Einfalt - eldsneytisverðið fylgir heimsmarkaðsverði eingöngu þegar það HÆKKAR!

Þetta er deginum ljósara og samkeppni gæti maður haldið að væri eitthvað ofan á brauð hjá ÖLLUM olíufélögunum ekki bara hjá "stóru" olíufélögunum.  Fyrir nokkrum árum þegar nýr aðili kom á eldsneytismarkaðinn kviknaði örlítil "grútartýra", hjá fólki þess efnis að örlítil samkeppni væri í uppsiglingu á þessum markaði.  Svei mér þá þetta byrjaði ágætlega, þessi nýi aðili notaði flest TRIKKIN úr "markaðsfræðibókunum", byrjaði á að bjóða lægri verð, gerði mönnum auðveldara að versla við sig en samkeppnisaðilann, fékk mikla og jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum og alltaf kom niður á því að bensínhallirnar (sem í daglegu tali eru nefndar bensínstöðvar) voru gagnrýndar, því í þeim væri falinn "STÓR" hluti bensínverðsins þær væru óþarflega flottar svo væri fólk að borga allt of mikið fyrir að bensíni væri dælt á bílana þeirra.  Há þessu nýja fyrirtæki yrði þetta sko allt annað, þar borgaði fólk ekki fyrir einhvern ÓÞARFA heldur eingöngu fyrir það sem það FENGI.  Reistar voru sjálfsafgreiðslustöðvar víðsvegar og til að byrja með var eldsneytisverðið þar MUN lægra en hjá stóru olíufélögunum.  En hvað hefur svo erst?  Jú það er einfalt, verðið á eldsneyti hjá þessum "nýja" aðila er orðið SVO TIL ÞAÐ SAMA og hjá stóru olíufélögunum þrátt fyrir að þessi nýi aðili sé ekki með neinar bensínhallir og ekki NEINA ÓÞARFA yfirbyggingu.  Hvað varð um samkeppnina?
mbl.is Dropinn dýr þótt verðið lækki ytra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband