Færsluflokkur: Formúla 1
7.6.2015 | 20:14
NÚMER 44 - 44 RÁSPÓLLINN Á FERLINUM
Fjórði sigurinn í Kanadakappakstrinum og er þar með þremur sigrum frá meti Schumachers, jafnframt er þetta 37 sigur hans á ferlinum. Þó svo að Hamilton sé nokkuð langt frá því að vera minn maður í formúlunni, er ekki annað hægt en að dást að því hvernig maðurinn ekur jafnvel vilja menn jafna honum við Tiger Woods þegar hann var upp á sitt besta. Annars var nú lítið hægt að segja um þessa keppni, nema hvað Vettel og Massa sýndu góðan akstur. Raikkonen missti þriðja sætið til Bottas fyrir einskætt kæruleysi, fyrir utan þetta var keppnin frekar litlaus og allt að því hundleiðinleg. Maður vonast bara eftir skemmtilegri keppni í Austurríki eftir tvær vikur........
![]() |
Hamilton brosir á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.3.2015 | 13:49
"FERRARI IS BACK" OG YFIRBURÐIR MERCEDES ÚR SÖGUNNI
Þegar öryggisbíllinn kom út snemma í keppninni og báðir ökuþórar Mercedes fóru inn en Vettel hélt áfram á brautinni, má segja að úrslitin hafi verið ráðin. Hann tók forystuna og í einu skiptin sem hann lét hana af hendi, var í þessi tvö skipti, sem hann tók þjónustuhlé og í bæði skiptin var það Hamilton, sem fékk að vera í forystu en bara í skamma stund. Aksturinn hjá þessum manni (Vettel) er hrein og bein unun og hann er svo "ískaldur" og einbeittur, hann gerir hreinlega ekki mistök. Það hefur verið svolítið sárt fyrir Christian Horner (stjóra Red Bull), þegar Vettel "hringaði" bæði Daniel Ricciardo og Daniel Kyat. Það er greinilega eitthvað Ferrari - DNA eftir í Niki Lauda, því hann sagði við Eddie Jordan að ef einhver ynni Mercedes þyrfti það helst að vera Ferrari, það ylli minnstum sársauka. Kimi Raikkonen ók líka af miklum glæsibrag, því eftir að afturdekk sprakk hjá honum rétt eftir ræsingu og hann þurfti að fara á þjónustusvæðið og skipta um dekk, sem varð til þess að hann varð lng aftastur. En hægt og hljótt vann hann sig upp og endaði í fjórða sæti. Þetta sýnir betur en margt annað hversu góður bíllinn er orðinn. og margir vilja meina að yfirburðum Mercedes sé lokið og enn einu sinni sé tími Ferrari runninn upp. Mjög áhugaverður var árangur Max Verstappen en þessi ungi ökumaður, endaði í sjöunda sæti og átti þessi yngsti formúlu 1 ökumaður sögunnar hreint frábæra keppni og öruggt að hann á eftir að láta finna fyrir sé í framtíðinni og mörg stórkostleg tilþrif sem hann sýndi í dag.
![]() |
Ferrari brilleraði á herfræðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2015 | 20:08
ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA FARIÐ AÐ "FARA AÐEINS UM MERCEDES MENN"
Þeir hafa ekki riðið feitum hesti frá fyrstu bílprófunum ársins og hlýtur það að valda þeim verulegum áhyggjum hversu önnur lið hafa nálgast þá mikið og jafnvel tekið framúr þeim á einhverjum sviðum............
![]() |
Bottas í toppsætinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.1.2015 | 11:58
ÞAÐ VAR MIKIÐ TALAÐ UM ÞENNAN MÖGULEIKA SÍÐASTA SUMAR......
En það sá það enginn fyrir sér þá að hann færi aftur til McLaren. Mikið hefur verið talað um að þeim Hamilton og Rosberg gengi vægast sagt illa að vinna saman og í rauninni væri bara tímaspursmál hvenær annar hvor þeirra "færi" frá liðinu, flestir voru á því að Alonso og Hamilton hefu sætaskipti (Alonso færi til Mercedes en Hamilton til Ferrari en eins og allir vita varð ekki af því). En kannski þeir hafi bara sætaskipti eftir allt saman, Alonso fari til Mercedes og Hamilton fari "heim" til McLaren.......
![]() |
Alonso valkostur hjá Mercedes |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2014 | 21:28
AUÐVITAÐ VERÐSKULDAÐI HAMILTON TITILINN - ANNARS HEFÐI HANN EKKI UNNIÐ HANN
Annars var þessi kappakstur frekar litlaus og fátt sem gladdi. Helst var það góður akstur Williams ökuþóranna en það verður ekki tekið frá þeim að keppnistímabilið er búið að vera gott hjá þeim og vonandi er Williams liðið að ná þeim stað sem það hefur verið á og á að vera. Og kannski ættu Red Bull bílarnir alltaf að byrja frá þjónustusvæðinu???? Og enn veldur Ferrarí liðið vonbrigðum, það er náttúrulega langt frá væntingum að þeir séu í miðjum hóp. En getur verið að Button hafi bjargað framtíð sinni í formúlunni fyrir horn með góðri frammistöðu sinni í dag????????
![]() |
Rosberg: Hamilton verðskuldar titilinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2014 | 08:18
11 TVÖFALDI SIGUR MERCEDES-LIÐSINS Á KEPPNISTÍMABILINU
Þar með var met McLaren frá árinu 1988 slegið og það er spurning hvort Mercedes tekst að bæta við tvöföldum sigri í Abu Dabi kappakstrinum og svona allt að því að gulltryggja metið því það verður að teljast afskaplega hæpið að þetta met verði slegið á næstunni. Annars var lítið um góða "spretti" í kappakstrinum í gær nema slagurinn milli Mercedes liðsfélaganna, annars bar kappaksturinn þess merki að slagurinn um heimsmeistaratitilinn er aðeins á milli tveggja manna. Það vakti athygli hversu mörg mistök voru gerð í þjónustuhléum og þá var einnig skondið að sjá "heimsókn" Massa á þjónustusvæði McLaren, en það virðist vera nokkuð vinsælt, fræg er "heimsókn" Hamiltons þangað. En þrátt fyrir 5 sekúndna refsingu og þessa "heimsókn" náði Massa þriðja sætinu sem er eftirtektarverður árangur og hlýtur að vera sárabót fyrir hann því það er ekki hægt að segja að lukkan hafi beinlínis elt hann þetta tímabilið...........
![]() |
Rosberg stóðst álagið frá Hamilton |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.10.2014 | 13:40
FYRSTI TITILL BÍLASMIÐA SÍÐAN 1953 Í HÖFN HJÁ MERCEDES
Nú er bara spurningin hvort tekst að verja titilinn á næsta ári. Þessi keppni var nú frekar litlaus, nema mistökin hjá Rosberg í fyrstu beygju, sem voru völd að úrslitunum. En aksturinn hjá Rosberg, eftir þessi mistök, var hreint út sagt stórkostlegur og má líkja því við snilld að geta látið dekkjaganginn endast í 52 hringi en það á nánast ekki að vera hægt. Það var synd að Max Chilton skyldi falla úr keppni og þar með Marushia liðið en það var gert af virðingu við Jules Bianci, að liðið keppti á einum bíl í þessari keppni. En eins og allir vita þá slasaðist hann illa í síðustu keppni og berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Japan. Og enn einu sinni set ég spurningamerki við frammistöðu 365 miðla, því ÖLL útsendingin frá kappakstrinum í dag var RUGLUÐ. Voru ekki ákvæði í samningnum þess efnis að það átti að sýna frá tímatökunum og keppninni sjálfri í opinni dagskrá?????...
![]() |
Mercedes heimsmeistari bílsmiða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2014 | 09:58
GÓÐAR FRÉTTIR AF SHCUMACHER...................
4.10.2014 | 07:48
ÞAÐ ER AÐ KOMA FRAM ÞESSI ÞRÁLÁTI ORÐRÓMUR
![]() |
Vettel til Ferrari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.9.2014 | 14:54
SÁUM VIÐ ÞARNA REFSINGU MERCEDES-LIÐSINS????????
![]() |
Hamilton sigraði þrátt fyrir klúðurstart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |