Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Slæmur dagur!!!!

Vörnin var mjög góð hjá okkar mönnum, markvarslan var góð og strákarnir náðu sér ekki almennilega á strik í sókninni, það verður bara lagað fyrir næsta leik.  Hingað til hefur árangurinn hjá þeim verið framar björtustu vonum þannig að eitt tap slær þá nú ekki út af laginu.  Reiknaði einhver með því að þeir færu taplausir í gegnum riðilinn?
mbl.is Ísland tapaði með einu marki fyrir Suður-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir sá sem virðir ÖLL landamæri og sjálfsákvörðurrétt ALLRA þjóða.

Kannski Rússar fari með herinn út úr Georgíu um leið og Bandaríkjamenn fara með sinn her frá Írak?
mbl.is Bush: Rússar virði landamæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt!!!!!!!!

Ég verð nú að viðurkenna það að mér fannst þetta ekki raunhæf "spá" hjá Aroni Kristjánssyni, þegar hann spáði 3 marka Íslenskum sigri á Þjóðverjum, en vissulega féll allt með okar mönnum og það var vendipunkturinn þegar Heinz (ekki tómatsósan) varð að yfirgefa völlinn meiddur.  En sigurinn var sætur á ríkjandi heimsmeisturum.
mbl.is Ísland fór hamförum gegn Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert tækifæri notað til að verja vitleysuna!!!!!!!

Alveg er þetta stórkostlegt, hjá Friðriki J. og LÍÚ, að fara að tala um "réttinn" til að stjórna veiðum.  Hann (Friðrik J. Arngrímsson) er eins og rispuð grammófónsplata, hann notar hvert tækifæri sem býðst til þess að réttlæta "besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi".  Auðvitað snýst þetta ekki um réttinn til að stjórna fiskveiðum okkar heldur er farið fram á að framleiðendur vörunnar skili vissum vottorðum,  það er ekki gert og því er þetta gert.  Ég er þess fullviss að þetta er ekkert sem kom upp bara fyrir nokkrum dögum heldur hefur þetta átt langan aðdraganda og menn hafa haft "nægan" tíma til þess að bregðast við.  En það er svolítið langsótt að blanda stjórn fiskveiða saman við þetta eins og Friðrik Jón Arngrímsson og hans meðreiðarsveinar vilja gera.
mbl.is Tekist á um réttinn til að stýra fiskveiðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort skyldi eldsneytisverðið HÆKKA hér á landi í dag eða á morgun????

Lækkanir á heimsmarkaðsverði er, einhverra hluta vegna, ekki eins fljótar að skila sér hingað, þegar um lækkun er að ræða á heimsmarkaði virðast olíufélögin fá orðsendingu um það BRÉFLEGA, sem síðan er send með seglskipi sem gengur hámarkið 2 sjómílur á klukkustund og er í ferðum einu sinni til tvisvar á ári (fer eftir veðri og vindum) en boð um hækkanir koma með e-maili samdægurs.
mbl.is Olíuverð hækkar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er BESTA FISVEIÐISTJÓRNUNARKERFI Í HEIMI að klikka?????

Ætti það ekki að vera sjálfgefið að fiskur sem er veiddur í "besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi" fái sjálfkrafa vottun um það að vera veiddur samkvæmt sjálfbærni?  Hvað eru einhverjir sem eru "bara áskrifendur" að laununum sínum?


mbl.is Lokað á villtan þorsk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BESTU TÓNLEIKAR SEM ÉG HEF FARIÐ Á!!!!!!

Fyrst stigu Ellen Kristjánsdóttir og fjölskylda á sviðið.  Ég verð að viðurkenna að einhverra hluta vegna hafði ég ekki stórar væntingar en það átti eftir að breytast, þau voru í einu orði sagt frábær þau tóku svo til eingöngu áður óflutt lög, en svo kom KK á sviðið og þau tóku lagið Angel (sem var eina lagið sem þau höfðu flutt áður og hver einasti maður í salnum þekkti) þá ætlaði þakið að rifna af Egils höllinni.  Mig minnir að KK hafi tekið 3 lög með þeim og hann endaði á blúslagi og þar fór hann alveg á kostum á munnhörpunni.  Ellen og Co voru VIRKILEGA GÓÐog ég held að mér sé óhætt að fullyrða það að hún olli engum vonbrigðum og ég held að hún hafi STÆKKAÐ aðdáendahóp sinn verulega.   Svo kom goðið sjálft á slaginu níu ásamt hljómsveit OG HVÍLÍKTeyrnakonfekt, þarna innanborðs voru sko engir aukvisar, því miður þekki ég ekki til þeirra en þarna var sko ekkert "bílskúrs-band" á ferðinni.  Prógrammið var mjög "blúsað" en þó slæddust með gamlir standardar eins Wonderful Tonight og Layla. Síðasta lagið sem hann og hljómsveit tóku var "Cocaine" og það var vægast sagt meiriháttar upplifun og síðan var uppklappslagið "Crossroads".  Eins og ég segi þá voru tónlekarnir STÓRKOSTLEGIR en eitthvað hefur farið úrskeiðis í framkvæmdinni, því það gekk ILLA í veitingasölunni.  Það voru um 12.000 manns á tónleikunum, þetta var ekki eitthvað sveitaball í Dalabúð og mátti reikna með að það þyrfti að hafa eitthvað fleiri en á venjulegu sveitaballi við að afgreiða veitingar.  Vonandi athug Grímur og félagar það fyrir næstu tónleika.
mbl.is Um 12.000 hlýða á Clapton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Kona ein var að steikja egg handa sínum heittelskaða eiginmanni. Allt í einu ryðst bóndinn inn í eldhúsið. "Varlega varlega...! Settu meira smjör!  Guð hjálpi mér...!  Þú ert að steikja Of mörg egg í einu. OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA!""Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR!Eggin munu festast!" "Varlega...VARLEGA! Ég sagði VARLEGA! Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar! ALDREI! Snúðu þeim! Drífðu þig! Ertu geggjuð! Ertu búin að tapa glórunni? Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta. Nota salt. NOTA SALT! S A L T!"  Konan horfði á hann og sagði. "Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?"Eiginmaðurinn svaraði rólega, "Mig langaði bara að leyfa þér að finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum."....

Þurfa lögin um stjórn fiskveiða þá ekki að standast stjórnarskrána??????

Alþingi ber að sjá til þess að lagafrumvörp, sem eiga að öðlast lagagildi séu í samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins, það hefur EKKI verið gert í tilfelli laga um stjórnun fiskveiða, þannig að það má ganga út frá því að þau lög séu ekki í gildi.  Því er hægt að segja, kinnroðalaust, að Ásmundur hafi ekki brotið nein lög en hinsvegar hefur mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, kveðið upp þann úrskurð að kvótakerfið Íslenska sé mannréttindabrot.  Hver er þá að brjóta lög á hverjum?
mbl.is Bátur Ásmundar færður til hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einfalt - eldsneytisverðið fylgir heimsmarkaðsverði eingöngu þegar það HÆKKAR!

Þetta er deginum ljósara og samkeppni gæti maður haldið að væri eitthvað ofan á brauð hjá ÖLLUM olíufélögunum ekki bara hjá "stóru" olíufélögunum.  Fyrir nokkrum árum þegar nýr aðili kom á eldsneytismarkaðinn kviknaði örlítil "grútartýra", hjá fólki þess efnis að örlítil samkeppni væri í uppsiglingu á þessum markaði.  Svei mér þá þetta byrjaði ágætlega, þessi nýi aðili notaði flest TRIKKIN úr "markaðsfræðibókunum", byrjaði á að bjóða lægri verð, gerði mönnum auðveldara að versla við sig en samkeppnisaðilann, fékk mikla og jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum og alltaf kom niður á því að bensínhallirnar (sem í daglegu tali eru nefndar bensínstöðvar) voru gagnrýndar, því í þeim væri falinn "STÓR" hluti bensínverðsins þær væru óþarflega flottar svo væri fólk að borga allt of mikið fyrir að bensíni væri dælt á bílana þeirra.  Há þessu nýja fyrirtæki yrði þetta sko allt annað, þar borgaði fólk ekki fyrir einhvern ÓÞARFA heldur eingöngu fyrir það sem það FENGI.  Reistar voru sjálfsafgreiðslustöðvar víðsvegar og til að byrja með var eldsneytisverðið þar MUN lægra en hjá stóru olíufélögunum.  En hvað hefur svo erst?  Jú það er einfalt, verðið á eldsneyti hjá þessum "nýja" aðila er orðið SVO TIL ÞAÐ SAMA og hjá stóru olíufélögunum þrátt fyrir að þessi nýi aðili sé ekki með neinar bensínhallir og ekki NEINA ÓÞARFA yfirbyggingu.  Hvað varð um samkeppnina?
mbl.is Dropinn dýr þótt verðið lækki ytra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband