"NÚ ER SKO KOMINN TÍMI TIL AÐ BIÐJA GUÐ AÐ HJÁLPA SÉR"

Þessi orð séra Sigvalda úr Manni og konu, eru fleyg og túlkun Brynjólfs Jóhannessonar er með öllu ógleymanleg.  Þessi orð rifjuðust upp fyrir mér áðan þegar mér varð það á að fara að horfa á beina útsendingu frá Alþingi, þar sem umræðuefnið átti að vera skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis.  Það er skemmst frá því að segja að ENGINN þeirra þingmanna sem tók til máls virtist hafa LESIÐ skýrsluna, einhverjir höfðu kynnt sér efni hennar smávegis, enda báru umræðurnar þess merki.  Aldrei á ævi minni hef ég heyrt annað eins bull og kjaftæði og það EINA sem allir voru sammála um var að skýrslan væri góð og margt í henni væri mjög merkilegt.  Maður fer nú að velta fyrir sér til hvers í ands............ erum við að halda þessu uppi allt árið, svo er þetta lið í fríi meira en hálft árið?????
mbl.is Dagskrá Alþingis óbreytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svabbi

Rétt er það hjá þér.

Eftir að hafa gefið bankana (ekki voru þeir borgaðir) og síðan afnumið allar reglur sem gátu komið í veg fyrir að bankarnir yrðu misnotaðir,voru þeir rændir. Allt í boði Framsóknar.

Síðan fengu þeir lánaðar (eða gefnar) hundruðir milljóna sbr. Jóninu Bjarmarz, Árna Magg og Björn Inga Hrafns

Svabbi, 14.4.2010 kl. 16:00

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Innlitkvitt! Sammála þér Jóhann.

Helgi Þór Gunnarsson, 14.4.2010 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband