Færsluflokkur: Formúla 1
8.5.2011 | 14:32
ENN OG AFTUR.....................................
Ég sé engan í nánustu framtíð sem á minnsta möguleika á því að ógna Vettel á nokkurn hátt. Þó hann væri nú hógvær í viðtali við David Coulthard á BBC1 (kom mér nú reyndar svolítið á óvart því hingað til hefur hann ekki verið neitt sérstaklega hógvær). Að hann skuli strax í upphafi móts vera með 37 stiga forskot á næsta mann segir nokkuð mikið um hversu gífurlega miklir yfirburðir hans eru. Enn og aftur varð ég fyrir gríðarlegum vonbrigðum með Nico Rosberg og hans frammistöðu. Byrjunin hjá honum var alveg frábær að ná í annað sætið í startinu er alveg frábært en einhverra hluta vegna virðist hann eiga erfitt með að fylgja góðum árangri eftir, eftir fjóra eða fimm hringi náði Mark Webber að fara fram úr aftur og hann virtist gefa eftir fyrir öðrum nokkuð fljótt að enda svo í fimmta sæti er ekki alveg ásættanlegt fyrir hann. Hann verður að fara aðeins yfir "hausinn" á sér og gera sér grein fyrir hvað þar er í gangi. Annars var þessi kappakstur mjög skemmtilegur og mikið í gangi og margir framarakstrarnir voru hreinasta augnakonfekt. Bernie Eccelstone sagði í viðtali við Jake Humprey á BBC1, að það væri allt útlit fyrir að samningar væru að nást, um það að keppnin yrði í Tyrklandi að ári. Vonandi er að svo sé, því brautin þar er með þeim skemmtilegri í Formúlunni.
![]() |
Vettel vinnur 13. sigurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.4.2011 | 11:27
EKKI RÁÐIST Á GARÐINN ÞAR SEM HANN ER LÆGSTUR...........
Það er nokkuð klárt að Renault bíllinn er tæknilega fær um að veita Ferrarí bílnum harða samkeppni og jafnvel að skáka honum en ég hef sagt það áður og endurtek það hérna; að ég tel EKKI að Heidfeld sé maður til að vinna svoleiðis verk ég hef miklu meiri trú á Petrov í það. Heidfeld er góður ökumaður, það getur enginn borið á móti því meira að segja er hann einn af þeim betri í formúlunni, en hann vantar eitthvað til þess að hann geti skákað þeim bestu.
![]() |
Takmark Heidfeld að leggja Ferrari að velli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2011 | 19:15
ÚTSÉÐ MEÐ ÞESSA FORMÚLUVERTÍÐ FYRIR HANN.................
.... En vonandi kemur hann tvíefldur til baka á næsta ári. Mig og marga aðra var farið að hlakka til að fylgjast með honum þetta árið. Hann lofaði mjög góðu og frammistaða hans undanfarin ár sagði það að þarna væri framtíðarmeistari á ferðinni, en hann hafði aldrei haft bíl til umráða sem var fær um að keppa um titilinn þar til í ár en þá höfðu verið gerðar það miklar endurbætur á Renaultinum að hann var orðinn nokkuð samkeppnisfær við þá bestu.. En þá tóku örlögin í taumana, Kubica slasaðist alvarlega og nú er útséð um að hann keppi nokkuð á þessari vertíð og til að drepa niður allar titilvonir ákváðu forráðamenn Reunault að ráða Nick Heidfeld í stað Kubica. Ekki ætla ég að bera á móti því að Heidfeld sé góður ökumaður, alls ekki og ég stend við það að hann er með betri ökumönnum formúlunnar, en hann er ekki meistaraefni - hann vantar eitthvað "element" í sig kannski er hann eins og menn segja "too nice guy". Sé ferill Heidfelds skoðaður sést að allur hans ferill hefur einkennst af "miðjumoði" en ökumaður í hans gæðaflokki á alls ekki skilið svoleiðis en því miður hann vantar eitthvað "touch". Því varð ég mjög vonsvikinn fyrir hönd Renault, þegar Heidfeld var ráðinn. Vonandi nær Kubica sér að fullu og þetta slys komi ekki til með að hafa áhrif á feril hans.....
![]() |
Kubica útskrifaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2011 | 09:13
SVONA Á KAPPAKSTUR AÐ VERA................
Maður varð sko ekki svikinn af því að hafa ekki dottið í það í gærkvöldi, sem hefði haft það í för með sér að ég hefði misst af einhverjum albesta kappakstri í langan tíma. Ég hef nú ekki séð öllu aulalegri mistök, heldur en þegar Button keyrði inn á þjónustusvæði Red Bull í sínu fyrsta stoppi, en við það tapaði hann tveimur - þremur sekúndum, sem reyndist honum ansi dýrkeypt þegar upp var staðið. Það var ljóst að tveggja stoppa áætlunin varð Red Bull að falli, Pirelli dekkin hafa ekki enn þá endingu að ráða við tveggja stoppa áætlun á þessari braut og því missti Vettel sigurinn til Hamiltons. En akstur keppninnar átti Mark Webber, það voru örugglega ekki margir sem áttu von á því að hann kæmist úr 18 sæti í það þriðja. Þá olli frammistaða Rosberg mér miklum vonbrigðum en hann stóð sig mjög vel þar til að níu hringir voru eftir af keppninni, þá missti hann hvern eftir annan framúr sér það er engu líkara en hann vanti smá "kaffitorg" í sig til að klára dæmið. Aftur á móti var "gamla brýnið" hann Schumacher alveg frábær í þessari keppni og sýndi gamla takta en manni hefur þótt hann vera full "hlédrægur" stundum en það virðist eitthvað vera að breytast.
![]() |
Tær snilld í Sjanghæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2011 | 18:05
HANN ER ÓTRÚLEGUR DRENGURINN................................
Það mætti halda að þarna færi maður "hokinn af reynslu" en staðreyndin er sú að hann er einn af yngri ökumönnum formúlunnar. Það náttúrulega skemmir ekki fyrir að hann er sennilega með besta bílinn í höndunum en með því er ekki allt fengið menn þurfa að geta nýtt yfirburði bílsins og það er einmitt það sem hann gerir svo vel eða eins og David Coulthard sagði "thats the difference of being good and excellense". Margir eru að spá því að það gæti rignt í keppninni á morgun en það virðist ekki skipta neinu máli fyrir hann. Margir hafa gengið svo langt að kalla hann arftaka Schumachers, en að mínu mati á Schumacher engan arftaka, því það tekur ENGINN annar þá titla og met sem hann hefur unnið, það keppa allir á sínum forsendum t.d er enginn arftaki Ayrton Senna eða Jakie Stewart ofl. . En það er best að fara að hætta þessu bulli og fara bara að hlakka til kappakstursins á morgun.
![]() |
Vettel og Hamilton háðu hart einvígi um ráspólinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ekki virðist vera að neitt toppliðið hafi náð neinni afgerandi forystu varðandi það að bæta bílana,samkvæmt bílprófununum í Barcelóna, en það er vitað að Renault-bíllinn hefur fengið mjög mikla yfirhalningu í vetur og eru flestir á því að þeir hafi ekki sýnt hvað býr í bílnum, vilji bíða þar til kemur að keppni. Þá hefur árangur Mercedes-liðsins vakið nokkra athygli SJÁ HÉR og svo vekur náttúrulega athygli að McLaren er í tómu tjóni. En prófanirnar í Barcelóna gefa bara hugmynd um það hvernig veturinn hefur verið hjá liðunum við sjáum ekki hvað "raunverulega" hefur verið í gangi fyrr en í keppnunum, ég sé fram á skemmtilegt tímabil og vona að svo sé um fleiri...........
![]() |
Ferrari æfði langmest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.3.2011 | 21:31
KANNSKI VAR ÞETTA BARA RÉTT HJÁ ALONSO EFTIR ALLT SAMAN............
Þegar hann sagði að helsti keppinautur tímabilsins framundan væri Schumacher. Það yrðu FIMM heimsmeistarar á brautinni en Schumacher væri sá eini þeirra sem ekkert þyrfti að sanna fyrir einum eða neinum og því færi hann alveg "afslappaður" inn í tímabilið.
![]() |
Schumacher á toppinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.3.2011 | 21:46
HANS TÆKIFÆRI ER EKKI LENGUR TIL STAÐAR..............
Úr því sem komið er, þá hef ég ekki trú á öðru, en að hann verði að sætta sig við að vera aðstoðarmaður Vettels (eins og Barichello og Massa voru fyrir Schumacher). Hvort hann vill sætta sig við það hlutverk á eftir að koma í ljós en héðan í frá held ég að leiðin hjá honum liggi niður á við..
![]() |
Webber: Tilbúnir í slaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2011 | 12:11
VONANDI VERÐUR HANN SANNSPÁR...........................
Ég var þess fullviss að þetta yrði tímabilið hans, bæði er hann alveg stórkostlegur ökumaður og svo hefur Renaultinn verið bættur alveg gríðarlega mikið og ekki ólíklegt að hann sé orðinn með öflugri bílunum á brautinni þetta keppnistímabilið. Eins og áður hefur komið fram voru allar líkur á því að Kubica myndi verða í toppbaráttunni þessa vertíðina en því miður setti þetta slys strik í reikninginn en að sjálfsögðu sendum við honum okkar bestu óskir um góðan og skjótan bata og það verður gaman að sjá hann á brautinni aftur.
![]() |
Spáir Kubica skjótum bata |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2010 | 18:30
LENGI LIFIR Í GÖMLUM GLÆÐUM..............
Scumacher var í öðru sæti á síðasta degi Pirelli dekkjaæfingarinnar í Abu Dabi. Hann virðist jafnt og þétt nálgast sitt "gamla" form, kannski mörgum til hrellingar.