Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2024
30.4.2024 | 11:18
HANN ER EKKI ALLTAF FYNDINN - NÚ ER HANN ORÐINN HLÆGILEGUR.....
Ég hef sagt það áður að þegar hann fór í borgarstjórnarframboðið var það fyndinn gjörningur og algjörlega í samræmi við ástandið í þjóðfélaginu á þeim tíma. En þetta framboð hans, til embættis forseta Íslands nær því ekki að vera fyndið heldur er það í besta falli hlægilegt. OG ÞÁ VERÐUR SPURNINGIN ÓHJÁKVÆMILEGA SÚ: "ÆTLI KLUKKAN HJÁ HONUM HAFI STOPPAÐ, ÞEGAR HANN FÓR Í BORGARSTJÓRNARFRAMBOÐIÐ"?????????
Jæja, Jón forseti bara mættur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.4.2024 | 09:31
FJÖGURRA TIL FIMM % FRÁVIK Í SKOÐANAKÖNNUN SEGIR NOKKUÐ TIL UM HVERSU MARKTÆK HÚN ER......
Það er náttúrulega ekki að ástæðulausu að í allri tölfræðikennslu er EKKI haft fyrir því að kenna aðferðir við gerð skoðanakannana, sem eru með MINNA en 95% öryggi (með meira en +/- 5% frávik). Nú hef ég fylgst með skoðanakönnunum, í tengslum við hinar ýmsu kosningar í gegnum árin og þróunin hefur verið sú að ÁREIÐANLEIKI SKOÐANAKANNANNA hefur verið á stöðugri niðurleið, ENDA GET ÉG EKKI SÉÐ AÐ "AÐFERÐAFRÆÐIN" VIÐ GERÐ ÞEIRRA BJÓÐI UPP Á ANNAÐ EN AÐ MARKTÆKNI ÞEIRRA MINNKI. Þá vaknar spurning þess efnis "HVORT SKOÐANAKANNANIR SÉU EKKI OF STÓR ÁHRIFAVALDUR HÉR Á LANDI Í ÖLLUM KOSNINGUM"? Kannski væri ráð að takmarka birtingu þeirra eitthvað eða bara hreinlega að banna þær þegar eru um það bil tvær vikur til kosninga.
Svo er annað mál: ER EKKI MÁL TIL KOMIÐ AÐ HALLA HRUND LOGADÓTTIR, HALLA TÓMASDÓTTIR OG KATRÍN JAKOBSDÓTTIR, GERI GREIN FYRIR TENGSLUM SÍNUM VIÐ WORLD ECONOMIC FORUM????????
Halla Hrund tekur forystu í könnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.4.2024 | 10:18
"HÁTT GLYMUR Í TÓMRI TUNNU" - SUMIR ÆTTU AÐ LÝTA SÉR NÆR........
Ekki man ég eftir að hafa lesið NEIN ummæli um fyrrverandi Forsætisráðherra, sem ekki áttu sér stoð í raunveruleikanum (og ekki virðist hafi verið vanþörf á að minna fólk á gjörðir hennar en það virðist falla undir HATURSORÐRÆÐU). Hins vegar rifjast upp fyrir mér nokkur ummæli, sem umræddur "fjölmiðlamaður" hefur látið falla um Kristján Loftsson í tengslum við hvalveiðar, sem kannski þarfnast skoðun, sem HATURSFULL ummæli og hvort einhver "sannleikur er þar að baki.......
Ósáttur með hatursfulla og illgjarna umræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2024 | 14:43
ÞAÐ VÆRI KANNSKI EKKI SVO VITLAUST AÐ ATHUGA HVERSU HÁIR STÝRIVEXTIR VORU Í JANÚAR 2022.....
Og athuga hvert "raunverulegt" samband STÝRIVAXTA og VERÐBÓLGU sé? Er ekki rétt að fara yfir það hvaða þætti vextir hafa áhrif? Jú þeir hafa fyrst og fremst áhrif á NEYSLU en NEYSLA skiptist í tvo þætti í hagfræðinni það er EINKANEYSLA og SAMNEYSLA, einkaneysla er samkvæmt skilgreiningu hagfræðinnar neysla almennings á landinu. Það er yfirleitt EKKI mælt með því að almenningur taki lán fyrir neyslu sinni þó svo að vissulega séu dæmi fyrir því. Af heildarneyslunni er EINKANEYSLAN aðeins lítill hluti af heildarneyslunni, ef tekið er lán fyrir hluta þessara neyslu er að sjálfsögðu ekki um neitt annað að ræða en að taka þau lán hér innanlands og afskaplega hæpið að halda því fram að sú lántaka sé VERÐBÓLGUHVETJANDI. Öðru máli gegnir um SAMNEYSLUNA, þar er um OPINBERA NEYSLU að ræða (heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, löggæslu og fleira). SAMNEYSLAN er fíllinn í postulínsversluninni, útgjöld hins opinbera hafa AUKIST ALVEG GÍFURLEGA SÍÐUSTU ÁR og það sem er alvarlegast er það að ÖLL ÞESSI AUKNING OPINBERRA ÚTGJALDA ER TEKIN AÐ LÁNI OG ÞAÐ ER ÞAÐ SEM VELDUR VERÐBÓLGUNNI. HVER SKYLDI ÁSTÆÐAN VERA FYRIR ÞVÍ AÐ VERÐBÓLGA HÉR ER HÆRRI EN Í NÁGRANNALÖNDUNUM? JÚ Í SINNI EINFÖLDUSTU MYND ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ VERÐBÓLGA SKAPIST VIÐ ÞAÐ AÐ VIÐ EYÐUM MEIRU EN VIÐ ÖFLUM. Síðustu árin og síðustu áratugina hafa hagfræðingar verið að reyna að átta sig á því almennilega hvað VERÐBÓLGA er í rauninni og hvað það er sem raunverulega veldur henni. Ef við rennum stuttlega yfir söguna sjáum við að hún einkennist nokkuð mikið , fyrstu árin, af tilraunastarfsemi og tilgátum til dæmis voru á árunum 1960-1980 voru hagfræðingar mjög uppteknir af að sýna fram á tengst verðbólgu og atvinnuleysis, seinna kom svo Milton Friedman með hina svokölluðu PENINGAMAGNSKENNINGU sem átti að leysa endanlega verðbólguvandann og varð sú kenning nánast heilög nokkuð lengi, næst var farið að tengja saman STÝRIVEXTI og VERÐBÓLGU og var sú tilgáta talin rétt og óumdeild þar til upp úr 2010 en þá fóru að koma fram efasemdarraddir og ýmsir virtir hagfræðingar eins og Krugman, Taylor, Mankiw og fleiri fóru að koma með verulegar athugsemdir við þessa kenningu og Stieglitz skaut þetta endanlega niður. Stundum fæ ég það á tilfinninguna sumir telji það að þegar þeir útskrifist úr einhverju námi, séu þeir BÚNIR að læra, hendi ÖLLUM námsbókum og hætti að fylgjast með öllum framförum í þeirri grein sem þeir menntuðu sig í og loki sig af í einhverjum fílabeinsturni þar sem þeir geta bara verið í friði fyrir almenningi.........
Telur forsendur fyrir vaxtalækkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.4.2024 | 06:01
GLEÐILEGT SUMAR........
Veðrið eins og það er núna gefur góð fyrirheit og ekki ástæða til annars en að vera bjartsýnn á framhaldið.....
Lokanir í miðbænum á sumardaginn fyrsta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.4.2024 | 13:05
VERÐBÓLGAN LÆKKAR EN VEXTIR HÆKKA????????
Í mínum huga gengur þetta ekki alveg upp. Rennir þetta kannski stoðum undir það EKKERT samband sé á milli "STÝRIVAXTASTIGS" og "VERÐBÓLGU", heldur sé orsök verðbólgu EINGÖNGU hægt að rekja til OF MIKILLA OPINBERRA ÚTGJALDA OG ÓSTJÓRNAR Í OPINBERUM FJÁRMÁLUM?????????
Arion banki hækkar vexti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eftir að ég rak augun í þessa fyrirsögn, varð ég svo gáttaður á þessar fullyrðingu, að ég lagði það á mig að hlusta á þetta viðtal. Og það er ekki annað hægt að skilja á þessu viðtali EN AÐ HÚN TRÚI ÞESSU BULLI Í SÉR SJÁLF OG ÞAÐ EINS OG NÝJU NETI. Kannski er hún bara góður leikari (en við nánari athugun sé ég að það getur ekki verið því þá væri hún frekar í Þjóðleikhúsinu eða í Borgarleikhúsinu)? NEI EFTIR AÐ HAFA HORFT Á ÞETTA VIÐTAL ER ÉG ORÐINN ÞESS FULLVISS AÐ HÚN ER BARA ÓFORSKÖMMUÐ OG ÞAÐ HÆTTULEGA ÓFORSKÖMMUÐ. En ég hlýt að fordæma þátt Morgunblaðsins í að "HALDA" þessari manneskju svona mikið fram eins og raun ber vitni og að taka þátt í að "fela" aðra frambjóðendur en þá þrjá - fjóra sem eru efstir samkvæmt "skoðanakönnunum". VÆRI EKKI RÁÐ AÐ ÍSLENDINGAR HÆTTI Ð LÁTA SEGJA SÉR AÐ ÞEIR "EIGI" AÐ KJÓSA EINHVERJAR DAVOS-DÚKKULÍSUR HELDUR KJÓSI EINSTAKLING SEM ER LÍKLEGUR TIL AÐ VINNA FYRIR LAND OG ÞJÓÐ OG STANDA VÖRÐ UM FULLVELDI LANDSINS........
Katrín: Jóhönnustjórnin talaði máli Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
22.4.2024 | 09:47
ER EKKI KOMINN TÍMI TIL ÞESS AÐ HÆTTA ÞESSU SKOÐANAKANNANAKJAFTÆÐI????
Það er náttúrulega alveg með ólíkindum að lesa þetta OG ÉG BARA VONA, LANDSMANNA VEGNA, AÐ ÞAÐ SÉ BARA LÍTIÐ SEM EKKERT AÐ MARKA ÞESSA SKOÐANAKÖNNUN, reyndar minnist ég þess frá því að ég var í námi í Noregi að prófessorinn sem kenndi okkur tölfræði, sagði að ÞAÐ VÆRI EKKERT AÐ MARKA SVONA PÓLIKTÍSKAR SKOÐANAKANNANIR, hann var að sjálfsögðu beðinn um að útskýra þessa skoðun sina og svarið var eftirfarandi;" JÚ FÓLK LÝGUR, ÞAÐ SEGIR BARA ÞAÐ SEM ÞAÐ HELDUR AÐ SPYRJANDINN VILJI HEYRA". Og svo er annað og jafnvel stærra mál; "sumir" tala nokkuð fjálglega um að þessar "stóru" kannanir séu "VÍSINDALEGAR" þennan þátt skulum við skoða aðeins og það svolítið GAGNRÝNIÐ. Til þess að skoðanakönnun geti kallast "vísindaleg" þarf hún að uppfylla nokkur skilyrði; hún þarf að túlka sem nákvæmast ALLA skiptingu þjóðfélagsins eftir aldri, búsetu eftir landshlutum, kyni og fleira og svo það sem er einna stærst er að það sé hægt að vinna TÖLFRÆÐILEGA úr þessum skoðanakönnunum OG SVO ERU VISS SKILYRÐI SEM TÖLFRÆÐIN GERIR VIÐ ÚRVINNSLUNA og segir til um hversu marktæk hún er. Og þar stendur hnífurinn í kúnni. Flestar þessar skoðanakannanir fara fram á "netinu", sem STRAX gerir það að verkum að þessar kannanir eru orðnar með öllu ómarktækar ÞVÍ STÓR HÓPUR ÞEIRRA HÓPA, SEM ÞESSAR "VÍSINDALEGU" KANNANIR EIGA AÐ TÚLKA, HAFA ENGAN MÖGULEIKA Á AÐ SVARA. Mér hefur verið sagt, af manni sem vinnur við úrvinnslu þessara gagna, að svörunin í mörgum þessara kannana sé svo slæm að það sé alveg á mörkunum að þær séu marktækar. En eru þá engar skoðanakannanir marktækar? Jú en að mínu áliti verður að taka ÞEIM ÖLLUM MEÐ FYRIRVARA, skoðanakannanir sem eru gerðar á Útvarpi Sögu endurspegla skoðanir hlustendahóp Útvarps Sögu eins og skoðanakannanir sem gerðar eru af DV endurspegla skoðanir lesendahóps DV og svo framvegis.........
Halla Hrund fer fram úr Jóni Gnarr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2024 | 09:22
ÁTTA TIL TÓLF ÁRA MARTRÖÐ FYRIR ÞJÓÐINA TELUR HÚN HÆFILEGAN TÍMA....
Til að koma landi og þjóð undir erlenda stjórn og í leiðinni að koma þjóðinni fyrir "kattarnef". Þetta er jú manneskjan sem sagðist ætla að skipta um "menningu" í landinu og bætti því við að það tæki jú tíma. Ég ef skoðað feril hennar sem forsætisráðherra og það setur að mér HROLL þegar ég hugsa til þess að landar mínir ætli að kjósa hana sem forseta lýðveldisins.....
Hyggst sitja í átta til tólf ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2024 | 14:25
ER NIÐURLÆGINGARTÍMABIL HAMILTONS ÞAR MEÐ AÐ HEFJAST???????
Reyndar held ég að það hafi hafist þegar hann tók ákvörðun um að ganga til liðs við Ferrari á næsta tímabili en jafnframt að keppa fyrir Mercedes þetta tímabil. Þetta tel ég að hafi verið ákvörðun, sem gerði það að verkum, að hann stútaði ferli sínum í Formúlunni algjörlega. Mercdes-lið er algjörlega hætt að leggja nokkra áherslu á hann sem sést best á því að Russel er búinn að "kaffæra" hann í ÖLLUM keppnum ársins og með sama áframhaldi verður stigasöfnunin ekki upp á marga fiska það sem eftir er af þessu tímabili. Og því miður, verð ég að segja því Ferrari er mitt lið. þá hefur Ferrari-bíllinn ekki náð þeim stöðugleika, sem þarf til þannig að það verðu erfitt fyrir hann að gera einhverja "rósir" þegar þangað er komið. Ég er hræddur um að Ferrari hafi gert stór mistök þarna.......
Versta byrjun Mercedes í Formúlu 1 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |