SPURNINGIN ER FREKAR UM FORGANGSRÖÐUNINA............................

Og svo afhjúpast enn á ný ágreiningurinn milli stjórnarflokkanna, Ögmundur segir að ekki sé til fjármagn en Kristján Möller segir að fjármagn sé ekki vandamál.  Hver fer með rangt mál???  Svo er náttúrulega þetta með forgangsröðunina.  Það eru mjög skiptar skoðanir um það hversu "nauðsynleg" framkvæmd Vaðlaheiðargöngin séu.  Menn á Akureyri hafa sagt að ef Víkurskarðið er ófært, sem kemur nú ekki oft fyrir, þá sé allt ófært fyrir austan þau þannig að menn séu bara stopp þegar þeir kæmu út úr göngunum austan megin. Það virðast vera til nægir peningar til að "kasta" í "innlimunarumsóknina" inn í ESB og svona mætti lengi telja......


mbl.is Peningar fyrir göngum ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Rétt með ESB en Vaðlaheiðargöngin eru einkaframkvæmd og munu kosta þannig að það ætti ekki að stöðva aðrar framkvæmdir.

Sigurður Haraldsson, 4.8.2011 kl. 10:07

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ertu að segja Sigurður að Vaðlaheiðargöngin "verði" 100% fjármögnuð úr "einkageiranum" og eigi þannig að standa undir fjármagnskostnaðinum með vega-innheimtunni einni saman  ... það held ég nú varla ?

Jón Snæbjörnsson, 4.8.2011 kl. 11:15

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður, hvort sem Vaðlaheiðargöngin eru einkaframkvæmd eða ekki er nauðsyn þeirra jafn umdeild.  Og  með einkaframkvæmd er aðeins átt við að FRAMKVÆMDIN verði fjármögnuð af einkaaðilum en hönnun og önnur undirbúningsvinna er greidd af hinu opinbera.

Jóhann Elíasson, 4.8.2011 kl. 11:46

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sælir já hönnunin og undirbúningur að Vaðlaheiðargöngum er nú þegar langt komin svo að þar tapast talsverður peningur ef ekki verður af þeirri framkvæmd.

Sigurður Haraldsson, 4.8.2011 kl. 13:02

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki er hægt að segja að peningar vegna hönnunar og undirbúnings TAPIST þó framkvæmd tefjist.......

Jóhann Elíasson, 4.8.2011 kl. 13:10

6 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Ekki held ég að mörgum úr hinni svokölluðu "sjórn" yrði treyst til að reka almennt heimili ef þeir byrja alltaf á að hætta að fara til læknis en flytja í staðin í stærra húsnæði og fara á fyllerí um hverja helgi.

Óskar Guðmundsson, 4.8.2011 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband