Færsluflokkur: Formúla 1

SEM BETUR FER VAR HORFIÐ TIL SAMA FYRIRKOMULAGS OG VAR Í FYRRA Í TÍMATÖKUNNI

En auðvitað var það skarð fyrir skildi að Hamilton skyldi ekki ná að setja einn einasta tíma og verður þar af leiðandi að byrja keppnina á morgun af þjónustusvæðinu.  En hann nær örugglega stigasæti en sennilega nær hann ekki upp í topp fimm.  n það var allt annar bragur á tímatökunni en var í fyrstu tveimur mótunum, þrátt fyrir að það yrði að gera tvö hlé.


mbl.is Hrósar „risahring“ Rosberg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG EKKI VAR TÍMATAKAN LAGFÆRÐ Í ÞETTA SKIPTI....

Nú er bara komin einhver "kergja" í málið.  Eftir tímatökuna í Melbourne, sendu ALLIR forráðamenn keppnisliðanna frá sér yfirlýsingu (reyndar á faxi) þess efnis að horfið yrði þegar í stað aftur til sama fyrirkomulags í tímatökunni og var 2015.  Þá sendu  allir ökumennirnir bréf til forráðamanna formúlu1 með samskonar óskum.  En þetta virtist fara frekar illa í Bernie Eccelstona (æðstráðanda í formúlunni).  Hann sagði bara hreint út við Eddie Jordan að forráðamenn keppnisliðanna réðu engu um þetta og svo sagði hann hæðnislega, að hann gæfi ökumönnunum kredit fyrir að ráða við að skrifa bréf, þeirra starf væri að keyra keppnisbíla og þeir ættu bara að einbeita sér að því.  En stjórn FIA ætlar að koma saman á morgun og ræða þetta mál.  Þetta er í annað sinn sem enginn bíll var á keppnisbrautinni þegar 2,5 mínútur voru eftir af síðasta hluta tímatökunnar.


mbl.is Hamilton þurfti brautarmet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MISHEPPNAÐASTA REGLUBREYTING EVER..............

Forsvarsmenn Formúlu 1 ætluðu sér að gera tímatökuna meira spennandi fyrir áhorfendur og aðdáendur formúlunnar og breyttu því fyrirkomulaginu.  En breytingin hafði þveröfug áhrif, miðað við það sem hún átti að gera.  Ég hef ALDREI orðið vitni að því fyrr en núna að lið, sem var að keppa um ráspólinn, væri búið að parkera bílunum og hættir þegar 3 mínútur voru eftir af síðasta hluta tímatökunnar.  Það var alveg sama hvar maður tók niður í tímatökunni, hún var allan tímann alveg hundleiðinleg, það var helst í FYRSTA hlutanum, sem var einhver action, en ég dauðsá bara eftir að hafi rifið mig á fætur til að horfa á þessa hörmung.  Vonandi verður þessu breytt aftur fyrir næstu keppni, því ef þetta verður svona áfram gæti þetta alveg gengið frá formúlunni.


mbl.is „Handónýtt“ og misheppnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚMER 44 VAR MJÖG ÁKVEÐINN Í AÐ VINNA SINN 44 MÓTSSIGUR Á FERLINUM Í DAG

Hann sagði það meira að segja í talstöðvarsamskiptum við Mercedes-liðið að hann væri "TILBÚINN TIL AÐ LEGGJA ALLT UNDIR FYRIR SIGUR Í DAG".  En Rosberg kom í veg fyrir það með allt að því lýtalausum akstri.  Hamilton hefur líka verið að bíða eftir 50 ráspólnum á ferlinum en nú er ljóst að hann kemur ekki heldur fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári.  Hvort það er þannig að Hamilton þori ekki að taka neina áhættu núna eftir að heimsmeistaratitillinn var í höfn, eftir keppnina í Austin Texas, þá hefur árangur hans ekki verið neitt sérstakur síðan þá.  Þegar ég segi ekkert sérstakur, þá á ég við það að Mercedes-bíllinn hefur haft það mikla yfirburði þetta keppnistímabilið að það er nánast litið á það sem sjálfsagðan hlut að þeir séu í fyrsta og öðru sæti í flestum mótum ársins.  Hvort Hamilton hafi verið að "gefa eftir" á síðustu mótum er nokkuð augljóst og sem dæmi um þetta ógnaði Raikkonen öðru sætinu allverulega og kannski mátti Hamilton bara þakka fyrir að þjónustuhléin hjá Finnanum "klúðruðust".  Annars var þessi síðasta keppni ársins frekar "litlaus" og næstum því leiðinleg, má segja að tilþrifin hjá Max Verstapen hafi bjargað því sem bjargað varð.  En það er varla hægt að ætlast til að ALLAR keppnirnar verði spennandi og skemmtilegar.


mbl.is Rosberg vann þriðja sinni í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HANS 42 MÓTSSIGUR Á FERLINUM

Eins og hann sagði sjálfur, í viðtali við Eddie Jordan eftir kappaksturinn, þá var synd að Rosberg skyldi detta út vegna bilunar í kúpplingu því það hefði verið gaman að sjá baráttu milli þeirra tveggja og meir að segja líklegt að Vettel hefði getað blandað sér í þá baráttu.  Svo var ánægjulegt að sjá Perez á verðlaunapalli en þar hefur hann ekki verið síðan í Bahrein á síðasta ári.  Þriðja sætið hjá honum kom til af tvennu: Í fyrsta lagi vegna þess að hann kom inn í dekkjaskipti þegar öryggisbíllinn kom út snemma í kappakstrinum (þegar Grosjean lenti í óhappi) og hann náði að halda dekkjunum þokkalegum allt til loka og svo í öðru lagi áreksturinn milli Raikkonens og Bottas, en fyrir það var hann kominn niður í fimmta sætið en eftir það náði hann að komast aftur í það þriðja og hélt því til loka.  Eftir þessi úrslit er Vettel kominn upp í annað sætið en Hamilton á titilinn nokkuð vísan, það þarf mikið að gerast til að Hamilton vinni hann ekki þetta árið.  250 kappaksturinn hjá Alonso var kannski ekki eins og hann hefði viljað sjá hann en hann var þó í stigasæti það er meira en hann hefur afrekað í flestum keppnum þetta árið. Það verður gaman að fylgjast með næstu keppni í Austin, Texas.


mbl.is Hamilton færist nær titlinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG ÞÁ KEPPIR VETTEL Í 150 SKIPTIÐ Í FORMÚLU 1 Á MORGUN

Þau voru honum dýr, þau tvö akstursmistök sem hann gerði í þriðja hluta tímatökunnar í dag.  En hann "læsti"hægra framhjólinu hressilega og í framhaldi af því tók hann beygjuna strax á eftir mjög "vítt".  Þetta varð til þess að hann varð aðeins í níunda sæti en vegna refsingar, sem Roman Grosjan hlaut, fyrir gírkassaskipti, færist hann upp í áttunda sætið. Hann benti nú á að það er á morgun sem nenn taka stigin og það er útlit fyrir að það verði EINHVERJAR skúrir, sem eru aðstæður sem henta honum alveg fullkomlega.  Það virðist vera að óheppnin elti Raikkonen, því í öðrum hluta tímatökunnar varð vélarbilun hjá honum og hann varð að hætta keppni, en það er huggun harmi gegn að hann endurnýjaði samning sinn við Ferrarí til loka næsta árs. Og enn halda "hremmingar" McLaren manna áfram, en í sumarstoppinu var skipt um bókstaflega allt sem hægt var að skipta um í báðum bílunum.   Þetta varð til að þeim var báðum refsað og hefja þeir leik aftast á ráslínunni á morgun.


mbl.is 900. kappakstur Ferrari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ SÉR BUTTON AÐ FERLINUM Í FORMÚLU 1 SÉ LOKIÐ.....

Þá tekur hann sig til og lærir að keyra rally-cross bíl hjá Petter Solberg SJÁ HÉR.  Ekki er nú hægt að segja að ferill Buttons í Formúlu 1 hafi verið neitt sérstaklega glæsilegur.  Hann hefur "hangið" í meðalmennskunni og jafnvel fyrir neðan hana, nema árið sem hann vann heimsmeistaratitilinn fyrir Brawn-liðið (sem er nú Mercedes).  Yfirburðir bílsins voru svo algjörir og langan tíma tók fyrir FIFA að úrskurða hvort bíllinn væri löglegur og svo þegar úrskurðurinn loksins kom, var svo lítið eftir af keppnistímabilinu að hinn liðin sáu sér ekki neinn hag í því að taka upp sams konar framvængi og Brawn-bílarnir voru með.  Vonandi gerir Button betri hluti í rally-crossinu en í fomúlunni....


mbl.is Vandoorne í stað Buttons
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FYRSTI SIGUR VETTELS Á HUNGARORING......

Og fyrsti sigur Ferrari þar, síðan Schumacher vann þar 2004.  Jafnframt jafnaði Sebastian Vettel met Ayrton Senna yfir fjölda mótssigra á ferlinum (minnir að sigranir séu 41).  Ræsingin hjá Ferrari-ökumönnunum var alveg stórkostleg hún var nánast endurtekning á ræsingu Williams-ökumannanna í Bretlandskappakstrinum.  Þetta var ekki dagurinn hans Raikkonens, þó svo að hann hafi byrjað alveg stórkostlega, en rétt áður en að öryggisbíllinn kom út tilkynnti hann um bilun og að hann væri að missa afl.  Þegar keppnin var rúmlega hálfnuð nýtti Rosberg sér bilunina hjá honum og tókst að komast framúr.  Nokkru síðar varð Raikkonen  að hætta keppni.  En Rosberg var ekki lengi í paradís því Ricciardo nálgaðist hratt og í slagnum um annað sætið lentu þeir í árekstri með þeim afleiðingum að Ricciardo skemmdi framvæng og hægra afturdekkið hjá Rosberg sprakk, þannig að báðir urðu að fara á þjónustusvæðið.  Þetta gerði það að verkum að Daniel Kyat komst í annað sætið en Ricciardo náði því þriðja en Rosberg féll niður í sjötta sætið.  Þetta var í fyrsta skipti á árinu sem Mercedes-liðið hafði hvorugan ökumann sinn á verðlaunapalli.  Þetta var mjög svekkjandi fyrir Raikkonen því það hefur verið mikil umræða um framtíð hans hjá Ferrari undanfarið og er jafnvel talað um að Ferrari sé að reyna að fá Bottas til liðsins næsta ár..........


RIGNINGIN VAR ÖRLAGAVALDURINN Í ÞESSUM SÖGULEGA KAPPAKSTRI

Ræsingin var alveg ótrúleg, að sjá Massa koma ú þriðja sætinu á rásalínu og taka fyrsta sætið og svo var Bottas mjög nálægt því að taka annað sætið af Hamilton en hann varð að játa sig sigraðan í slagnum við Hamilton, þegar hann gaf eftir í þriðju beygju.  En hann náði öðru sætinu af Hamilton í endurræsingunni eftir að öryggisbíllinn fór aftur inn, en þá gerði Hamilton sig sekan um "kæruleysi" og það nýtti Bottas sér í botn og hirti annað sætið. Það var ekki fyrr en Hamilton tók þjónustuhlé að hann náði framfyrir William-bílana, en Rosberg hafði það ekki í sínu þjónustuhléi.  Williams-bílarnir voru núner eitt og tvö stærstan hluta keppninnar, það var ekki fyrr en fór að rigna að allt virtist fara niður á við hjá þeim.  En sá sem hagnaðist mest á rigningunni var Sebastian Vettel,  hann var lengst af í fimmta til sjötta sæti en þegar fór að rigna skipti hann yfir á intermediate dekkin á hárréttu augnabliki og það skilaði honum þriðja sætinu þegar upp var staðið.  Alonso náði svo 10 sætinu (síðasta stigasætið) og má þakka rigningunni það.  Það er alveg ótrúlegt að horfa upp á þetta fornfræga lið vera að berjast á botninum.   Hver hefði trúað því og örugglega enginn sem vill sjá þessa niðurlægingu.  Þess skal til gamans getið að Breskur ökuþór hefur ekki unnið Breska kappaksturinn áður, af ráspól, síðan 1994 að Damon Hill vann.  


mbl.is Besti kappakstur ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GÓÐUR DAGUR FYRIR WILLIAMSLIÐIÐ

Að Massa kláraði í þriðja sæti(hans 40 skipti á verðlaunapalli á ferlinum) og Bottas í fimmta sæti, gefur liðinu mikið í baráttunni um annað sætið í keppni bílasmiða.  Allt féll með þeim í dag, áreksturinn hjá Raikkonen í upphafi kappakstursins og vandræðin hjá Ferrariliðinu í þjónustustoppinu hjá Vettel, en það er nokkuð öruggt að þetta vesen kostaði hann þriðja sætið í keppninni og það sást best á því hversu nálægt Massa hann var í restina.  Og enn halda vandræði McLaren áfram.  Ekki nóg með að báðir bílarnir væru færðir aftur um 25 sæti eftir tímatökuna (en þeim gekk það illa í tímatökunni að þeir þurftu að taka út aukarefsingar á meðan keppnin fór fram) heldur lenti Alonso í árekstri við Raikkonen og þar með var keppnin búin hjá honum og svo varð að láta Button hætta keppni vegna tækniörðugleika.  Þetta keppnistímabil er það versta í sögu McLaren en liðið er einungis með fjögur stig og tímabilið er hálfnað.  Enn einu sinni heillaði Max Verstappen og verður gaman að fylgjast með þessum dreng í framtíðinni.  Red Bull má heldur betur muna fífil sinn fegurri en þeir máttu bar þakka fyrir að ná einu stigi á heimavelli.


mbl.is Ræsingin reddaði Rosberg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband