Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011

SPURNINGIN ER FREKAR UM FORGANGSRÖÐUNINA............................

Og svo afhjúpast enn á ný ágreiningurinn milli stjórnarflokkanna, Ögmundur segir að ekki sé til fjármagn en Kristján Möller segir að fjármagn sé ekki vandamál.  Hver fer með rangt mál???  Svo er náttúrulega þetta með forgangsröðunina.  Það eru mjög skiptar skoðanir um það hversu "nauðsynleg" framkvæmd Vaðlaheiðargöngin séu.  Menn á Akureyri hafa sagt að ef Víkurskarðið er ófært, sem kemur nú ekki oft fyrir, þá sé allt ófært fyrir austan þau þannig að menn séu bara stopp þegar þeir kæmu út úr göngunum austan megin. Það virðast vera til nægir peningar til að "kasta" í "innlimunarumsóknina" inn í ESB og svona mætti lengi telja......


mbl.is Peningar fyrir göngum ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim ER alls varnað..................

Þetta aflóga lið getur ekki einu sinni komið sér saman um að byggja fangelsi, sem þó er fyrir löngu kominn tími á.  Það eru 14 ár síðan Síðumúlafangelsinu var lokað og þá átti að flytja gæsluvarðhaldsfanga austur á Litla Hraun til bráðabirgða en það hefur "aðeins" teygst úr bráðabirgðalausn.  Vissulega hafa verið fleiri ríkisstjórnir á þessum tíma en forgangsröðunin hjá þessari "ríkisstjórnarónefnu" hefur verið svo með ólíkindum að þeir sem fylgjast með hljóta að spá í hver sé eiginlega andleg heilsa forráðamanna þessarar ríkisstjórnar bruðlið og sóunin á sumum sviðum er svo gegndarlaust á meðan algjört fjársvelti er á öðrum sviðum, ber þar helst að nefna milljarða fjáraustur í "innlimunarumsókn í ESB" á meðan ekki er hægt að halda út almennilegri landhelgisgæslu hér við land og ekki hægt að byggja þokkalegt fangelsi.  Fari svo að Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða-Móri fari fyrir landsdóm og verði dæmd til fangelsisvistar, þá þurfa þau svosem ekki að vera hrædd um að þau verði sett saman í klefa vegna plássleysis í fangelsum..... lögin koma í veg fyrir að fólk af sitt hvoru kyninu sé í sama fangelsi en kannski þyrftu þau að bíða eitthvað með afplánun vegna skorts á fangelsisplássum.  Kannski er verið að horfa til þess???
mbl.is Rætt um að breyta Víðinesi í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALVEG ER ÞAÐ MAGNAÐ AÐ "RÍKISSTJÓRN FÓLKSINS" SKULI ENN NJÓTA EINHVERS STUÐNINGS

En það virðist vera að nokkrir "hundtryggir" fylgismenn ríkisstjórnarflokkanna, annað hvort sjái ekki eða horfi framhjá þeirri stöðnun og hrörnun, sem þau skötuhjú Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða-Móri standa fyrir að öðrum kosti væri fylgið við ríkisstjórnina 0% eins og eðlilegt væri miðað við aðgerðir/aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar.
mbl.is Rúmlega þriðjungur styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ALLT OPIÐ OG GAGNSÆTT OG ALLT UPPI Á BORÐINU"...............

Var það ekki einhvern veginn svona sem stjórnsýslan átti að vera hjá þeim Heilagri Jóhönnu og Gunnarsstaða-Móra, þegar þau kæmust til valda???????????  En raunin varð sú að það hefur aldrei verið annað eins pukur og baktjaldamakk, en eftir að þau komust í að "hanga" í stjórnartaumunum (því ekki hefur þeim tekist að stjórna einu eða neinu.  Það eina sem þau hafa gert er að senda "innlimunarumsóknina" í ESB frá sér, fer nú tvennum sögum af því hversu mikið afrek það er).  Gunnarsstaða-Móri er búinn að gera ENN EITT axarskaftið af sér.  Það sem gæti bjargað þessu er að þingið á eftir að fjalla um málið en ekki er samt ólíklegt að hann sé að "reyna að finna leið" til að komast framhjá þinginu með þetta eins og hann hefur áður reynt (þingið átti nú að samþykkja Ices(L)ave 1, óséð).  Ef það er einhver ástæða til að draga einhvern fyrir landsdóm eru það þau skötuhjú Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða-Móri..................
mbl.is „Leyndarhyggjan allsráðandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER HÚN ÞÁ ORÐIN LÉTTLYND NÚNA????????????????

Eða er þessi frétt bara frekar klaufalega orðuð????????????
mbl.is Kirsten Dunst barðist við þunglyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"VINIR" OKKAR OG FRÆNDUR - NORÐMENN KLIKKA EKKI...............

Kannski skiptir þetta litlu máli, því ég held nú að makrílafla sé nú ekki mikið landað í Noregi.  Sýnir þetta ekki aðallega hversu fast Norðmenn standa á "sínu"?????
mbl.is Löndunarbann á makríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband