Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

SKANDALL!!!!!!!!!

Annars var þetta eftir öðru sem hefur verið kastað framan í þjóðina af "ríkisstjórn fólksins".  Annars fyrst er farið að tala um ALMANNAHAGSMUNI, þá eru það orðnir RÍKIR ALMANNAHAGSMUNIR að "ríkisstjórn fólksins" fari frá öll eins og hún leggur sig, því hjá henni hefur ekkert komið nema fals, pukur, leynd og óráðsía frá upphafi og ekki lýtur út fyrir neitt annað alveg til enda.
mbl.is Gylfi áfram ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

 

Þá kemur einn aulabrandari í tilefni þess að nú nýlega hefur farið fram uppskeruhátíð golfmanna á Íslandi

9 golfkylfur komu á bar og ein þeirra pantaði bjór fyrir þær allar.  Barþjónninn kom með bjórinn til þeirra en þá sagði ein þeirra:

  • „ Ekkert fyrir mig takk ég er nefnilega DRIVER"...........................

Furðufrétt - Á virkilega að gleypa svona kjaftæði hrátt??????

Þetta er einhver sú aumasta afsökun, fyrir lélegum gangi, sem hægt var að koma með....   Hafa aldrei verið SUMARFRÍ í borginni áður????????
mbl.is Vinnan hefur tafist vegna sumarfría og kosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN EINN "BLEKKINGARLEIKURINN"......................................

Hún ríður ekki við einteyming vitleysan og feluleikurinn hjá "ríkisstjórn fólksins".  Þetta fólk hefur sýnt það og sannað, svo ekki verður um villst, að það er gjörsamlega óhæft til þess að fylgja eftir stjórnarskránni og að fara að því sem þar stendur.  Þá á bara að búa til eitthvert batterí til þess að leggja línurnar en það er bara eitt sem þessir fuglar athuga ekki; STJÓRNARSKRÁIN ER MJÖG GOTT PLAGG OG AFGERANDI, HÚN HEFUR STAÐIST TÍMANS TÖNN MJÖG VEL og að mínu áliti er varla nokkuð atriði í henni sem þarf endurskoðunar við.  En það sama verður EKKI sagt um þá sem eiga að fara eftir henni og eiga að sjá um að hún sé í heiðri höfð (það er að segja Alþingismenn).  Væri ekki ráð að fyrst yrði hugað að því hvernig Alþingismenn-konur eigi að breyta sínum vinnubrögðum og starfi til þess að brjóta EKKI stjórnarskrána, eins og hefur verið gert frá upphafi lýðveldisstofnunar hér á landi, áður en er hugað að breytingum á stjórnarskránni, sem jafnvel er ekki þörf á????  Nokkuð mikið hefur verið skorað á mig að birta hér á blogginu hugleiðingar mínar um Stjórnarskrána okkar og hvernig ég rökstyð það að hún hafi aldrei verið virt og henni aldrei sýndur sá sómi sem hún á skilið að fá.  Í upphafi þingferils síns sverja þingmenn- og konur þess eið að virða stjórnarskrána, en manni dettur í hug að þarna sé einungis um einhverja formlega athöfn að ræða og þingmenn hafi ekki einu sinni fyrir því að lesa hana.  En hér á eftir fer þessi pistill minn:   

Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands.

Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.

En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar.

LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta.  Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt.

FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra.  Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur (Löggjafarvaldið).

DÓMSVALD er í höndum dómara.

Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera.

En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi.  Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.

Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ:  Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 12 ráðherrar.  Þarna er strax komin skörun.  Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp.  Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni.  Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar ekki að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar.  Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara "skilvirkari" ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing?  Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að "taka yfir" LÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ.  Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga.  Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ.  Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun.  DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt.  En er það alveg sjálfstætt?  Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein "Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum" (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í  mörg ár eða jafnvel áratugi?  Ekki einvörðungu hefur framkvæmdavaldið seilst til áhrifa í löggjafarvaldinu heldur er það einnig komið með puttana í dómsvaldið (sbr. Það að flestir dómarar, bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti, eru orðnir pólitískt skipaðir).

Það er mín skoðun að stjórnarskráin, sem slík sé mjög gott plagg og hefur hún þolað mjög vel tímans tönn en aftur á móti hef ég meiri áhyggjur af þeim sem eru á Alþingi og eiga að sjá til þess að það sé unnið í samræmi við stjórnarskrána m.a á að gæta þess að lög sem eru sett séu í samræmi við stjórnarskrána á því vill nú vera misbrestur.

Það er öruggleg einhver ástæða fyrir því að það er verið að tala um RÁÐHERRARÆÐI hér á landi.


mbl.is Kosið til stjórnlagaþings 27. nóvember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Gylfi sé nokkuð YFIRMAÐUR HENNAR Þegar allt verður skoðað?????

Er ekki tími til kominn að fram fari rannsókn á því hvort ALLT HEILA KLANIÐ Í "RÍKISSTJÓRN FÓLKSINS" VISSI AF ÞESSU LÖGFRÆÐIÁLITI???????
mbl.is Upplýsti yfirmenn sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ SJÁLFSÖGÐU STYÐJA ÞEIR FRUMVARPIÐ SEM HAFA KOMIÐ SÉR ÞÆGILEGA FYRIR Á MARKAÐNUM........

Þeir eru að sjálfsögðu fegnir að það eigi að "drepa" samkeppni strax í fæðingu.
mbl.is Ungir bændur fagna frumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVER VERÐA SVO VIÐBRÖGÐIN???????

Heldur ESB-liðið virkilega að Íslendingum sé svo umhugað að komast inn í miðsstýringuna að okkur sé ekki andskotans sama þótt "innlimunarviðræðurnar" strandi á þessu atriði??????  Hingað til hefur enginn af þessum hörðu ESB-sinnum getað komið með NEIN jákvæð rök fyrir því að við ættum að fara þarna inn, öll þeirra rök hafa verið byggð á einhverju bulli sem engu heldur þegar það er skoðað.  Er ekki tími til kominn að draga þessa umsókn til baka og fara um leið að snúa okkur að því að leysa þau mál sem skipta einhverju máli???????
mbl.is Spáir „makrílstríði" við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓTRÚLEGUR ORÐHENGILSHÁTTUR RÁÐHERRA Í "KASTLJÓSINU" Í KVÖLD!

Að horfa á viðtal Helga Seljan við Gylfa Magnússon Efnahags- og Viðskiptaráðherra í kvöld, var vægast sagt óskemmtileg upplifun.  Þar var Gylfi eins og óknyttastrákur sem er staðinn að strákapörum, en hann skammast sín ekki meira en það að hann reyndi að þræta fyrir gjörninginn og snúa út úr fyrir stjórnandanum en Helgi sýndi það þarna að það er ekki alveg fyrir hvern sem er að snúa á hann og komast með klækjum hjá því að svara því sem um er spurt.  Svo er það alveg sér kapítuli út af fyrir sig að topparnir í "ríkisstjórn fólksins" keppast við að segja að þeir hafi EKKI VITAÐ um þetta lögfræðiálit; HVERSU TRÚVERÐUGT ER ÞAÐ OG VEIT ÞETTA FÓLK NOKKUÐ HVAÐ ER AÐ GERAST Á ÍSLANDI??????
mbl.is Ranglega vitnað í ræðu ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÚN ÆTLAR AÐ VERÐA LÍFSEIG ÞESSI GAMLA KJAFTASAGA!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Að menn skuli "nenna" að eltast við þessa gömlu kjaftasögu er alveg með ólíkindum.  Þessi "NÝJU SÖNNUNARGÖGN" sem eru boðuð SJÁ HÉR eru svo með ólíkindum að það er ótrúlegt að nokkur skuli taka mark á þessu.  Allir skynsamir menn/konur sjá það að einhver staðgengill gæti ekki hafa gert allt það sem Paul McCartney hefur gert eftir 1966.

EF ÞETTA ER EKKI LÝÐSSKRUM ÞÁ ER LÝÐSKRUM EKKI TIL!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Það ætti kannski að kynna sér hlutina áður en farið er að tala um þá og þannig að opinbera vanþekkingu sína.  Þannig er að OR kaupir flugeldasýninguna, sem hefur verið lokaatriðið á menningarnótt af Björgunarsveitunum og með því er björgunarstarf styrkt í landinu.  Borgarstjóri ætti kannski að einbeita sér að einhverjum öðrum liðum Menningarnætur, sem EKKI hafa neitt sérstakt samfélagslegt gildi.
mbl.is Flugeldasýningin bruðl?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband