Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011

ÞETTA HEFUR VERIÐ LJÓST LENGI................................

Spurningin er einungis þessi; "HVERSU LENGI ÆTLAR FÓLKIÐ Í LANDINU AÐ LÁTA BJÓÐA SÉR ÞETTA"???????????????????
mbl.is Meiri áhersla á banka en heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BYRJAR SAMA VITLEYSAN..............................

Það hefur margoft komið fram að "stýrivextirnir" HAFA ENGIN áhrif á verðbólguna.  Í þetta litlu hagkerfi sem við búum við eru "stýrivextirnir" engin áhrifavaldur, þeir eru jú hugsaðir til að stýra neyslu og eftirspurn eftir fjármagni, EN GERA ÞEIR ÞAÐ????????????????
mbl.is Seðlabankinn hækkar vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALLT GENGUR SAMKVÆMT ÁÆTLUN...............................

Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart því allt frá heimstyrjöldinni fyrri hefur það verið yfirlýst markmið að sameina alla Evrópu undir eina stjórn.  Eftir tvær heimstyrjaldir varð Þjóðverjum það ljóst að þetta gengi ekki eftir með hervaldi og því var farin sú leið, eftir seinni heimstyrjöldina, að ná fram "sameiningunni" undir yfirvarpinu "friður".  Það má alveg segja forsvarsmönnum þessa verkefnis til hróss að þeim hefur gengið mun betur með þetta heldur en honum Adolf gamla Hitler og er bara allt útlit fyrir að það ætli að takast að teyma megnið af Evrópu í þessa vegferð.  En nú eru blikur á lofti og kannski eru menn að átta sig á blekkingunni og eitthvað sé nú farið að falla á glæsileika "þúsund ára ríkisins" (sameinaða Evrópu) hans Hitlers gamla.
mbl.is Nánari samvinna evruríkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR EKKI SAGT AÐ VIÐ FENGJUM ALDREI EINA EINUSTU KRÓNU AÐ LÁNI EF VIÐ SAMÞYKKTUM EKKI AÐ GREIÐA ICES(L)AVE???????

Og meira að segja er svo komið að það er talað um að "stjórnmálaástandið", það er bara undir rós verið að segja að það verði að losna við "ríkisstjórn fólksins", þá fari atvinnulífið af stað og kannski verðum við svo heppin að fá Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn til að stjórna landinu aftur..................
mbl.is Hafa mikinn áhuga á að lána til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MEÐALTAL Á EKKI VIÐ Í ÞESSU TILFELLI.....................

Reyndar er það svo að meðaltal á mjög sjaldan við t.d ef þú ert með annan fótinn í fötu með brennandi heitu vatni og hinn fótinn í fötu með ísvatni - þá er nú hæpið að segja að þú hafir það að meðaltali bara alveg ágætt.  Sama má segja um evrulandið, miðað við þau efnahagslegu vandræði sem jaðarríki evrulandsins hafa átt við að stríða, má teljast kraftaverk að það skuli yfirhöfuð mælast nokkur hagvöxtur í evruríkjunum.  Eins og áður segir þá er algjörlega GALIÐ að beita einföldu meðalti í þessu tilfelli.
mbl.is Minni hagvöxtur á evru-svæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEGAR MÚRARNIR HRYNJA...................................

Verður lítið um varnir og stjórnarliðarnir hafa engin trúverðug rök lengur fyrir því að halda innlimunarumsókninni til streitu................
mbl.is Vilja ekki ræða efnahagsvanda evruríkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"THE GREAT EUROPEAN RIP - OFF"

Hef undanfarna daga verið að lesa bók, sem ég keypti á Amazon en hún heitir: "THE GREAT EUROPEAN RIP - OFF" How the Corrupt, Wasteful EU is taking Control of Our Lives.  Eftir þá Dr. David Craig og Matthew Elliot.  Ég tek það fram að ég er og hef verið á móti innlimun landsins í ESB en eftir lestur bókarinnar er ég alveg GRJÓTHARÐUR andstæðingur innlimunnar landsins í ESB.  Þarna fékk ég staðfestingu á mörgu neikvæðu um ESB en einnig er það að ef aðeins FIMM PRÓSENTaf því sem er sagt um ESB, í þessari bók á við rök að styðjast, þá er full ástæða til þess fyrir okkur Íslendinga (og marga fleiri) að láta ekki þetta skrímsli sem ESB er ná tangarhaldi á okkur.  Það er affarasælast fyrir okkur að draga innlimunarumsóknina til baka og ekki svo mikið sem að gjóa augunum í átt til Brussel aftur.................
mbl.is Vilja Grikki af evrusvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER EITTHVAÐ MIKIÐ AÐ.............................

Það er þungbært að sjá þessar myndir en við verðum að skoða ástæðurnar fyrir því að þetta er svona.  Gjaldtakan fyrir sorpförgun er orðin með ólíkindum.  Kunningi minn fékk um daginn "dugnaðarkast" og tók sig til og lagaði til í bílskúrnum hjá sér.  Þegar yfir lauk var hann búinn að fylla jeppakerru af alls konar drasli til að henda, hann sorteraði þetta rusl eins og hann hélt að ætti að gera og fór svo í Sorpu í Hafnarfirði til að henda þessu drasli.  Þá fyrst byrjaði fjörið, þetta var ekki "rétt" flokkað hjá honum og svo fyrir það að henda þessu átti hann að greiða rúmlega 22.000  krónur, þegar þarna var komið var honum öllum lokið hann hafði búist við því að þetta yrðu um fimm þúsund krónur og hefði fundist það allt í lagi en ef hann hefði grunað þetta hefði hann nú bara farið með þetta rusl út í hraun, eins og aðrir virðast hafa gert.  Kannski ástæðan fyrir þessum sóðaskap liggi að einhverju leiti í þessu?????
mbl.is Yfirgengilegur sóðaskapur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞARNA FER VERÐUGUR TALSMAÐUR ALMENNINGS...............

Eygló Harðardóttir hefur alveg síðan hún settist á alþingi, vaxið alveg gríðarlega og verið skelegg og málefnaleg í málflutningi sínum.  Hún hefur mjög oft vakið máls á hlutum sem betur mættu fara og unnið vel fyrir almenning þessa lands.  Almenningur í þessu landi væri mun betur settur ef fleiri væru á þingi eins og Eygló Harðardóttir.
mbl.is Vill draga úr valdheimildum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓSANNGJÖRN ÚRSLIT..........................

Ég held að flestir, sem sáu leikinn nema einhverjir gallharðir KR-ingar, geti verið sammála mér um það. En því miður virðist það vera svo í fótboltanum að þar er mjög lítil sanngirni á ferðinni og það er ekki spurt að því hvort liðið inni á vellinum hafi verið BETRA og átt fleiri færi heldur er eingöngu spurt að því hvort liðið SKORAÐI FLEIRI MÖRK og þar með NÝTTI færin sín.  Í þessum leik voru það KR-ingar sem skoruðu TIL HAMINGJU........ 
mbl.is Skúli: Sláin gerði gæfumuninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband