HEFUR "RÉTTARKERFIÐ" HÉR Á LANDI VERIÐ "STJÓRNMÁLAVÆTT"?????

Rétt eins og margir samlandar mínir, fór mikill tími milli jóla og nýárs í lestur.  Ein bók greip huga minn alveg sérstaklega og vakti bókin mig til umhugsunar um það á hvaða vegferðréttarkerfið er hér á landi.  ÞESSI BÓK ER "UPPGJÖR BANKAMANNS" eftir Lárus Welding.  Þarna kemur fram nokkuð mikil og ég fæ ekki betur séð en að sú gagnrýni eigi fullan rétt á sér, á vinnubrögð SÉRSTAKS SAKSÓKNAR (sem nú heitir víst HÉRAÐSSAKSÓKNARI, hverju sem það á svo að breyta) og DÓMSTÓLA.  Bókin er afskaplega vel skrifuð og vel uppsett, Lárus Welding forðast að vera að deil á vissa menn en það má lesa út ú þessu að tengslin milli Dómstóla, Sérstaks saksóknara og Stjórnmálakerfisins virðast vera MJÖG mikil og það sem er MJÖG ALVARLEGT að ENGIN vafaatriði sem gætu leitt til refsilækkunar og gætu komið hinum ákærðu til refsilækkunar voru tekin til greina og það sem alvarlegra er að gögn sem voru ákærða til hagsbóta, VORU LÁTIN HVERFA OG VORU EKKI HÖFÐ MEÐ MÁLSGÖGNUM. DÓMARA DÆMDU EKKI EFTIR LÖGUNUM, Í MÁLUM BANKASTJÓRUM FÖLLNU BANKANNA, EINS OG ÞEIM BER AÐ GERA, HELDUR ALMENNINGSÁLITINU Á ÞEIM TÍMA OG EFTIR ÞRÝSTINGI FRÁ PÓLITÍKINNI (þetta eru mín orð og þetta les ég á milli línanna í bókinni en Lárus Welding fer afskaplega varlega í að ásaka einn eða neinn).  Eins og ég hef sagt áður þá er þessi bók mjög vel skrifuð og vel uppsett og hvet ég alla til að kynna sér hana, í það minnsta fékk ég það aldrei á tilfinninguna að hann væri neitt að gera minna úr sínum málum en efni stóðu til og að mínu áliti óx maðurinn mikið við það að senda þessa bók frá sér.

Að þessu tilefni er rétt að skoða stjórnskipan landsins.  Eins og kunnugt er þá er stjórnskipan landsins samansett af þremur einingum; LÖGGJAFARVALDI, FRAMKVÆMDAVALDI OG DÓMSVALDI.  Ég get ekki séð  að LÝÐRÆÐIРsé neitt í hávegum haft í stjórnskipan landsins.  Almenningur fær að hafa "örlítil áhrif" á skipan LÖGGJAFARVALDSINS með að kjósa það á fjögurra ára fresti en almenningur hefur ENGIN áhrif á FRAMKVÆMDAVALDIÐ eða DÓMSVALDIÐ.  Almenningur hefur ekkert um það að segja hverjir verða ráðherrar og svo til að bíta hausinn af skömminni þá er það ráðherra (Dómsmálaráðherra og Forseti), sem skipa dómara og dómarar eru algjörlega háðir FRAMKVÆMDAVALDINU í störfum sínum........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Í dag þá verður maður oft hugsi þegar dómum frá Héraðsdómi er algjörlega snúið við í Landsrétti
Sýkna verður allt í einu 14 ára fangelsi eða öfugt t.d.
Með þyngstu dómum Íslandssögunnar — Sýknu snúið í 14 ár | RÚV (ruv.is)


Þetta er ekki mjög traustvekjandi fyrir núverandi íslenskt réttarkerfi
hvað þá hverju var klúðrað í eldri málum og svo var Mannréttindadómstóll(eða Spanó) alltaf tilbúinn að kollsteypa öllum forsendum

Grímur Kjartansson, 2.1.2023 kl. 16:22

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það eru ansi mörg dæmi um það að dómum hafi algjörlega verið snúið, sem segir okkur það að dómara dæma EKKI eftir lögunum heldur eru þeir að TÚLKA lögin, sem er EKKI þeirra hlutverk.  Að mínum dómi er EKKERT sem heitir Íslenskt réttarkerfi því þar ríkir bara glundroði.......

Jóhann Elíasson, 2.1.2023 kl. 17:59

3 identicon

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður hefur einmitt látið frá sér fara nokkrar greinar um hve dómskerfið er orðið spillt, hversu oft er dæmt á svig við lög landsins.

Hann var hæstaréttardómari sjálfur og þá taldi hann sig oft knúinn til að skila séráliti þegar dómar voru kveðnir upp, þar sem hann taldi að landslögum væri ekki fylgt við dóma.

Af þeim sökum tel ég að hann hafi ekki getað starfað með öðrum dómurum Réttarins. Hann gagnrýndi einmitt dóma sem kveðnir voru upp yfir bankastjórum föllnu bankanna og varð ekki vinsæll af.

Guðmundur Örn Ragnarsson (IP-tala skráð) 2.1.2023 kl. 23:13

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hann Jón Steinar Gunnlaugsson er einhver sá sem hefur mest til síns máls og dómskerfið hér á landi á engum eins mikið að þakka og honum, vega þeirrar ótrúlega góðu og málefnalegu gagnrýni, sem hann hefur veitt dómstólunum.  En hann hefur ekkert hlotið nema "skít og skömm" fyrir og sannast þar máltækið "AÐ ENGINN ER SPÁMAÐUR Í EIGIN LANDI"......

Jóhann Elíasson, 2.1.2023 kl. 23:47

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sæll Jóhann og gleðilegt árið.

Því miður er það svo að þetta réttarkerfi okkar er svo gjörsamlega spillt

að það er sorglegt að horfa uppá fólk halda að það búi í réttar og lýðræðisríki.

Að dómur í Héraði, skuli vera svo öfugsnúin í Landsrétti og aftur snúið við í Hæstarétti

segir bara það að ekki er farið eftir lögum hjá einum af þessum þremur réttum, ef ekki öllum.

Tek undir með Guðmundi varðandi Jón Steinar, en hann einnig lýsti því í pistli að það væri

ekki sama hvernig dómararnir færu framm úr á morgnana og hvernig þeir væru stemmdir fyrir

daginn að hvernig þeir dæmdu. Sem dæmi um tengingar, flestir dómarar, bæði í héraði-lands og hæstarétti

hafa verið eigendur í LEX lögmönnum. Þó svo á pappírum þeir séu það ekki í dag, þá liggur eignarhaldið

yfirleitt hjá þeirra mökum eða börnum til að uppfylla skilyrðin með hlutleysi dómara.

Þannig sð þegar LEX lögmaður flytur mál sitt í einhverjum þessara rétta, þá að sjálfsögðu hefur

það engin áhrif að dómari var eigandi af fyrirtækinu.(alveg öruggt ekki satt)

Einnig má ekki gleyma því að á þingi sitja LEX lögmenn og semja lög og reglur og ættu í raun að

vera vanhæfir vegna allra þessara tenginga því hagsmunir hljóta líka að liggja undir ekki satt.

En svona er Ísland í dag. Stórasta (spilltasta) land í heimi.

Sigurður Kristján Hjaltested, 3.1.2023 kl. 12:45

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður Kristján Hjalteted og sömuleiðis óska ég þér og þínum gleðilegs árs og farsældar á árinu og þakka þér fyrir sérstaklega ánægjuleg samskipti hér á blogginu áliðnu ári.  Já spillingin veður hérna um og það versta er að það virðist ekki nokkur maður hafa áhuga á að gera nokkurn skapaðan hlut í þeim málum.  Ég tek undir með þér að það er dapurlegt að menn skuli halda að við búum í réttarríki (réttarríkið virðist bara vera fyrir suma).  Að lokum ætla ég að vitna í ummæli Sérstaks saksóknara, sem hefjast á blaðsíðu 143 og enda á blaðsíðu 144 í umræddri bók Lárusar Welding, "VISSULEGA ERU UPPI HÁVÆRAR RADDIR UM AÐ EIGI AÐ FARA SKEMMRI LEIÐIR AÐ ÞESSUM MÖNNUM EN ÖÐRUM.  REGLAN ER ÞESSI: MENN SKOÐA GÖGNIN VEGA ÞAU OG META OG TAKA ÁKVÖRÐUN SAMKVÆMT ÞEIM.  VIÐ BÚUM VIÐ JAFNRÆÐI OG VIÐ EIGUM EKKI AÐ TAKA MÁL OG LÁTA MENN FÁ ÓLÍKA MEÐFERÐ EFTIR ÞVÍ HVER Á Í HLUT, HVORT SEM ER TIL BÓTA FYRIR VIÐKOMANDI EÐA TIL HINS VERRA.  ÞAÐ EIGA ALLIR AÐ FÁ SÖMU MEÐFERÐ.  ÞAÐ VIRÐIST VERAORÐIÐ MIKIÐ MÁL AÐ ÞESSIR MENN, SEM ÞÚ VÍSAR TIL, SÉU SÓTTIR OG JÁRNAÐIR BURTSÉÐ FRÁ ÞVÍ HVORT ÞESS ÞURFI FRÁ ÖRYGGISSJÓNARMIÐUM.  Í ÞESSARI HUGMYND FELST EINHVERS KONAR GAPASTOKKS HUGMYND AÐ MENN SÆTI OPINBERRI AUÐMÝKINGU Á ALMANNAFÆRI.  ÞAÐ HEFUR EKKI VERIÐ TÍÐKAРUM MÖRG HUNDRUÐ ÁRA SKEIÐ OG ÉG TEL ENGA ÁSTÆÐU AÐ ÞVÍ VERÐ BREYTT NÚNA."  Þetta sagði Ólafur Þór Hauksson í viðtali sem birtist í "Morgunblaðinu" í lok febrúar 2009.  En þetta var þvert á það sem var svo gert.......

Jóhann Elíasson, 3.1.2023 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband