Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2013

ÞAÐ DUGIR EKKI TIL...........

Svo rækilega "stimpluðu" Vinstri flokkarnir sig út úr pólitíkinni á síðasta kjörtímabili í landsmálunum.  Það er kannski smá glufa í sveitastjórnarpólitíkinni og þá að fólk sé búið að gleyma verkum R-listans í Reykjavík á sínum tíma.  EINS OG ÉG SAGÐI ÁÐUR ÞÁ ER ENGINN MÖGULEIKI Í LANDSMÁLUNUM OG ÉG HELD AÐ ÁRNI ÞÓR GERI SÉR GREIN FYRIR ÞVÍ, EN ÞAÐ GÆTI VERIÐ AÐ FÓLK LÉTI GLEPJAST Á SVEITASTJÓRNARSTIGINU...................
mbl.is Vill kosningabandalög vinstriflokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SPA KLIKKAR EKKI..............

Þær gerast ekki meira spennandi tímatökurnar í formúlunni en þessi var í dag.  Fyrsti hlutinn byrjaði með hellirigningu og það sem var athyglisverðast þar var að einn ökumaður hjá Caterham liðinu og tveir hjá Marushia komust í aðra umferð með því að verða fyrstir til að skipta yfir á "slikkana" og er þarna besti áarangur þessara liða í tímatöku, í það minnsta þetta árið.  Önnur umferð var alveg þurr en það sem vakti helst athygli þar og sýnir hversu aðstæður á brautinni breyttust hratt, að báðir Williams bílarnir náðu fyrsta og öðru sæti í byrjun en  þeir komust hvorugur í þriðju umferð tímatökunnar.  Rétt áður en þriðja umferð byrjaði, fór að rigna.  Það myndaðist löng röð því allir ætluðu sér að ná "góðum" hring áður en þeir yrðu að skipta yfir á milliregndekkin, það gekk ekki eftir og menn komu inn á þjónustusvæðið í dekkjaskipti.  En Paul Di Resta hjá Force India hafði tekið sénsinn á að fara strax yfir á milliregndekkin og virtist það ætla að skila honum ráspól en alveg í restina bötnuðu aðstæður svo mikið að hann endaði í fimmta sæti þegar upp var staðið.

En viðtalið sem Eddie Jordan átti við Cristian Horner (stjóra Red Bull) var alveg kostulegt litlu munaði að Eddie tækist að fá það út úr  Horner hver það yrði sem yrði næsti ökumaður með Vettel, en gekk ekki alveg en það náðist þó upp úr honum að það yrði sennilega tilkynnt eftir Monza kappaksturinn.  En það kom í ljós að eitthvað hafði hann rætt við Alonso þótt hann vildi gera sem minnst úr því.  En Eddie Jordan var með það alveg á tæru að búið væri að semja við Riccardo um að koma til Red Bull og Kimi Raikkonen færi til Ferrari.


mbl.is Fjórði ráspóll Hamiltons í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MAKRÍLDEILAN Á EFTIR AÐ VERÐA ESB DÝRKEYPT..............

Ætlar ESB þá að beita viðskiptaþvingunum á Færeyjar, Ísland og Grænland.  Staða Danmerkur innan ESB verður þá ansi "áhugaverð"..................
mbl.is Grænlendingar auka makrílkvóta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞVÍ MIÐUR ER "INNLIMUNARUMSÓKNIN" ENN Í FULLU GILDI................

Þótt gert hafi verið "hlé" á viðræðunum og vonandi "slaufar" nýr Utanríkisráðherra þessu bulli í eitt skipti fyrir öll..........
mbl.is Umsóknin hefur ekki verið afturkölluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Móse, Jesú og gamall maður eru að leika golf saman.
Þeir koma að par 3 þar sem fallegt vatn umlykur flötina.
Móses stillir upp og neglir beint út í vatnið. Við það lyftir hann upp höndum og
skilur vatnið í sundur, finnur boltann sinn og slær beint inn á flötina.
Næstur stillir Jesú upp og slær út í vatnið. Hann gengur út á vatnið og þegar
hann er kominn að þeim stað er kúlan fór ofan í, flýtur hún upp á yfirborðið og
hann slær inn á flötina.
Þá er komið að gamla kallinum. Hann þrumar kúlunni beint út í vatnið, en í því
sem hún er að lenda í vatninu grípur silungur hana. En um leið steypir fálki
sér niður og grípur silunginn. Fálkinn flýgur af stað með fenginn en þegar hann
er yfir flötinni kemur elding úr heiðskýrum himninum og lendir í baki hans.
Hann missir silunginn sem lendir á flötinni og kúlan rúllar úr kjafti fisksins
og beint í holuna. Hola í höggi.
Jesú lítur yfir á gamla manninn og tautar ,,Fjandinn hafi það pabbi, getur þú
ekki spilað golf eins og allir aðrir.


EKKI VAR UM LÖG AÐ RÆÐA ÞEGAR INNLIMUNARUMSÓKNIN VAR SEND INN.....

INNLIMUNARUMSÓKNIN var ekki samþykkt sem LÖG frá Alþingi, í júní 2009, því eru núverandi stjórnvöld EKKI bundin af þessari ákvörðun þar að auki var þessi  ákvörðun þvinguð fram með ofbeldi og hótunum (kannski eru harðir INNLIMUNARSINNAR búnir að gleyma framgöngu fyrrverandi forsætisráðherra þegar þetta mál var til umfjöllunar í þinginu????).  Gunnar Bragi Sveinsson er heldur betur að taka til eftir forvera sinn í utanríkisráðuneytinu og veitti ekki af................
mbl.is Þingsályktun um ESB ekki bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FINNST MÖNNUM ÞÁ Í LAGI AÐ FREMJA GLÆP TIL AÐ AFHJÚPA ANNAN GLÆP?????

Þessi dómur, þykir mér bara mjög vægur, miðað við glæpinn sem var framinn.  Þarna er bara hreinlega verið að tala um landráð.................
mbl.is Birgitta vonsvikin með dóminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG HANN VERÐUR HLÆGILEGRI MEÐ HVERJU ÁRINU SEM LÍÐUR........

Sem betur fer sér fyrir endann á þessu kjörtímabili en það eru samt horfur á því að borgarbúar kjósi þennan trúð yfir sig aftur................
mbl.is Starfið að verða skemmtilegra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ESB AÐ SJÁ UM OG ÁKVEÐA HVAÐ SÉU SJÁLFBÆRAR VEIÐAR?????

En það eftirlit á eingöngu að ná til "smáríkja" en Rússar eru greinilega undanþegnir öllum reglum ESB enda eru líkur á að ESB myndi tapa mun meiru á einhverjum svona aðgerðum en Rússar.  Er  ekki orðið nokkuð ljóst að Ísland hefur EKKERT að gera inn í þetta MIÐSTÝRÐA ÞVINGUNARBATTERÍ.............
mbl.is Bann ESB tekur gildi eftir viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EKKI LÁGMARK AÐ ÞINGMENN ÞEKKI LANDSFUNDARÁLYKTANIR FLOKKA SINNA????

Ekki virðist Ragnheiður Ríkharðsdóttir, hafa haft mikið fyrir því að kynna sér landsfundarályktun þess flokks sem hún situr á þingi fyrir.  Það væri náttúrulega eðlilegt að hún segði sig hið snarasta úr Sjálfstæðislokknum og gengi til liðs við LANDRÁÐAFYLKINGUNA, þar sem hún á heima..............
mbl.is Þjóðaratkvæði sjálfstæð ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband