Þeim ER alls varnað..................

Þetta aflóga lið getur ekki einu sinni komið sér saman um að byggja fangelsi, sem þó er fyrir löngu kominn tími á.  Það eru 14 ár síðan Síðumúlafangelsinu var lokað og þá átti að flytja gæsluvarðhaldsfanga austur á Litla Hraun til bráðabirgða en það hefur "aðeins" teygst úr bráðabirgðalausn.  Vissulega hafa verið fleiri ríkisstjórnir á þessum tíma en forgangsröðunin hjá þessari "ríkisstjórnarónefnu" hefur verið svo með ólíkindum að þeir sem fylgjast með hljóta að spá í hver sé eiginlega andleg heilsa forráðamanna þessarar ríkisstjórnar bruðlið og sóunin á sumum sviðum er svo gegndarlaust á meðan algjört fjársvelti er á öðrum sviðum, ber þar helst að nefna milljarða fjáraustur í "innlimunarumsókn í ESB" á meðan ekki er hægt að halda út almennilegri landhelgisgæslu hér við land og ekki hægt að byggja þokkalegt fangelsi.  Fari svo að Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða-Móri fari fyrir landsdóm og verði dæmd til fangelsisvistar, þá þurfa þau svosem ekki að vera hrædd um að þau verði sett saman í klefa vegna plássleysis í fangelsum..... lögin koma í veg fyrir að fólk af sitt hvoru kyninu sé í sama fangelsi en kannski þyrftu þau að bíða eitthvað með afplánun vegna skorts á fangelsisplássum.  Kannski er verið að horfa til þess???
mbl.is Rætt um að breyta Víðinesi í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þörfin á nýju gæsluvarðhaldsfangelsi hefur legið ljós fyrir allar götur síðan Múlanum var lokað. Allan þann tíma hefur staðið yfir umræða um fangelsisbyggingu, teikningar gerðar og alles, nema ekkert gerðist. Þetta var þó á þeim tíma sem okkur var sagt að smjör drypi af hverju strái fyrir visku stjórnvalda.

Múlanum var lokað 1996 þá var B og D við völd og D alveg fram til 2009. General Björn Bjarnason var ráðherra allan þann tíma og dómsmálaráðherra síðustu 7 árin, ekki vantaði spekúlerasjónirnar, athuganir og yfirlýsingarnar um að allt væri þetta að koma, sem ekki kom.

Af hverju gat þetta lið ekki komið sér saman um byggingu fangelsis á þessum 13 árum, þegar allt var best og blíðast?

Svo standa BB og hvolparnir hans á gjammandi hliðarlínunni og gagnrýna að núverandi ríkisstjórn skuli ekki hafa rifið upp fangelsi á tveggja ára valdatíma sínum, í mestu þrengingum sem  þjóðin hefur staðið frammi fyrir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2011 kl. 09:52

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Við getum ekki alltaf bara verið að horfa í baksýnisspegilinn.  Ég sagði það í færslunni að vissulega hefðu verið ríkisstjórnir á undan þessari, en vegna dugleysis fyrri valdhafa er vandamálið til staðar NÚNA og t.d. með því að draga "innlimunarumsóknina" til baka verða til peningar í nýtt fangelsi.  Það virðist fyrst og fremst vera forgangsröðunin hjá þessari ríkisstjórnarómynd sem er galin og svo er náttúrulega dugleysi og samstöðuleysi að há henni líka...................

Jóhann Elíasson, 3.8.2011 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband