Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Þeim var komið á með HRAÐI......

En það virðist ekkert liggja á að afnema þau.
mbl.is Má strax afnema eftirlaunalög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ er ekki lengur málsvari láglaunafólks !!!!!!!!

ASÍ er stærsti hagsmunaaðili lífeyrissjóðanna, sem eru helsti dragbítur þess að verðtrygging skulda verði afnumin.  ASÍ semur fyrir láglaunafólk um laun sem ekki nægja til framfærslu.  Ekki þurfa forráðamenn ASÍ að draga fram lífið á þeim launum, sem þeir semja um fyrir umbjóðendur sína.  Það er ekki mikill vandi að rökstyðja það að verkalýðshreyfingin í landinu er komin nokkuð langt frá uppruna sínum.  Hvaða skilaboð ætla þeir að flytja þjóðinni í þessari fundarherferð sinni?
mbl.is Líflegur ASÍ-fundur í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru ekki ársreiningar sveitarfélag endurskoðaðir um hver áramót???????

En samkvæmt þessari frétt þá var þetta búið að standa yfir í þrjú ár.  Hvert er hlutverk endurskoðenda, ekki er vinna þeirra á neinum "lágmarkstaxta"?

Það er nú ýmislegt fleira sem Geir skilur ekki..............

Hann skilur ekki heldur að sem forsætisráðherra þjóðarinnar ber honum skylda til að upplýsa hana um hvað er í gangi og hefur verið í gangi, en hann skilur það ekki frekar en margt annað.
mbl.is Ekkert kallar á afsagnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir og Össuri ber ekki saman um þátt Davíðs Oddssonar

Einhverra hluta vegna kom Össur skár út úr viðtalinu.  Væri ekki ráð að þessir menn mættust til þess að fara yfir þessi mál í stað þess að taka viðtal við þá á sínum hvorum staðnum?
mbl.is Ábyrgðin liggur hjá bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn getur ekki verið með fulla fimm - mesta lagi hálffimm!!!!!!

Mig brestur illilega minni en ég man ekki eftir einu einasta "aðvörunartísti" frá Davíð Oddssyni í sambandi við útrásina, heldur man ég ekki betur en að það hafi verið hann, í forsætisráðherratíð sinni sem skóp aðstæður til þess að þessi svokallaða útrás yrði möguleg og ég man ekki betur en það hafi verið Davíð Oddsson sem hrópaði ferfallt húrra fyrir útrásarmönnunum.  Og það sannaðist á þessum fundi að menn höfðu rétt fyrir sér þegar þeir sögðu að hann hefði minni á við fílinn því hann gleymdi aldrei, hann getur aldrei gleymt því að hann VARÐ að láta undan í fjölmiðlaslagnum, nú vill hann kenna fjölmiðlunum um ástandið í efnahagsmálum.  Hve lengi á að láta þennan mann vaða uppi og hvernig stendur eiginlega á því að það þarf alltaf að fara á límingunum og "gapa" upp í manninn ef hann segir eitthvað og flytja boðskapinn til þjóðarinnar í öllum fjölmiðlum, sem þjóðin hefur yfir að ráða?  Ekki er það allt svo gáfulegt sem hann blaðrar.


mbl.is Fjölmiðlar í heljargreipum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf er verið að draga í land!!!!!

Sigurjón Þ Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, kom "skælbrosandi" í sjónvarpið og sagði að eignir Landsbankans væru alveg nægar fyrir Icesave skuldbindingunum, vandamálið væri bara hvort nokkur kaupandi fyndist.  Hvenær í ósköpunum ætla menn að átta sig á því að eignir eru ekki meira virði en fæst fyrir þær í sölu?  Menn geta sagst eiga bíl að verðmæti 2.500.000 en svo fæst ekki nema 1.000.000 fyrir hann í sölu og kannski vill bara enginn kaupa hann.  Getur ekki verið að sú verði raunin með eignir Landsbankans?  Kannski vill enginn kaupa?
mbl.is Frysting vegna Icesave enn í gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ISG: Ásættanleg niðurstaða = Urðum að éta allt ofan í okkur.!!!!!!

Ekki er langt síðan Geir Haarde tilkynnti það að Íslendingar létu ekki kúga sig en nú kemur hann borubrattur fram og segir bara "það var við ofurefli að etja" og lítur á það sem alveg fullkomna skýringu á undirlægjuhættinum.
mbl.is Icesave-deilan leyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að taka til í fleiri stjórnum en á Íslandi!!!!!

Það gefur alveg auga leið að þessir sjóræningjar starfa þarna í "skjóli" stjórnvalda að öðrum kosti væri þetta ekki hægt.  Hvað ætli sjóræningjarnir greiði Sómölskum stjórnvöldum hátt "verndargjald"?  Það væri kannski full ástæða til þess að rannsókn á því færi fram?

Það er svo líka rétt að þeir sem skrifa fréttir á mbl.is fari bæði á Íslensku- og ritvinnslunámskeið áður en þeir hefja störf. 


mbl.is Enn eitt sjórán undan ströndum Sómalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hægt að afgreiða umsókn sem hefur ekki borist?????

Eða var bara fyrirsláttur að halda því fram, verið að "moka" yfir það að Bretar og Hollendingar voru að setja skilyrði fyrir lánveitingunni?  Er ekki full ástæða til að fari fram rannsókn á starfsemi sjóðsins og það hvort eðlilegt sé að einstaka þjóðir geti "stjórnað" starfi hans bak við tjöldin?
mbl.is Lánsumsókn Íslands hjá IMF afgreidd á miðvikudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband