Færsluflokkur: Formúla 1

ÞAÐ TÓKST!!!!

Þrátt fyrir að Lewis Hamilton, gerði allt sem hann mögulega gat til þess að Nico Rosberg næði ekki heimsmeistaratitlinum.  Yfirmönnum Mercedes-liðsins var farið að blöskra svo framganga Hamiltons, að þeir skipuðu honum að hleypa Rosberg framúr sér, sem hann gerði ekki og  er spurningin hvernig liðið komi til með að taka á því.  Í það minnsta var Eddie Jordan ekki mjög hrifinn og í viðtali sem hann átti við Toto Wolff stjórnanda Mersedes-liðsins, sem hann tók fyrir channel4, spurði hann hreint út hvað yrði gert Toto vildi ekki gefa svar við spurningunni, en það er ljóst að einhver rekistefna verður.  Enn einu sinni sýndi Max Verstappen að hann er framtíðarmeistari og þrátt fyrir það að hann lennti í óhappi í ræsingunni og bíllinn snérist og hann lenti þá í síðasta sæti, vann hann sig upp og endaði í fjórða sæti sem verður að teljast MJÖÖÖÖG vel gert..................


mbl.is Rosberg heimsmeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

51 SIGUR HAMILTONS

Þar með hefur hann jafnað Alan Prost, sem er annar sigursælasti ökumaðurinn í Formúlu 1 en Michael Scumacher er í fyrsta sætinu og verður þar eitthvað áfram.  Það var nú svo sem ekki mikið sem gerðist þarna í þessum kappakstri nema Massa tókst alveg ótrúlega vel upp við að halda Sergio Perez aftan við sig eða í tæplega 18 hringi og er það alveg aðdáunarverður árangur.  Þá var það ekki nokkur spurning að Raikkonen færi fram úr Nico Hulckenberg, þegar fimm hringir voru eftir en Hulckenberg var þrjóskur og reyndi of mikið að halda Raikkonen fyrir aftan sig, sem endaði með því að hann seri bílnum og missti að tvo bíla fram fyrir sig, enda voru dekkin hjá honum mikið slitnari og í verra ásigkomulagi en hjá Raikkonen.  En hasar dagsins átti Max Verstappen, þegar hann í örvæntingu sinni við að halda Sebastian Vettel fyrir aftan sig, fór alltof vítt í eina beygjuna, náði henni ekki fór út úr brautinni, sleppti beygjunni og kom inná hana framan við Vettel.  Honum var sagt í talstöðina, af liðsfélögum, að hann yrði að hleypa Vettel framúr enn það gerði hann ekki, þannig að dómarar keppninnar refsuðu honum um fimm sekúndur og varð niðurstaðan sú að Sebastian Vettel varð þriðji, Daniel Ricciardo varð fjórði og Max Verstappen varð í fimmta sæti.  Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Max Verstappen lætur keppnisskapið bera sig ofurliði, hann var búinn að fá aðvörun en nú eru dómararnir farnir að taka hann föstum tökum.  Það er bara einfalt hann verður að virða reglurnar eins og aðrir.  Vonandi  er að hann læri bara af þessu, en ég get ekki neitað því að strákurinn er í svolitlu uppáhaldi hjá mér og það er alveg klárt að þarna er framtíðar heimsmeistari á ferðinni.  Þegar tvær keppnir eru eftir á tímabilinu er bilið milli Rosbergs og Hamiltons einungis 19 stig, Rosberg í hag og ljóst að það má ekkert klikka hjá hvorugum til að "ballið" sé búið.  Svona viljum við hafa það spennu alveg þar til í lokin..


mbl.is Gerði það nauðsynlega - Verstappen refsað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MIKIÐ UM AÐ VERA Í KAPPAKSTRI DAGSINS

Helsta málið var að sjálfsögðu slagur Red Bull ökumannanna um sigurinn og fram að þeim tíma sem sýndar-öryggisbíllinn kom út (Öryggisbíllinn sem slíkur kom aldrei út í þessari keppni en sýndar-öryggisbíllinn kom tvisvar sinnum út en á þessu tvennu er mikill munur.  Þegar sýndar-öryggisbíllinn er kallaður út eiga ökumenn að halda þeirri fjarlægð í næsta bíl sem var áður en hann var kallaður út en þegar raunverulegur-öryggisbíll er kallaður út eiga bílarnir að raða sér upp á eftir honum), voru yfirburðir Max Verstappen yfir Daniel Ricciardo mjög miklir enda var hann á nokkuð nýlegum dekkjum og bara tímaspursmál hvenær hann næði að taka framúr Ricciardo og ná þannig sigrinum.  Því varð það stóri vinningurinn fyrir Ricciardo að þeir voru báðir kallaðir inn og vilja menn meina að þarna hafi verið í gangi nokkurs konar "liðsskipun" og spurning hvort þetta eigi eftir að hafa einhverja eftirmála, í það minnsta var Max Verstappen allt annað en ánægður í viðtali á Channel 4.  Það var gaman að sjá að sjá að Jenson Button skyldi ná 7 sæti í sínum 300 kappakstri og enn eftirtektaverðara var að sjá Alonso koma úr síðasta sæti á ráslínu og ná því níunda.  Þá sýndi Rosberg óvenju mikla "grimmd" eftir snúninginn eftir samstuðið við Vettel í fyrstu beygju en eftir það lenti hann í síðasta sæti en með frábærum akstri og mörgum skemmtilegum framúr ökstrum, náði hann þriðja sætinu að lokum.  Nú er Rosberg með 23 stiga forskot á Hamilton og spurning hvort Hamilton tekst að vinna það forskot upp í þeim fimm kennum sem eru efir?  Þetta var í 100 skipti sem Hamilton hefur keppni á fremstu "ráslínu2 og vissulega hefði verið skemmtilegra fyrir hann að klára keppnina en svona er Formúlan, menn vita aldri hvað getur gerst....


mbl.is Verstappen maður dagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI Í FYRSTA SKIPTI SEM HAMILTON KLÚÐRAR RÆSINGUNNI

 

En að detta niður í fimmta sæti eftir fyrstu beygju er nokkuð mikið. Verði hann ekki heimsmeistari  þetta árið er klárlega hægt að kenna startinu um.  Monza er mjög hröð braut (reyndar hraðasta brautin í keppnisröðinni) og því skiptir röðin á ráslínunni mjög miklu.  Það er nokkuð ljóst eftir þessa helgi að Danill Kyat kemur til með að missa sæti sitt hjá Toro Rosso, kannski var kappaksturinn í Rússlandi (Sotsji) vendipunkturinn fyrir hann þegar hann missti sæti sitt hjá Red Bull og var færður til Toro Rosso, þar sem hann náði aldrei að festa sig í sessi og náði ekki takti við liðið.  Jenson Button, verður ekki ökumaður fyrir McLaren á næsta ári en Ron Dennis vill halda honum innan liðsins með möguleika á að hann keppi fyrir liðið árið 2018.  Það finnst öllum þetta svolítið skrítin taktík, annað hvort hætta menn eð ekki, fyrir mína parta held ég að þetta sé síðasta keppnistímabil Button í Formúlu 1.  Þá tilkynnti Massa það nú um helgina að þetta yrði hans síðasta tímabil í Formúlunni og vissulega fer þar mikill og góður liðsmaður og hans verður saknað úr Formúlunni.  Nokkuð miklar hreyfingar eru á ökumannamarkaðnum núna (silly season) en það á allt eftir að skýrast efti Singapoor kappaksturinn en þá tilkinna flest liðin ökumenn næsta árs.


mbl.is Rosberg vann í Monza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALLT AÐ ÞVÍ AÐ VERA HUNDLEIÐINLEG KEPPNI

En þetta er staðreyndin með þær brautir, það sem framúrakstur er erfiður eða því sem næst ómögulegur.  Enda var varla hægt að segja að neitt spennandi hafi gerst í þessari keppni.  Það eina sem var eitthvað varið í var þegar Palmer komst framúr Hulkenberg á þjónustusvæðinu en varð svo að gjalda fyrir þetta þegar hann missti bílinn, eftir að fara of djúpt í beygju og fór út í dekkjakurlið utan við aksturslínua í næstu beygju, sem varð til þess að hann datt úr 10 sæti (síðasta stigasætinu) í það 13.  En þarna náði Hamilton sex stiga forystu á Rosberg í kapphlaupinu um heimsmeistaratitilinn en vonandi verður keppnin á Hockenheim, eftir viku, skemmtilegri en þessi.


mbl.is Hamilton kom fyrstur í mark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KEPPNIRNAR Á SILVERSTONE OFT VERIÐ MUN BETRI EN NÚNA!

Það setti keppnina í dag augljóslega mikið niður að ekki skyldi vera um RAUNVERULEGA ræsingu að ræða.  Fyrir utan að keppnin skyldi hefjast að baki öryggisbílnum, sem að sjálfsögðu er nokkuð sem getur alltaf gerst, þá eru flestir sammála um það að hann hafi verið tveimur til þrem hringum of LENGI úti á brautinni, hann fór ekki inn fyrr en eftir fimm hringi og þá loksins byrjaði kappaksturinn.  En brautin þornaði fljótt og kom engum á óvart að það var Vettel, sem var fyrstur til að setja alvöru keppnisdekk undir en svo komu þeir hver á eftir öðrum og á tímabili var mikil traffík á þjónustusvæðinu og oft munaði litlu að það yrðu slys.  Það var nú frekar lítið um flotta framúrakstra en enn einu sinni var það Max Verstappen, sem gladdi áhorfendur þegar hann fór framúr Rosberg að utanverðu í Stove-beygjunni, en Rosberg náði öðru sætinu aftur.  En nokkrum hringjum EFTIR að hann fór aftur framúr Verstappen lenti hann í gírkassavandræðum og var leiðbeint úr þeim vandræðum í gegnum talstöðina, þau talstöðvarsamskipti eru nú til skoðunar hjá dómurum keppninnar og er verið að skoða hvort upplýsingarnar sem Rosberg fékk þar hafi verið löglegar eða ekki.  Eins og staðan er núna (áður en dómarar kveða upp úrskurð sinn), þá er forskot Rosberg á Hamilton, í keppninni um heimsmeistaratitilinn, einungis fjögur stig.  Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist í Ungverjalandi næst?


mbl.is Kórónaði helgina með sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆFINGARNAR ERU EITT EN TÍMATAKAN OG KEPPNIN ERU ALLT ANNAR KAFLI

Hamilton "átti" æfingarnar eins og þær lögðu sig.  En í tímatökunni gekk ekkert upp hjá honum.  Það virtist vera allt í lagi hjá honum í fyrsta og öðrum hluta (að mestu leiti) en í þriðja og mikilvægasta hlutanum komu mistökin á færibandi og hann  endaði í 10 sæti sem kom öllum á óvart.  Það er alveg möguleika að taka framúr á þessari braut en það er frekar erfitt, svo uppröðunin á ráslínu er MJÖG mikilvæg í þessari keppni, ekki alveg eins mikilvæg og í Mónakó en mjög nálægt því.  Það kemur mikið á óvart hversu þröng þessi braut er, það má kannski segja að hún sé blanda af hægum, þröngum og erfiðum beygjum sem eru  í Mónakó og svo hröðum köflum og frekar þröngum á Monza-brautinni.  Þetta kemur svolítið á óvart vegna þess að brautin er alveg ný og það hefur aldrei verið keppt í Bakú áður.  En það verður fróðlegt að fylgjast með kappakstrinum, GÓÐA SKEMMTUN.


mbl.is Rosberg á ráspól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EF ÞETTA ER STAÐREYNDIN-ÞÁ ER STUTT Í ENDALOKIN

Ef hið ljúfa líf er farið að hafa yfirhöndina að einhverju leiti, þá er farið að styttast heldur betur í ferlinum, um það eru  svo mörg dæmi....


mbl.is Segja Hamilton þurfa að sitja hjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG FYRSTI HOLLENDINGURINN TIL AÐ VINNA FORMÚLU 1 KEPPNI

Menn áttu ekki til orð til að lýsa hrifningu sinni á akstri Max Verstappen í dag.  Það segir sitt um hann að þrátt fyrir þennan gífurlega þrýsting, sem var á honum, frá Raikkonen síðustu 15 hringina, þá gerði hann engin mistök allan tíman, nema ein smámistök í tíundu beygju á síðasta hring en þau mistök voru svo smávægileg að Raikkonen náði ekki að nýta sér þau.  En það má ekki gleyma því að óhappið á fyrsta hrin þar sem Rosberg og Hamilton keyrðu hvorn annan út úr keppninni, gerði það að verkum að við fengum að sjá einn skemmtilegasta kaappakstur sem verið hefur í mörg ár.  Það segir sitt um hversu Ferrari og Red Bull bílarnir eru lang næst bestir að þrátt fyrir að springi dekk hjá Daniel Ricciardo í lokin, náði hann inn á þjónustusvæðið og fékk ný dekk og kláraði samt í fjórða sæti.  En það er nokkuð ljóst að Mercedes-menn ætla sér stóra hluti í Mónakó eftir hálfan mánuð og verður örugglega fróðlegt að fylgjast með þá.  En það fór ekki á milli mála að Max Verstappen átti daginn í dag alveg skuldlausan og er þetta sjálfsagt einhver besta byrjun nokkurs manns hja nýju liði.


mbl.is 18 ára strákur sigrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MAX VERSTAPPEN KLÁRLEGA MAÐUR DAGSINS

Það var ótrúlegt að sjá aksturinn hjá drengnum í dag í tímatökunni,  Fyrir lokatörnina var hann ANNAR á eftir Rosberg og á UNDAN Hamilton og alveg þar til í lokatörninni í tímatöku þrjú var hann hraðari en Daniel Ricciardo.  Hann ætlar sér greinilega að nota þetta óvænta tækifæri, sem hann fékk hjá aðalliði Red Bull vel.  Það var heldur betur óvænt að Massa skyldi ekki komast í lokaumferð tímatökunnar, það er alveg mögulegt að fara framúr á þessari braut en ég man ekki til þess að sigurvegari í keppni hafi verið aftar en í fimmta sæti á ráröð.  En það verður fróðlegt að horfa á keppnina á morgun og er ég nokkuð viss um að Max Verstappen á eftir að velgja nokkrum vel undir uggum.


mbl.is Hamilton á ráspól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband