Færsluflokkur: Formúla 1

50 SIGUR RED BULL

Þetta var ótrúlega flottur akstur hjá honum í dag.  Það mætti halda að þessi drengur væri einn af reynslumestu mönnunum í formúlunni, þegar akstur hans er skoðaður, HANN VIRÐIST BARA ALLS EKKI GERA MISTÖK, margir reynslumeiri menn en hann gætu lært mikið af honum.  Ef marka má orð Eddie Jordan, þá er Alonso sennilega búinn að semja við Red Bull fyrir næsta ár og svo vill hann meina að Alonso og Vettel hafi sætaskipti fyrir næsta ár en það virtist meira vera í gangi því einhverjar sögur eru á kreeiki þess efnis að tími Buttons í formúlunni sé á enda og í viðtali við David Coulthard, gaf Button það alveg til kynna að hann væri ekkert öruggur um sætið sitt hjá McLaren á næsta ári.  En aftur að kappakstri dagsins.  Eftir atburði dagsins hlýtur andrúmsloftið á milli Rosbergs og Hamilton að vera komið ansi nálægt frostmarki.  Eftir samstuðið hjá þeim á öðrum hring (sem að mínum dómi var ekkert annað en óhapp sem verður í kappakstri), sem varð til þess að sprakk á vinstra dekki hjá Hamilton og vegna þess að hann varð að keyra næstum heilan hring með sprungið dekk, urðu nokkuð miklar skemmdir á bílnum að aftan og gólf bílsins stórskemmdist.  Honum var haldið úti nokkuð lengi en var svo að hætta keppni.  Rosberg stórskemmdi framvænginn þannig að skipta varð um hann.  Nikki Lauda var þess alveg fullviss að þetta samstuð hafi kostað Mercedes liðið það að bílar liðsins hefðu orðið í fyrsta og öðru sæti og bæði Toto Wolf og Nikki Lauda sögðust ætla að tala "hressilega" yfir hausmótunum á báðum ökumönnunum á eftir.  Það setti svolítið  leiðinlegan svip á verðlaunaafhendinguna að stuðningsmenn Hamiltons púuðu á Rosberg þegar hann tók á móti verðlaunum sínum fyrir annað sætið í keppninni.
mbl.is Glæsisigur Ricciardo í Spa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MERCEDES - LIÐIÐ METUR ÞAÐ ÞANNIG AÐ ROSBERG EIGI MEIRI MÖGULEIKA Á TITLINUM

En hvað sem því líður verður ekki hægt að taka frá Hamilton að hann átti hreint út sagt frábæran akstur í keppninni og er þetta í fyrsta skipti, sem nokkrum ökumanni tekst að komast á verðlaunapall eftir að hefja keppni af þjónustusvæðinu.  Eftir tímatökuna á laugardaginn, sagðist Rosberg vera miður sín yfir gangi mála hjá Hamilton og bætti því við að hann vildi frekar keppa almennilega við hann á brautinni en að vinna titilinn fyrir óheppni hans.  Eitthvað virðist honum hafa snúist hugur, því ekki virðist honum hugnast það vel að Hamilton hafi minnkað forskotið niður í 11 stig (á stöð 2 í gærkvöldi var sagt níu  stig, en ég veit ekki alveg hvernig þeir fengu það út)..................
mbl.is Hamilton óhress með liðsfyrirmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FYRSTA SKIPTI SEM ÞÝSKUR ÖKUMAÐUR Á ÞÝSKUM BÍL VINNUR SÍÐAN 1939.

Það á ekki af kallgreyinu honum Massa að ganga.  Í síðustu keppni á Silverstone var hann fórnarlamb í útafakstri Raikkonen, strax í byrjun og núna var það Kevin Magnussen, sem tók hann svona hressilega út úr keppninni.  Og í hvorugt skiptið gat hann komið nokkrum vörnum við, reyndar var það fyrir snilldarleg viðbrögð hans að ekki fór verr í Raikkonen óhappinu en áreksturinn við Kevin Magnussen verður skoðaður eftir keppni.  Það er alveg merkilegt hvað Alonso heldur mikið uppá Red Bull bílana, í síðustu  keppni var hann í löngum og skemmtilegum slag við Vettel, þar hafði Vettel betur og nú átti hann í um fimm hringja slag við Ricciardo um fimmta sætið en nú hafði hann betur.  Ef kappaksturinn hefði verið 10 hringjum lengri hefðum við kannski fengið að sjá annan slag milli Vettels og Alonso.  En maður keppninnar var tvímælalaust Hamilton.  Að fara úr 20 sæti á ráslínu í það þriðja er nánast ævintýralegt og hefur það ekki verið gert síðan Montoyja vann það afrek (ég man ekki alveg havaða ár það var).  Ef framvængurinn hjá Hamilton hefði ekki skemmst þegar hann fór framúr Button má teljast nokkuð öruggt að hann hefði náð öðru sætinu af Bottas.  Nú er forskot Rosbergs komið í 14 stig á Hamilton.   Það verður fróðlegt að fylgjast með Ungverska kappakstrinum eftir viku..................
mbl.is Fyrsti heimasigur Rosberg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ VÆRI SYND AÐ SEGJA AÐ HEPPNIN ELTI HAMILTON ÞESSAR VIKURNAR....

Að óhappi Hamiltons var mjög fátt sem kom á óvart.  Williams - ökumennirnir héldu áfram að styrkja stöðu sína og voru í öðru (Bottas) og þriðja (Massa) en Magnussen (McLaren) átti frábæran hring en hann varð í fjórða sæti.  Það má allt að því segja að Magnussen sé á heimavelli enda voru Danir mjög áberandi meðal áhorfenda og vonandi vera þeir ekki fyrir vonbrigðum á morgun.  Jenson Button var fyrir utan topp tíu (ég man ekki alveg í augnablikinu hvar hann lenti) en í viðtali sagði hann að bíllinn hefði verið eitthvað undarlegur og hann hefði haft það á tilfinningunni að hann væri að keyra rallíbíl (árinni kennir illur ræðari).  Og enn einu sinni var Maldonado í veseni.  Þessi maður ætti nú að fara að snúa sér að einhverju öðru en kappakstri, ég hef heyrt að það vanti fólk í fiskvinnslu á Raufarhöfn.
mbl.is Rosberg á ráspól í Hockenheim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA VAR FYRIRSÉÐ - EN HVAÐ GERIR HAMILTON??????

Það eru uppi sögur um að það sé mikil og sterk "stífni" milli þeirra liðsfélaganna og fyrrum vinanna, Hamiltons og Rosbergs og það sé farið að há samstarfinu innan liðsins.  Það er gengið svo langt að talað er um að Fernando Alonso og Lewis Hamilton, hafi sætaskipti fyrir næstu formúluvertíð þ.e að Alonso fari til Mercede og Hamilton til Ferrari.  Það hefur viljað loða svolítið við Hamilton, í gegnum tíðina, að hann hefur ekki alveg átt mjög gott með að lynda við liðsfélagana, sérstaklega ef þeir ógna eitthvað stöðu hans innan liðsins................
mbl.is Rosberg framlengir hjá Mercedes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞESSI KEPPNI VAR EINHVER SÚ SKEMMTILEGASTA Í LANGAN TÍMA.....

Það eina sem vantaði upp á var slagur milli Rosbergs og Hamiltons en því miður féll Rosberg úr keppni vegna gírkassavandræða og við fengum ekki þennan slag.  Það var svakalegt að sjá óhappið hjá Raikkonen, sem seinkaði keppninni um heilan klukkutíma, en um leið voru viðbrögðin hjá Massa alveg meiriháttar flott og það er nokkuð öruggt að þar kom hann í veg fyrir að þetta óhapp yrði enn verra en það svo varð.  Það var sorglegt að 200 kappakstur Massa skyldi enda með þessum hætti en hann getur gengið stultur frá þessu atviki og vonandi verður Hockenheim kappaksturinn eitthvað fyrir hann.  Það var með ólíkindum slagurinn milli þeirra Alonsos og Vettels um fimmta sætið, sem Vettel vann að lokum, ef tekið er tillit til stöðu þeirra á ráslínu er árangur Alonsos í þessari keppni aðdáunarverður og kannski hægt að segja að það væri hægt að gera þá kröfu á Vettel að hann tæki fimmta sætið.  En maður keppninnar var tvímælalaust Bottas, að fara úr 14 sæti á ráslínu í annað er alveg magnaður árangur og að sjá aksturinn hjá manninum var alveg stórkostlegt og sjá hann fara framúr hverjum bílnum á fætur öðrum, án  þess að menn gætu nokkuð gert, var alveg meiriháttar.  Það er nokkuð víst að þessi maður á eftir að minna hressilega á sig í framtíðinni.  Með þessum sigri sínum jafnaði Hamilton sir Jackie Stewart í sigrum breskra ökuþóra , en ennþá vantar hann tvo sigra til að jafna met Nigells Mansells, sem er með 27 sigra en það er allt útlit fyrir að Hamilton fari framúr Mansell, í fjölda sigra á þessu ári.................


mbl.is 25. sigur Lewis Hamilton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FYLGDU ÞVÍ ENGAR KVAÐIR ÞEGAR 365 SAMDI UM SÝNINGARÉTT Á FORMÚLUNNI????

Framundan er nokkuð merkileg helgi í sögu formúlu 1 kappakstursins, því á sunnudaginn verður 50 keppni formúlu 1 á Silverstone brautinni.  Í tilefni að því verður margt um að vera og meðal annars munu Jackie Stewart of fleiri aka um á formúlu bílum sem gerðu garðinn frægan á hinum ýmsu tímum.  BBC verður að sjálfsögðu  með beinar útsendingar, bæði á laugardag og sunnudag (á BBC 2) útsending hefst kl 11.55 að Breskum tíma (10.55 að Íslenskum tíma) og kl 12.00 að Breskum tíma (kl 11.00 að Íslenskum tíma) á sunnudeginum.  En á stöð 2 sport verður sýnt frá tímatökunni kl 20.00 á laugardaginn og svo verður útsending frá keppninni á sunnudag (aðfaranótt mánudags) kl 00.40.  Oft hefur mér nú blöskrað virðingarleysið sem 365 hafa sýnt formúlu 1 og aðdáendum hennar en nú keyrir sko alveg um þverbak.  Það eru mörg ár síðan ég hætti alveg að fylgjast með formúlunni á stöð2 og flutti mig alfarið til BBC..................
mbl.is Rosberg ók hraðast á fyrstu æfingu í Silverstone
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RED BULL RAUF SIGURGÖNGU MERCEDES

Það var unun að sjá hvernig Ricciardo ók í keppninni í dag.  Og að sjá þegar hann fór framúr Perez var hreinasta snilld og nánast bara skyldu framúrakstur þegar hann tók Rosberg (DRS framúrakstur og það fremur einfaldur).  En SKÚRKURINN í þessum kappakstri hlýtur að teljast vera Perez, það var nokkuð augljóst að hann lagði einum of mikið á sig við að halda Massa fyrir aftan sig og endaði með því að báðir duttu út og mega bara prísa sig sæla yfir því að sleppa óslasaðir frá þessu.  Enn einu sinni varð Vettel að horfa upp á það að verða fyrir aftan liðsfélaga sinn þrátt fyrir að vera mun framar á ráslínu.  Ricciardo hefur svo sannarlega stimplað sig hressilega inn eftir að hann gekk til liðs við Red Bull liðið og nokkuð öruggt að hann á framtíðina fyrir sér.  En Vettel er ekki fjórfaldur heimsmeistari fyrir ekki neitt og nokkuð víst að hann hefur ekki sagt sit síðasta.  Það var leitt að sjá að Hamilton skyldi þurfa að hætta keppni, sem gerir keppnina um heimsmeistaratitilinn auðveldari fyrir Rosberg, þetta er önnur keppnin sem Hamilton nær ekki að klára á þessu ári, sem hlýtur að valda honum nokkrum áhyggjum...............
mbl.is Ricciardo brosti breiðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ FER KEPPNIN HELDUR BETUR AÐ HARÐNA OG ÖRVÆNTINGIN GERIR VART VIÐ SIG

Það nýjasta er að Ferrari liðið er á höttunum eftir Adrian Newey og eru miklar pælingar varðandi það.  Eddie Jordan vill meina að ef peningar spila ekki stærsta hlutverkið hjá Newey verði hann kyrr þar sem hann er en náttúrulega er aldrei að vita hvað hangir á spýtunni.  En þetta er það heitasta í formúlunni nú um stundir...............


mbl.is Hamilton fremstur á lokaæfingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FYRSTI TVÖFALDI SIGUR MERCEDES SÍÐAN 1955

Það var síður en svo hægt að segja um þessa keppni að hún væri ekki spennandi.  Sérstaklega var gaman að fylgjast með Hulkenberg, Bottas og svo var algerlega stórkostlegt að sjá hvernig Ricciardo var að standa sig en því miður varð hann að hætta keppni eftir eitthvað bras í þjónustuhléi (mönnum ber ekki saman um hvað hafi gerst en það var engu líkara en að vinstra framhjólið hafi ekki sest nægilega vel) og lið ekki viljað taka sénsinn á að hann færi út aftur.  Ferrarí bíllinn á greinilega nokkuð langt í að verða nógu og góður og það er örugglega ekki ásættanlegur árangur þar á bæ að aðeins annar bíllinn endi í stiga sæti, Alonso var í fjórða sæti en Raikkonen varð annað hvort í 11 eða 12 sæti (man það ekki alveg).  Sjálfsagt eiga Massa og Bottas eftir að ræða málin eftir þennan  kappakstur og eitthvað á sir Frank Williams eftir að blanda sér í málin.  Þessi kappakstur gefur góð fyrirheit um þann næsta.
mbl.is Hamilton sér á parti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband