MÁLIÐ ER BARA AÐ LANDSPÍTALINN ER STJÓRNLAUST REKALD Á LEIÐ UPP Í FJÖRU OG HEFUR VERIÐ LENGI

Og það var "kómískt" þegar Tómas talaði um sig og aðra lækna, sem "vélstjóra" í "Kastljósinu" í gærkvöldi og ÆTLAÐI AÐ BEITA FYRIR SIG EINHVERJUM "FRÖSUM" ÚR SJÓMANNAMÁLI OG SAGÐI AÐ "ÞEIR VÆRU KOMNIR MEÐ SKRÚFU Í NETIÐ OG RÆKI UPP AÐ KLETTÓTTRI STRÖND".  Í fyrri störfum mínum til sjós starfaði ég með mörgum vélstjórum og allir áttu þeir það sameiginlegt að þeir unnu sem ein heild eins og áhöfnin ÖLL gerði og litu ekki á sig sem einhvern forréttindahóp sem allt um borð í skipinu snérist um.  Svo þessi samlíking Tómasar fellur um sjálfa sig auk þess sem hún ÞVÆLDIST NÚ EITTHVAÐ FYRIR HONUM.  Eins og Björn Ingi benti á hefur ekkert staðið á því að fjármagn til spítalans hafi verið aukið í faraldrinum en málið er HVERNIG ÞESSU FJÁRMAGNI HEFUR VERIÐ RÁÐSTAFAÐ.  ÞAÐ ÞARF BARA HREINLEGA AÐ TAKA HEILBRIGÐISKERFIÐ ALLT Í GEGN OG "STOKKA ÞAÐ UPP". ÞAÐ VANTAR EKKI NEINA NEYÐARSTJÓRN YFIR SPÍTALANN HELDUR VENJULEGA STJÓRN OG ÞAÐ Á EKKI AÐ VERA LÆKNIR FORSTJÓRI SPÍTALANS, LÆKNAR EIGA AÐ SINNA ÞVÍ AÐ LÆKNA FÓLK OG AÐRIR EIGA AÐ SINNA REKSTRARSTÖRFUM OG SKIPURIT SPÍTALANS ÞARF AÐ TAKA ALGJÖRLEGA Í GEGN.  Sem dæmi má nefna að árið 2018 þurfti ég að nýta þjónustu landspítalans og lá þar inni í hátt í þrjár vikur.  Ég spjallaði þar svolítið við einn hjúkrunarfræðinginn þegar tími var til á milli þess sem hún var á hlaupum (ég sá aldrei neinn lækni greikka sporið).  Meðal annars sagði hún mér það að síðustu tvö til þrjú árin hefði verið lokað nokkrum deildum á spítalanum og starfsfólki hefði fækkað nokkuð mikið "á gólfinu" en áa sama tíma hefði fólki Á SKRIFSTOFUNNI FJÖLGAÐ UM 17%.  ER ÞARNA EKKI KOMINN STÆRSTI VANDI SPÍTALANS, AUK ÞESSARA SAMÞJÖPPUNAR SEM ORÐIÐ HEFUR Í HEILBRIGÐISKERFINU UNDANFARNA ÁRATUGI?????????????


mbl.is Segir ekkert gerast uppi á spítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

LÆKNAR EIGA AÐ SINNA ÞVÍ AÐ LÆKNA FÓLK

en stjórnunarstörfin eru miklu betur borguð

Grímur Kjartansson, 19.11.2021 kl. 09:00

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er ekki alvarlegt að fá skrúfu í netið. Að fá net eða troll í skrúfuna er hinsvegar verra.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.11.2021 kl. 11:23

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Grímur, er ekki þeirra menntun ekki til þess ætluð og ef þeir eru að sækjast eftir stjórnunarstörfum, vegna launanna þá hafa þeir ekki sótt "rétt" nám og á heilbrigðiskerfið að "blæða" fyrir það?????????

Jóhann Elíasson, 19.11.2021 kl. 11:25

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Rétt Jón.  Mér fannst þetta koma svolítið aulalega út hjá honum og sérstaklega vegna þess að honum varð "fótaskortur" á tungunni............

Jóhann Elíasson, 19.11.2021 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband