Færsluflokkur: Formúla 1

NÚ GEKK ALLT UPP HJÁ VETTEL................

Og ekki skemmdi það fyrir að hann tók "Schumacher-sigurstökkið" á verðlaunapalllinum en það var smá sárabót fyrir að KÓNGURINN skyldi falla úr keppni. Það var snilldarlegt hvernig hann vann sig úr þriðja sæti, á ráslínu upp í það fyrsta og sannar þar með hvað hann er virkilega góður ökumaður. Með Webber í öðru sæti þetta voru að sjálfsögðu draumaúrslit fyrir Red Bull og Rosberg var nokkuð öruggur í þriðja sæti en Kubica var ekki langt undan í því fjórða.  Það var aðdáunarverður aksturinn hjá Suitil að hann skyldi geta haldið Hamilton fyrir aftan sig, Hamilton er með mun hraðskreiðari bíl og hefði átt að geta farið framúr og Massa var ekki langt frá honum.  Þá var svolítið svekkjandi að sjá vélina hjá Alonso gefa sig á lokahringnum en Button hagnaðist á því.  En keppnin var góð og nú er bara að sjá hvort Kína verður jafn spennandi eftir tvær vikur.
mbl.is Vettel óstöðvandi í Sepang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það skilaði sér að taka "sénsinn" og vera fyrstur á "slikkana".......................

Það verður ekki af honum tekið að hann ók alveg stórkostlega og var vel að sigrinum kominn.  En það að Red Bull-bíllinn virðis ekki hafa náð "stöðugleika" ætlar að verða Vettel dýrkeypt, þetta er í annað skipti sem hann missir af sigri vegna bilana, nú var það bilun í bremsubúnaði og það kostaði hann að hann datt út núna og fékk því engin stig þetta mótið og Webber mátti nú bara þakka fyrir að ná tveimur stigum eftir áreksturinn við Hamilton, kannski er ég ekki alveg hlutlaus, en þar fannst mér Hamilton eiga sökina hann reyndi of mikið til að komast framúr Alonso.  En hvernig sem á þessa keppni er litið þá var hún alveg stórkostleg,mikið um framúrakstra og dramatíkin alveg í hámarki en maður mótsins er alveg örugglega Robert Kubica að byrja í níunda sæti á ráslínu og enda í öðru sæti segir til um það hversu góður ökumaður hann er.
mbl.is Button vinnur einkar spennandi og fjöruga keppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SNILLINGUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Fyrsti hringurinn í þriðja hluta tímatökunnar hjá honum var alveg magnaður það má gera því skóna að hefði hann ekki gert smá mistök í þriðju síðustu beygju og svo aftur í þeirri síðustu eru allar líkur á því að hann hefði verið á undir 1.23 en svona er alltaf hægt að segja en hann keyrði alveg á mörkunum allan hringinn og það mátti ekkert útaf bera til að illa færi.  Hann sannar það drengurinn að þarna er á ferðinni framtíðar meistari ef ekki þetta árið þá seinna.  Red Bull-liðið átti hreinlega tímatökuna spurningin var aðeins hvort það yrði Vettel eða Webber sem tækju pólinn Alonso gerði aðeins atlögu en hann var ekki þesslegur að hann væri nein alvöru ógn.  Helstu vonbrigðin voru að sjálfsögðu að Hamilton skyldi ekki komast í síðustu umferðina en hann endaði í 11 sæti. menn vildu kenna gærdeginum um og vildu meina að hann hefði bara átt "slæman" dag.  Það var svolítið "furðulegt" að ástæðan fyrir slæmu gengi Jarno Trulli var að ökumannsætið brotnaði, ekki alveg sú "bilun" sem má gera ráð fyrir í formúlu1 bíl.
mbl.is Vettel á ráspól í Melbourne
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞESSI ÚRSLIT LOFA GÓÐU UM FORMÚLUVERTÍÐINA Í ÁR.....................................

Þetta hlýtur að vera svekkjandi fyrir Sebastian Vettel, því það var alveg ljóst að hann réði lögum og lofum í þessari keppni og ég kalla það vel af sér vikið hjá honum að ná að klára keppnina og það í fjórða sæti.  Eddie Jordan orðaði það vel þegar hann var spurður að því hvort það væri ásættanlegt fyrir Schumacher að vera í sjötta sæti?  Hann svaraði því til að fyrir Michael Schumacher væri það örugglega ekki ásættanlegt en fyrir aðra væri það nóg.  En skyldi mönnum þykja það ásættanlegt fyrir heimsmeistara síðasta árs að vera "aðeins" í sjöunda sæti þegar liðsfélaginn er í því þriðja á samskonar bíl???
mbl.is Alonso byrjar með sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ER STRÁKURINN Í STUÐI!!!!!!!!!!!!

Það kæmi mér og fleirum ekki á óvart að hann yrði í HARÐRI baráttu um titilinn ef ekki á þessu ári þá í nánustu framtíð.  Hann vann sína fyrstu sigra í formúlunni í fyrra og fór að sýna þann stöðugleika sem til þarf og hefur sýnt það svo um munar að hans staður er á toppnum og hvergi annars staðar.  Það hefur verið gaman að fylgjast með honum alveg öruggt að hann á eftir að gera góða hluti í framtíðinni.
mbl.is Vettel vann ráspólinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann vill bara ekki öflugan mann í samkeppnina...............

Auðvitað eru menn skíthræddir við þá samkeppni sem er í uppsiglingu, mönnum finnst alveg nóg um þótt ekki bætist við sigursælasti ökuþór allra tíma og í ofanálag verður hann í samstarfi við þann sem er helsti "heilinn" á bak við velgengni hans, ég er ekki hissa þótt fari um menn nóg er nú samkeppnin fyrir.  Eins og Ágúst Ásgeirsson orðaði svo snilldarlega "þá þarf Schumacher ekki að sanna sig fyrir einum eða neinum" en samt sem áður geri ég ráð fyrir að hann keppi af fullri alvöru.
mbl.is Webber: Schumacher þarf að sigla krappan sjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VORU KRÖFURNAR GJALDFELDAR????????????

Ég hélt, í sakleysi mínu,  að þess þyrfti ekki væntanlegir þátttakendur biðu í röðum eftir að komast að í formúlu 1.  Mér hefur greinilega skjátlast.  Persónulega finnst mér komið nóg af jagi og deilumálum og finnst að menn eigi að einbeita sér að íþróttinni og að ná góðum árangri á brautinni á komandi keppnistímabili og gera íþróttinni hátt undir höfði eins og hún á svo sannarlega skilið.  Stundum finnst manni að "sumum" finnist meira mál að fá umfjöllun um sig á síðum fjölmiðla en að liðið þeirra sé að hala inn stig á hinum ýmsu kappakstursbrautum heimsins menn ættu kannski að rannsaka ástæðuna??????
mbl.is Ferrari gagnrýnir „heilagt stríð“ FIA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MASSA LÆTUR ÞRIÐJU "STJÖRNUNA" SEM HANN VINNUR MEÐ EKKI TRUFLA SIG..........

En það er ljóst að ef þessir menn fara ekki að keppa sín á milli, eins og gerðist þegar Alonso fór til McLaren, þá verða þeir alveg gríðarlega öflugir.  Segir ekki einhvers staðar "Sameinaðir stöndum við sundraðir föllum við"??????
mbl.is Massa viss um að hafa við Alonso
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GÓÐ TÍÐINDI FYRIR FORMÚLUNA................

Ég held að flestir geti verið sammála um það að, þetta var með því betra, sem gat hent í formúlunni að Schumacher færi að keyra aftur.  Eins og vill verða með afburðamenn eru menn ekki á eitt sáttir varðandi hann og hans aðferðir en menn væru ekki sjálfum sér samkvæmir ef þeir viðurkenndu ekki hversu snjall ökumaður hann er.  Ég verð að viðurkenna það á næstu formúluvertíð verð ég í verulegum vandræðum, því Schumacher og Ferrarí hafa verið eitt í mínum huga.  Það yrði nú eins og að bera í "bakkafullan" lækinn að fara að telja upp kosti hans sem ökumanns, enda yrði um þvílíka langloku að ræða að enginn nennti að lesa það svo ég sleppi því, en eitt er víst að formúluvertíðinni 2010 er bjargað.
mbl.is Schumacher gerir samning við Mercedes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FJÓRÐI SIGURINN Á ÁRINU............

Og er bara byrjunin hjá verðandi margföldum heimsmeistara.  Hann keyrði alveg meiriháttar vel og þrátt fyrir það að Hamilton hafi verið á mun bensínléttari bíl, mátti hann hafa sig allan við til að halda fyrsta sætinu og það kom í ljós að eftir að báðir höfðu tekið fyrra þjónustuhlé sitt þá var Vettel mun hraðari.  Bilun í bremsum hjá Hamilton gerði vart við sig EFTIRþjónustuhlé.  Þessi strákur (Sebastian Vettel) er bara rétt byrjaður að sýna hvað í honum býr og það er nokkuð öruggt að það á eftir að verða mikil og góð veisla hjá öllum þeim sem fylgjast með formúlunni á næstu árum.
mbl.is Vettel: „fullkominn“ endi á tímabilinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband