Hér í bæjarfélaginu er ALLT á heljaþröminni; húsnæðiseklan hefur aldrei verið meiri, biðraðirnar fyrir utan fjölskylduhjálpina, þar sem fólkið bíður í marga klukkutíma eftir matargjöfum og fleira og fleira. Ef það kemur einhver og biður sveitarfélagið um aðstoð þá er þeim sama vísað á fjölskylduhjálpina, því fjárhagur sveitarfélagsins er svo slæmur að ekkert er hægt að gera og svo kemur það besta:FJÁRHAGURINN ER SVO SLÆMUR AÐ EKKI ER HÆGT AÐ STYRKJA FJÖLSKYLDUHJÁLPINA UM EINA EINUSTU KRÓNU. En svo er hægt að taka á móti 350 hælisleitendum á árinu????? DÆMIÐ GENGUR EKKI ALVEG UPP Í MÍNUM HUGA OG HJÁ ÞEIM SEM ERU MEÐ ÖRLÍTIÐ MEIRA EN EKKERT Á MILLI EYRNANNA.........
Reykjanesbær tekur á móti 350 flóttamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.1.2023 | 09:12
ÚRSLITATILRAUN - OG HÚN ER ÞEGAR BÚIN AÐ "MOKA YFIR SIG"???????
Í aðdraganda samninganna var hún með gífuryrði og rauf þá litlu samstöðu sem var innan verkalýðshreyfingarinnar og til að bæta gráu ofan á svart gerði hún lítið úr þeim kjarasamningum, sem Vilhjálmur Birgisson gerði fyrir hönd Starfsgreinasambandsins, sem voru svo samþykktir af yfirgnæfandi meirihluta félagsmanna Stafsgreinasambandsins. Það veður ekki með nokkru móti séð að það sé nokkur einasti vilji hjá þessari öfgamanneskju til að semja um nokkuð einasta atriði á sæmileg skynsömum nótum. Og eins og staðan er núna má segja að það sé ÓLAN EFLINGAR AÐ HÚN SKULI VERA Í FORYSTU FÉLAGSINS, HÚN HEFUR ÞEGAR VALDIÐ MIKLUM SKAÐA OG Á EFTIR AÐ GERA MEIRA.........
Gera úrslitatilraun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2023 | 08:02
ÍSLENDINGAR VORU NOKKUÐ LANGT FRÁ ÞVÍ AÐ LEIKA SÉR AÐ EISTUNUM - HÖRMUNGIN HELDUR ÁFRAM....
Og enn heldur KSÍ dauðahaldi í þennan þjálfararæfil. Hvenær fá menn eiginlega nóg á þeim bæ?? Það mætti halda að það væri einhver hörgull á mönnum sem geta sinnt þessu starfi af einhverju viti? Getur verið að það vaxi mönnum eitthvað í augum að það þarf yfirleitt að borga þeim almennileg laun, sem standa sig þokkalega í starfi???????????
Ísland nældi í jafntefli gegn Eistlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.1.2023 | 14:02
STÆRSTA VANDAMÁL LANDSPÍTALANS ER EKKI FJÁRMÖGNUNIN HELDUR STJÓRNUNIN OG DREIFING FJÁRMUNA......
Það er sífellt verið að fara út í einhverjar "skítareddingar" til bráðabirgða hér og þar í kerfinu, verið að fara í "holufyllingar" hér og þar sem oft á tíðum gera bara illt verra í stað þess að taka þetta handónýta heilbrigðiskerfi okkar til ALGJÖRRAR ENDURSKOÐUNAR og gera það bara almennilegt í eitt skipti fyrir öll og vera svo með það til endurskoðunar upp frá því.....
Segir rugl að spítalinn sé ekki vanfjármagnaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.1.2023 | 08:33
ÞAÐ MYNDI KANNSKI MINNKA SANDBURÐINN Í HÖFNINNI ÖRLÍTIÐ EN ALLS EKKI VERULEGA........
Allt þetta "verkfræðingastóð" og aðrir sérfræðingar, virðast ekki gera sér grein fyrir því allur hafsbotninn undan suðurströndinni er sandur og taka nokkrar milljónir rúmmetra af sandi þarna er eins og að taka eitt lítið krækiber úr tunnu og einu áhrifin sem þetta hefur er að fresta því um nokkur ár að höfnin verði ónothæf..........
Sandurinn fluttur út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2023 | 14:06
ÚKRAINUMENN SAMÞYKKTU EKKI VOPNAHLÉ - ER ÞÁ EITTHVAÐ ÓEÐLILEGT VIÐ ÞAÐ AÐ RÚSSAR HALDI STRÍÐSAÐERÐUM ÁFRAM????
Svona fréttamennska finnst mér ekki alveg boðleg. Það má alveg mín vegna kalla mig "Rússadindil" en mér finnst fréttaflutningurinn af þessum stríðsátökum vera full einhliða. Vissulega var það argasta fúlmennska af Rússum að ráðast inn í Úkraínu. En hvað hafði gengið á FYRIR árásina? Ég hef heyrt af því, nokkuð oft, AÐ ÞETTA SÉ STRÍÐ BANDARÍKJANNA OG ESB VIÐ RÚSSA, SEM SÉ HÁÐ Í ÚKRAÍNU. HVERNIG STENDUR Á AÐ ÞAÐ ER ALDREI FJALLAÐ UM ÞETTA OG ÞESSI MÁL "KRUFIN" ALMENNILEGA??????????
Byrjað að sprengja á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.1.2023 | 16:10
ER EKKERT EINASTA LÁT Á VITLEYSUNNI - HVAÐ KEMUR NÆST???????
Verður farið út í að ráðast" á og breyta hefðbundnum starfsheitum á sjónum, hvaða orðskrípi ætli verði sett í stað stýrimanns, það verðu fróðlegt að vita hvaða starfsheiti bátsmaðurinn fær eða matsveinn, verður kokkur látinn kannski duga, verður vélstjóri látinn duga, skipstjóri kannski, ekki verður lengur talað um "KALLINN" býst ég við? En ég verð að segja að ég er hættur á sjó og er feginn að taka ekki þátt í þessu kjaftæði.....
Sjómenn segja fiskara út í hött | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.1.2023 | 13:00
HEFUR "RÉTTARKERFIÐ" HÉR Á LANDI VERIÐ "STJÓRNMÁLAVÆTT"?????
Rétt eins og margir samlandar mínir, fór mikill tími milli jóla og nýárs í lestur. Ein bók greip huga minn alveg sérstaklega og vakti bókin mig til umhugsunar um það á hvaða vegferðréttarkerfið er hér á landi. ÞESSI BÓK ER "UPPGJÖR BANKAMANNS" eftir Lárus Welding. Þarna kemur fram nokkuð mikil og ég fæ ekki betur séð en að sú gagnrýni eigi fullan rétt á sér, á vinnubrögð SÉRSTAKS SAKSÓKNAR (sem nú heitir víst HÉRAÐSSAKSÓKNARI, hverju sem það á svo að breyta) og DÓMSTÓLA. Bókin er afskaplega vel skrifuð og vel uppsett, Lárus Welding forðast að vera að deil á vissa menn en það má lesa út ú þessu að tengslin milli Dómstóla, Sérstaks saksóknara og Stjórnmálakerfisins virðast vera MJÖG mikil og það sem er MJÖG ALVARLEGT að ENGIN vafaatriði sem gætu leitt til refsilækkunar og gætu komið hinum ákærðu til refsilækkunar voru tekin til greina og það sem alvarlegra er að gögn sem voru ákærða til hagsbóta, VORU LÁTIN HVERFA OG VORU EKKI HÖFÐ MEÐ MÁLSGÖGNUM. DÓMARA DÆMDU EKKI EFTIR LÖGUNUM, Í MÁLUM BANKASTJÓRUM FÖLLNU BANKANNA, EINS OG ÞEIM BER AÐ GERA, HELDUR ALMENNINGSÁLITINU Á ÞEIM TÍMA OG EFTIR ÞRÝSTINGI FRÁ PÓLITÍKINNI (þetta eru mín orð og þetta les ég á milli línanna í bókinni en Lárus Welding fer afskaplega varlega í að ásaka einn eða neinn). Eins og ég hef sagt áður þá er þessi bók mjög vel skrifuð og vel uppsett og hvet ég alla til að kynna sér hana, í það minnsta fékk ég það aldrei á tilfinninguna að hann væri neitt að gera minna úr sínum málum en efni stóðu til og að mínu áliti óx maðurinn mikið við það að senda þessa bók frá sér.
Að þessu tilefni er rétt að skoða stjórnskipan landsins. Eins og kunnugt er þá er stjórnskipan landsins samansett af þremur einingum; LÖGGJAFARVALDI, FRAMKVÆMDAVALDI OG DÓMSVALDI. Ég get ekki séð að LÝÐRÆÐIÐ sé neitt í hávegum haft í stjórnskipan landsins. Almenningur fær að hafa "örlítil áhrif" á skipan LÖGGJAFARVALDSINS með að kjósa það á fjögurra ára fresti en almenningur hefur ENGIN áhrif á FRAMKVÆMDAVALDIÐ eða DÓMSVALDIÐ. Almenningur hefur ekkert um það að segja hverjir verða ráðherrar og svo til að bíta hausinn af skömminni þá er það ráðherra (Dómsmálaráðherra og Forseti), sem skipa dómara og dómarar eru algjörlega háðir FRAMKVÆMDAVALDINU í störfum sínum........
31.12.2022 | 13:22
ÞAÐ HLÝTUR AÐ NÁLGAST HEIMSMET AÐ VINNA LEIK EN SKORA EKKERT MARK
Því miður verð ég að viðurkenna það, þótt það sé mjög erfitt fyrir svona eldheitan "Poolara" eins og mig, að Liverpool var bara miklu lakari aðilinn í þessu leik og áttu bara engan veginn skilið að vinna. Vonandi fara þeir að taka sig saman í andlitinu ef þeir ætla að eiga einhvern möguleika á titlinum þetta árið......
Sá fjórði til að skora tvö sjálfsmörk í sama leiknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2022 | 16:28
HEFUR ALÞINGI, SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI, FJALLAÐ UM ÞESSI KAUP??????
Eða var gerður sá fyrirvari við samninginn AÐ ALÞINGI ÆTTI EFTIR AÐ FJALLA UM MÁLIÐ OG VEITA SAMÞYKKI SITT? Eru kannski fleiri mál sem eru svona á "GRÁU SVÆÐI" og má segja að séu heimilislaus. ÉG HÉLT AÐ ALLIR SEM TAKA SÆTI Á ALÞINGI SVERJI EIÐ AÐ STJÓRNARSKRÁNNI? Mér er ekki kunnugt um hvort eingöngu nýliðar á Alþingi sverji þennan eið eða hvort ALLIR þingmenn geri það en ef svo er að einungis nýliðar geri þetta, þá er full ástæða til að "eldri" þingmenn rifji þennan eið einnig upp.....
Ríkissjóður kaupir 93% eignarhlut í Landsneti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.12.2022 | 16:41
INNVIÐARÁÐHERRA OG FLEIRI ÆTLUÐ AÐ "LÆRA" AF VIÐBRÖGÐUNUM EÐA RÉTTARA SAGT VIÐBRAGÐSLEYSINU VIÐ FYRSTA VEÐURHVELLINUM RÉTT FYRIR JÓLIN......
En sennilega eru þeir ekki enn sestir á skólabekk því það eru enn jólafrí hjá ÖLLUM menntastofnunum landsins. Í það minnsta er allt jafn ófært og áður og ekkert hefur breyst í snjómokstursmálum hér á landi......
Líklega mesti snjór í áratugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Liverpool átti fyrri hálfleikinn og sundurspiluðu Villa menn algjörlega og það skilaði verðskulduðum tveimur mörkum. Villa menn reyndu aðeins í seinni hálfleik og skoruðu þá eitt mark, sem varð til að koma smá hreyfingu á blóðið í þeim en það slokknaði alveg á þeim við þriðja mark Liverpool og það má bara kalla það að þeir hafi sloppið með skrekkinn...............
Liverpool vann fjörugan leik á Villa Park | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.12.2022 | 15:29
JÓLAKVEÐJUR
Bestu óskir til allra sem ég þekki um Gleðileg Jól og farsæld á komandi ári og allra sem hafa komið hér við á blogginu hvort sem þeir hafa skilið eftir athugasemdir eða ekki....
Skýr skilaboð það! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
23.12.2022 | 07:01
HVERS VEGNA ER HÚN AÐ TJÁ SIG UM ÞETTA????????????????
Ég get ekki með neinu móti séð að þetta komi henni nokkurn skapaðan hlut við.........
Kannski dálítið ríflegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2022 | 10:21
NÚ Á AÐ "DÆLA" ÚTRUNNU GLUNDRI Í FÓLK.........
Nú þegar almenningur er farinn að sjá í gegnum "bóluefnaplottið", þá sjá bóluefnaframleiðendur fram á að hagnaðurinn minnki og grípa þá til þess ráð að "LENGJA" líftíma þessara svokölluðu "bóluefna" til að minnka afföllin. EN HVER ERU RÖKIN FYRIR ÞVÍ GEYMSLUÞOL "BÓLUEFNANNA EYKST????????????
Geymsluþol Covid-19 bólefnis lengist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þá segi ég bara "batnandi mönnum er best að lifa". En spurningin er: "gerir hann eitthvað í því"?????????
Einar: Viðbragð borgarinnar of vanmáttugt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.12.2022 | 18:37
RÉTTLÆTIÐ NÁÐI FRAM AÐ GANGA - AÐ LOKUM..............
Argentína átti hreinlega leikinn í rúmlega 78 mínútur, þar til dómarinn færði Frökkunum ódýra vítaspyrnu, á silfurfati og hleypti þeim þar með inn í leikinn. Þeir þökkuðu fyrir sig og skoruðu úr "GJAFAVÍTINU" og settu aukinn kraft í sinn leik og náðu svo að skora jöfnunarmarkið og tryggðu sér þar með framlengingu. Í framlengingunni skoruðu bæði liðin eitt mark og hverjir aðrir en Messi og MPappe skoruðu? Það var svo í vítaspyrnukeppninni sem Argentínumenn tryggðu sigurinn, fyrst varði Martinez (markvörður Argentínu) eitt víti og síðan brenndu Frakkar af einu víti og þar með voru Argentínumenn búnir að tryggja sér heimsmeistaratitilinn. En hvað var hún Edda Sif Pálsdóttir eiginlega að hugsa þegar hún valdi sér kjól til að klæðast við þetta tækifæri???????????
Argentína heimsmeistari í þriðja sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.12.2022 | 20:34
MAROKKÓMENNIRNIR VORU BARA "SPRUNGNIR" Á LIMMINU..........
Þeir höfðu ekki þá breidd í liðinu sem þurfti til svo þeir gætu náð lengra. Svona framganga hefur sést áður og í tónlistarheiminum er þetta kallað "ONE HIT WONDER". Króatarnir gerðu bara það sem þeir þurftu að gera en það var bara að spila af skynsemi og hleypa Marokkómönnunum ekki of langt. Það gekk að mestu leiti upp og Króatarnir létu Marokkómennina skilja það að þeir kæmust ekki lengra en í fjórða sætið á HM. Svo er spurning hvort þeir verði meira á HM í framtíðinni????????
Króatía fær brons | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2022 | 11:27
LOKSINS MAÐUR MEÐ "SMÁ" RAUNVERULEIKATENGINGU...............
Þetta er ágætis byrjun hjá honum en að mestu leiti er þetta "sýndarmennska" því það er ekki hægt að já að 200.000 krónu LÆKKUN geri mikið því ekki er hann með nein "hungurlaun" og 2 - 4% aðhaldskrafa á allar deildir er ekkert annað en lélegur brandari.......
Bæjarstjórinn lækkar laun sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2022 | 12:04
ÞETTA KALLAR MAÐUR AÐ HÆTTA Á TOPPNUM..................
Það var ótrúlega magnað að fylgjast með manninum í leiknum á móti Króatíu og enn ótrúlegra að ann skyldi EKKI vera kosinn maður leiksins. HANN KOM AÐ ÖLLUM MÖRKUM LIÐSINS. Hann skoraði fyrsta mark leiksins, menn eru ekki sammála um hvort dæma hafi átt vítaspyrnu þarna en reglurnar eru alveg skýrar MAÐURINN VARFELLDUR INNAN TEIGS OG ÞÁ ER VÍTASPYRNA DÆMD og reglurnar eru alveg skýrar svo geta menn verið ósammála um hvort það sé réttlátt. Hann átti stoðsendinguna á Alvares þegar annað markið var skorað og svo þetta ótrúlega spil hans upp hægri kantinn, alveg frá miðju og inn í teig Króatanna og endaði á því að gefa boltann fyrir markið og ekkert annað fyrir Alvares að gera annað en að "SKÓFLA" boltanum yfir marklínuna, sem hann og gerði. EF ÞAÐ ER EITTHVAÐ RÉTTLÆTI TIL Í HEIMINUM ÞÁ EIGA ARGENTÍNUMENN AÐ VERÐA HEIMSMEISTARAR OG MESSI LYFTIR STYTTUNNI FRÆGU.....
Úrslitaleikurinn síðasti leikur Messi á heimsmeistaramóti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)