FLEIRI AÐ GERA SÉR GREIN FYRIR HVERS KONAR "KJAFTÆÐI" ER Í GANGI VARÐANDI LOFTSLAGSMÁLIN

Og blessað barnið tekur þessum dómsdagsspám, sem er búið að ljúga hana fulla með, mjög alvarleg. En ég set stórt spurningamerki við það að verið sé að hræða líftóruna úr krakkagreyjunum sem koma til með að erfa heiminn og jafnvel eru þau farin að trúa því að það sé of seint að aðhafast nokkuð og við fljótum bara að feigðarósi og það verði jafnvel allt búið eftir einhver tólf ár eða eitthvað svoleiðis.  En eins og fram kemur í fréttinni, sem bloggað er um, þá virðast fleiri og fleiri af þeim sem komnir eru til vits og ára gera sér grein fyrir hvers konar BULL er í gangi NEMA FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSLANDS OG FYLGIFISKAR HENNAR (UMHVERFISRÁÐHERRA OG FLEIRI).  En að "nota" krakkagreyið svona ber vott um að SIÐFERÐIÐ HJÁ ÞEIM SEM ÞAÐ GERA ER EKKI Á MJÖG HÁU PLANI. Fylgist fólk ekkert með, en lætur bara teyma sig áfram á asnaeyrunum?  VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur í Síberíu og vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðurslóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að jöklar eru byrjaðir að myndast í Síberíu.  Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI og nú ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI,?  Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum og svo er annað sem hafa þarf í huga: ÞESSAR BREYTINGAR Á SEGULPÓLNUM HLJÓTA AÐ HAFA ÁHRIF Á "HALLA JARÐAR". "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS".....


mbl.is Opna hjálparsíma vegna aðgerða Thunberg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingi Þór Jónsson

„Áður en þú skrif­ar hugs­an­ir þínar í há­stöf­um á net­miðla skaltu hringja í okk­ur og leyfa þjón­ustu­full­trú­um okk­ar að meta stöðuna sem þú ert í,“ seg­ir í kynn­ing­ar­mynd­band­inu. 

Ingi Þór Jónsson, 27.9.2019 kl. 10:00

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Áður en þú ferð að BULLA um hluti sem þú veist greinilega ekkert um, Ingi Þór Jónsson, skaltu gera tilraun til að hugsa.

Jóhann Elíasson, 27.9.2019 kl. 10:32

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Katrín J. er svo upptekin að bjarga heiminum (að hennar áliti) að hún hafði ekki tíma til að skoða (lesa) um Guuðmundar-og Geirfinsmálum!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 27.9.2019 kl. 10:37

4 Smámynd: Ingi Þór Jónsson

Það er rétt, ég ég veit ekki jafn mikið um capsclock og þú.

Ingi Þór Jónsson, 27.9.2019 kl. 10:38

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi síðasta athugasemd þín, Ingi Þór Jónsson, segir nokkuð mikið um þig og hugmyndalega fátækt þína... wink

Jóhann Elíasson, 27.9.2019 kl. 10:52

6 identicon

Satt er það, segulskautið, hér fyrir norðan, hefur eitthvað verið á hreyfingu undanfarið. 

Síðasta umpólun segulskautanna átti sér stað fyrir u.þ.b. 700-800 þús. árum, ef ég man rétt, og mun hún hafa staðið yfir í nokkur þús. ár.

Segulsviðið verndar jörðina fyrir hættulegum geislum frá sólinni og því gæti truflun á því verið hættuleg lífríkinu, svo að ekki sé minnst á öll nútíma fjarskipti. Aldrei hefi ég samt heyrt um að segulsviðið geti haft bein áhrif á loftslagið.

Það að halda því fram að segulskautin hafi áhrif á halla jarðarinnar er auðvitað út í hött. Gangur jarðar umhverfis sólu er ákaflega stöðugt fyrirbrigði sem má reikna út þúsundir ára, fram og til baka. Hefur einhver orðið var við breytingu á honum?

Ég býst ekki við því að íslensk stjórnvöld þurfi að banna innflutning á venjulegum fólksbílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti, framleiðslu á þeim mun verða hætt innan 10 - 20 ára.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 28.9.2019 kl. 00:20

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Hörður og málefnalegt innlegg í umræðuna.  Ég er alls ekki að halda því fram að segulpóllinn hafi áhrif á halla jarðar, heldur varpa ég fram þeirri spurningu hvort það geti verið.  Hvort einhver hafi orðið var við breytingu á hallanum, þá eru ýmsir sem halda því fram að tíminn sem sól er á lofti allan sólahringinn hafi styst en ekki er um nein vísindaleg rök að ræða heldur tilfinningaleg.  Gangur jarðar umhverfis sólu og halli jarðar eru fyrirbrigði sem eiga ekkert sameiginlegt og eru alls óskyld.

Jóhann Elíasson, 28.9.2019 kl. 09:49

8 identicon

Jóhann. Ég ráðlegg þér að kaupa "ALMANAK fyrir ÍSALND", sem er árlega gefið út af Háskóla Íslands.

Þar getur þú m. a. fræðst um gang jarðar um sólu, möndulhalla jarðar, pólveltu o.s.frv.

Þetta eru allt nákvæmlega útreiknanleg fyrirbrigði og ég býst við að stjarnfræðingar "settu heiminn á annan endann" ef minnsta frávik yrði frá þeim. 

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 28.9.2019 kl. 12:35

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Hörður.  En ég er þokkalega inn í öllum þessum fræðum en dýpri þekking er alltaf af hinu góða.  En það breytir ekki því að sólargangur jarðarinnar og möndulhallinn eru algjörlega óskyld fyrirbæri og þarf engan stjarneðlisfræðing til að vita það..

Jóhann Elíasson, 28.9.2019 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband