS ORÐIÐ LJÓST AÐ SKULDASTAÐAN SÉ MUN VERRI EN MENN "HÉLDU".....

Það á hvergi að slá af með "gæluverkefnin" til dæmis finnst mönnum ekkert að því að áætlanir vegna "BORGARLÍNUMARTRAÐARINNAR" HÆKKA um tugi milljóna á HVERJUM DEGI enda skilst mér að peningarnir í það verkefni vaxi á trjánum.  Og enn á víst að byggja nýjan flugvöll í HVASSAHRAUNI og svo á víst að kóróna allt með því að koma upp HRAÐLEST milli flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykjavíkur og peningarnir í það verkefni vaxa víst líka á trjánum.  Já framtíðin er vissulega björt í Reykjavík........


mbl.is Reykjavíkurborg hættir við fyrirhugað skuldabréfaútboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER NÁTTÚRULEGA ALVEG MEÐ ÓLÍKINDUM AÐ ÞAÐ SKULI EKKI VERA BÚIÐ AÐ SLÁ ÞETTA "BORGARLINUKJAFTÆÐI AF FYRIR LÖNGU SÍÐAN...

Það er alveg fyrirséð að það verður ekki bara þetta Fossvogsbrúardæmi sem verður margfalt dýrara en gert var ráð fyrir, HELDUR ALLT HEILA KLABBIÐ.......


mbl.is Ljóst að Fossvogsbrú verður talsvert dýrari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband