Á ESB AÐ SJÁ UM OG ÁKVEÐA HVAÐ SÉU SJÁLFBÆRAR VEIÐAR?????

En það eftirlit á eingöngu að ná til "smáríkja" en Rússar eru greinilega undanþegnir öllum reglum ESB enda eru líkur á að ESB myndi tapa mun meiru á einhverjum svona aðgerðum en Rússar.  Er  ekki orðið nokkuð ljóst að Ísland hefur EKKERT að gera inn í þetta MIÐSTÝRÐA ÞVINGUNARBATTERÍ.............
mbl.is Bann ESB tekur gildi eftir viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vandinn hér er sá að ef Færreyingar auka sínar veiðar þá verða Íslendingar að minnka sínar á móti. Við veiðum nef ilega úr þessum stofni líka og eigum aðild að samningi um aflaskiptingu. Eru það okkar hagsmunir að veiðar á síld verði stjórnlausar?

Sigurður (IP-tala skráð) 20.8.2013 kl. 14:31

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er einhver að tala um stjórnlausar veiðar, Sigurður?????  En finnst þér allt í lagi að ESB taki sér vald til að stjórna veiðunum????

Jóhann Elíasson, 20.8.2013 kl. 15:57

3 identicon

Færeyingar stórjuku kvóta sinn án samþykkis Íslendinga og annarra þjóða sem eiga þar hagsmuni og án þess að styðja þá ákvörðun með vísindalegum rökum. Ef þeir komast upp með það þá eru veiðarnar í raun stjórnlausar því hver sem er getur leikið þetta eftir og hættan er að þá hætti síldin að ganga í íslenska lögsögu. Þaðer auðvitað alveg lögmæt spurning hvort ESB eigi að stjórna veiðunum en ef ekki þeir, hver þá?

Sigurður (IP-tala skráð) 20.8.2013 kl. 16:57

4 identicon

Stjórnar ESB ósjálfbærum veiðum Grikkja, Spánverja, Frakka og Ítalíu á ógríni fisktegunda í Miðjarðarhafinu?

Ég er sammála Jóhanni- Íslendingar hafa ekkert inn í þetta bandalag að gera.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 20.8.2013 kl. 19:35

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það eru líka Norðmenn sem veiða úr Norsk-Íslenska síldarstofninum og hefur verið mjög erfitt samstarf við þá um hvernig eigi að deila veiðunum úr þessum stofni.   það er ekkert sem segir til um það hvað það er sem segir að ESB hafi lögsögu í málinu.  Það er alþjóðleg stofnun sem stýrir fiskveiðum á alþjóðavísu og er einhver ástæða til að breyta því???????????

Jóhann Elíasson, 20.8.2013 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband