BARA BYRJUNIN OG SVO ER EFTIR AÐ TAKA TILLIT TIL "FRAMÚRKEYRSLUNNAR"....

Þó svo að viðhengd frétt fjalli nú minnst um nýjan Landsspítala, þá er full ástæða til þess að nú verði staldrað við og aðeins farið yfir farinn veg.  Eftir því sem hefur liðið á framkvæmdirnar, berast fleiri og fleiri "hryllingssögur" frá Landspítalanum við Hringbraut, þessar sögur hljóta að hrifa eitthvað við fólki.  Starfsfólk er orðið úttaugað og þreytt á sprengingum og jarðvegsvinnu og svo bætist undirmönnunin við og þrengslin sem eru alveg gífurleg.  Svo bætist við að sjúklingarnir verða fyrir alveg gífurlegu ónæði, vegna yfirstandandi framkvæmda.  Ekki man ég hversu mikill tími er áætlaður í þessa framkvæmd EN ÉG HELD ÉG GETI ALVEG FULLYRT ÞAÐ AÐ ÞESSAR FRAMKVÆMDIR KOMA TIL MEÐ AÐ TAKA FIMM TIL TÍU ÁRUM LENGRI TÍMA EN ÁÆTLAÐ ER.  VÆRI EKKI RÁÐ AÐ LÁTA STAÐAR NUMIÐ NÚNA OG GERA ALMENNILEGA ÚTTEKT Á VERKINU OG GANGI ÞESS OG KOSTNAÐI HINGAÐ TIL OG VÆRI EKKI BARA JAFNVEL RÁÐ AÐ HÆTTA VIÐ VERKIÐ OG BYRJA AÐ REISA NÝJAN LANDSPÍTALA Á NÝJUM STAÐ????????


mbl.is Afkoman versnar um 10 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ætli það hafi verið sömu snillingarnir sem völdu að gera höfn á sandi og völdu 101 fyrir stærsta vinnustað á Íslandi?

Sigurður I B Guðmundsson, 12.11.2019 kl. 15:32

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það besta úr þessu Jóhann er að fólk fresti veikindum og slysförum fram yfir framkvæmdatímann og starfsfólki Landspítalans við Hringbraut verði gefið langt sumarfrí, það á það örugglega inni. wink

Tómas Ibsen Halldórsson, 12.11.2019 kl. 16:04

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú, sennilega Sigurður.  Ætli þessir snillingar fái ekki FÁLKAORÐUNA fyrir fálkaskap......... wink

Jóhann Elíasson, 12.11.2019 kl. 16:18

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, Tómas þetta hlýtur að fara í sögubækurnar, sem einhver vitlausasta framkvæmd sögunnar..... undecided

Jóhann Elíasson, 12.11.2019 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband