Færsluflokkur: Íþróttir

HALDA DÓMARARNIR ÁFRAM VIÐ AÐ "FLAUTA" MÓTHERJA KATAR ÚT ÚR KEPPNINNI????

Það er ekki nokkur spurning að Frakkarnir eru með mun sterkara lið og á venjulegum degi ættu þeir að vinna Katar með 2-5 marka mun.  En það verður fróðlegt að sjá hver hlutur dómaranna í leiknum verður............


mbl.is „Katar er sigurstranglegri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SUMIR HJÁ DÖNSKUM FJÖLMIÐLUM EIGA ERFITT MEÐ AÐ SÆTTA SIG VIÐ AÐ ÞJÁLFARI DANSKA LANDSLIÐSINS Í HANDBOLTA SÉ EKKI DANI..

Og þess vegna er starf Guðmundar enn erfiðara.  En það verður ekki hægt að segja annað en hann hafi staðist "prófið" með mikilli prýði og unnið mjög vel úr þeirri aðför sem nokkrir danskir fjölmiðlar gerðu að honum............


mbl.is Gummi fékk 4 -„ Íslendingurinn“ fékk hæstu einkunn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ERU EKKI JÓL ALLA DAGA .........

Leikurinn var stórkostlegur og eiginlega réðust úrslitin af heppni.  Liðin skiptust á að hafa forystu og voru sterkar varnir einkennandi fyrir bæði liðin.  Oft hefur mér fundist Landin betri í Danska markinu en hann var í kvöld en tapið verður alls ekki skrifað á hann. ´Bæði liðin voru ógnarsterk en Spánverjar höfðu hæðina og þyngdina með sér auk þess að hvergi var veikan blett að finna á leik þeirra í dag.  En það var aðdáunarvert að sjá hversu vel Dönum tókst að stöðva línuspil Spánverjanna.  Guðmundur Þórður Guðmundsson getur verið virkilega ánægður með leik Danska landsliðsins á þessu móti...


mbl.is Meistararnir felldu Guðmund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN EITT DÓMARAHNEYKSLIÐ Á HM Í KATAR..................

Alveg er það með eindæmum hversu dómgæslan er alltaf hliðholl Katar á HM í handbolta.  Fullkomlega lögleg mörk eru dæmd af andstæðingum Katara og svo er mjög vinsælt að dæma ruðning á andstæðingana og brottvísanir sumar eru með öllu óskiljanlegar.  Þetta hefur sett ljótan blett á íþróttina og alveg merkilegt ef þetta á ekki efir að hafa eftirmála.  Því þetta lýtur þá að gefa nokkuð skýr skilaboð um hvað menn geta leift sér framvegis............


mbl.is Katar sló Dag og sveina hans út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KATAR KAUPIR HANDBOLTALIÐ OG DÓMARA FYRIR HM..............

En ekki geta þeir "keypt" sig frá umfjölluninni og skömminni, sem þessu fylgir.  Þetta var svo augljóst í leiknum milli Katar og Austurríkis í dag.  Það voru fjórir dómar, þar sem boltinn var dæmdur af Austurríkismönnum undir lok leiksins, sem voru sérstaklega SKRÝTNIR (svo ekki sé nú fastar að orði kveðið).  Ef  lið geta komist áfram í íþróttum á þennan hátt hefur sportinu sett mikið niður.......................


mbl.is Ég sá skömmustusvipinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MENN MEGA EKKI MISSA SIG Í SIGURVÍMU EFTIR ÞENNAN LEIK........

Ísraelsmennirnir voru bara "arfaslakir" og ef strákarnir okkar hefðu ekki unnið þennan leik hefðu þeir alveg getað hætt þessu strax og gefið keppnina upp á bátinn.  Ísraelarnir náðu þó að hanga í strákunum okkar í fyrri hálfleik eða þar til Aron Freyr kom í markið (það hefði í rauninni átt að skipta um markmann miklu fyrr).  Strákarnir gerðu allt of mörg "byrjendamistök" (ónákvæmar sendingar, fengu dæmd á sig skref og flýttu sér of mikið í sóknunum).  Það eru nokkur atriði sem þeir verða að laga ef þeir ætla sér eitthvað á sunnudaginn því þá spila þeir á móti alvöru  liði sem ekki leyfir mótherjunum að vera með neitt kæruleysi.................
mbl.is Sigurbergur: Gott að vinna sannfærandi sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MENN VERÐA AÐ FARA EFTIR ÞVÍ SEM ÞJÁLFARINN LEGGUR FYRIR...

Og þá skiptir engu máli hvort leikmaðurinn heitir Balotelli eða eitthvað annað.  Það er verið að refsa Balotelli fyrir að hafa ekki farið að fyrirmælum síðast þegar Liverpool spilaði í meistaradeildinni og vilja margir meina að Balotelli hafi átt stærstu sökina í því tapi...................
mbl.is Gylfi lagði upp tvö - Liverpool vann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ ÆTTI ÖLLUM AÐ VERA LJÓST AÐ VANDRÆÐI MANCHESTER UNITED, Á SÍÐUSTU LEIKTÍÐ, TENGDUST ÞJÁLFARANUM EKKERT......

Heldur eru  leikmenn innan liðsins, sem voru og eru í "kóngaleik" og samþykktu ekki nýjan þjálfara og ákváðu að leggja sig EKKI 100% fram í leikjum fyrir félagið.  Og það má bara segja að með þeirri framkomu sinni hafi þessir leikmenn svikið félagið, stuðningsmennina og sjálfa sig.  Það mætti kannski spyrja sig hvort menn sem fá tugi milljóna í mánaðarlaun geti yfirhöfuð leyft sér svona lagað?????
mbl.is United niðurlægt af C-deildarliði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKANDALL EF LIVERPOOL HEFÐI EKKI UNNIÐ............

Þeir eru búnir að kaupa hálft Southampton-liðið og það hefði verið saga til næsta bæjar ef þeir hefðu ekki unnið það sem eftir var af Southampton-liðinu...................
mbl.is Sturridge reyndist hetja Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞVÍLÍKT OG ANNAÐ EINS.

Fyrir leikinn hefði ekki nokkur maður trúað því hversu mikil niðurlæging þetta yrði fyrir Brasilíska landsliðið og það á heimavelli.  Getur það verið að liðið sé svo háð einum manni að leikur þess bara hrynji gjörsamlega við það að hann er ekki með?  Brasilíska landsliðið bara brotnaði algjörlega niður, andlega eftir annað markið og Þýska velsmurða "vélin" var eins og það væru þeir sem væru á heimavelli og færði sér í nyt hversu Brasilíska liðið var "vængstýft" og valtaði yfir þá eins og þeir væru að spila við utandeildarlið áhugamanna.  Þessi leikur verður örugglega  lengi í minnum hafður og sálfræðingar víða um heim eiga sjálfsagt eftir að vitna mikið í hann..............
mbl.is Sögulegur sigur Þýskalands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband