BRETAR FAGNA EN ESB SYRGIR

Að sjálfsögðu fagna Bretar því að hafa loksins endurheimt sjálfstæði sitt eftir 47 ára vist í dýflissu ESB.  Allan þennan tíma hefur ESB arðrænt Englendinga, Skota og Walesverja.  Gert þeim að undirgangast regluverk ESB, fiskað innan lögsögu þeirra, gert viðskiptasamninga fyrir hönd þeirra og svo mætti lengi telja.  En nú eru Bretar lausir úr prísund ESB og allt bendir til að það séu bjartir tímar framundan hjá Bretum en það sama verður ekki sagt um ESB.  ESB hefur tapað fjórða stærsta greiðanda sínum og bara fyrir þær sakir verður ekki séð hvernig ESB á að geta haldið úti óbreyttri starfsemi í Br˜üssel og svo verður fróðlegt að fylgjast með hvort ekki koma fleiri lönd til með að fara sömu leið og Bretar, þegar mönnum verður ljóst að hrakspár EVRÓPUSINNA gengu ekki eftir og voru ekkert nema ómerkilegur hræðsluáróður af þeirra hálfu.  Í dag bendir allt til að ESB veri innan bráðar sett í "öndunarvél" og bara spurning hvenær öndunarvélin verður tekin úr sambandi.  TIL HAMINGJU MEÐ AÐ HAFA ENDURHEIMT SJÁLFSTÆÐIÐ BRETAR......


mbl.is Beðið eftir Brexit í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"NÝ SÓSÍALISTAR" ALLRA LANDA SAMEINIST.........

Það er alveg með ólíkindum hvað þessi maður hefur getað vafið einföldum "Vinstri Öfgasálum" um fingur sér með lýðskrumi og hreinum og klárum lygum.  En það verður ekki tekið af honum að hann er flugmælskur og hann á mjög auðvelt með að hrífa fólk með sér.  En þetta eru einmitt einkenni siðblindingja.  Það væri ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þessa manns:  Hann var einn af helstu forkólfum þess að "Fréttablaðið" fór af stað í núverandi mynd og mér skilst að hugmyndin hafi verið hans.  Þegar hugmyndin um "Fréttablaðið" var komin vel af stað tókst honum að sannfæra Jón Ásgeir og fleiri "viðskiptamógúla" um að það væri tilvalið að koma svona "fríblaði" af stað í Danmörku.  Þessi áform "floppuðu" algjörleg og með því minnkuðu möguleikar hans á því að komast í í "klíkuna" með Jóni Ásgeiri og fleirum.  Eftir ævintýrið í Danmörku kom hann til baka til landsins, með skottið á milli lappanna og "endurreisti" Fréttatímann.  Það ævintýri stóð í nokkra mánuði og endaði í gjaldþroti og það sem var alvarlegast var að starfsfólkið fékk ekki greidd laun síðustu mánuðina.  Þegar það varð alveg ljóst að Jón Ásgeir og félagar vildu ekkert með manninn hafa, gerðist hann stækur Sósíalisti með það að markmiði að berjast gegn "AUÐVALDINU" og með lítilmagnanum.  Hann stofnaði Sósíalistaflokkinn og tókst að fá nokkra til fylgis við sig (maðurinn er jú vel mælskur og sannfærandi) og nú stefnir hann á að flokkurinn fái sæti á Alþingi.  Í dag er ekki vitað hverjir koma til með að vera í framboði fyrir flokkinn, en ekki kæmi það á óvart að þar yrði hann sjálfur í framvarðasveitinni því ekki ætlar hann að lifa eins og einhver öreigi.  Finnst mönnum þessi maður mjög trúverðugur?  Ekki myndi ég kaupa notaðan bíl af þessum manni........


mbl.is Gunnar Smári kominn á leigumarkaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. janúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband