HEFUR ALÞINGI, SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI, FJALLAÐ UM ÞESSI KAUP??????

Eða var gerður sá fyrirvari við samninginn AÐ ALÞINGI ÆTTI EFTIR AÐ FJALLA UM MÁLIÐ OG VEITA SAMÞYKKI SITT?  Eru kannski fleiri mál sem eru svona á "GRÁU SVÆÐI" og má segja að séu heimilislaus.  ÉG HÉLT AÐ ALLIR SEM TAKA SÆTI Á ALÞINGI SVERJI EIÐ AÐ STJÓRNARSKRÁNNI?  Mér er ekki kunnugt um hvort eingöngu nýliðar á Alþingi sverji þennan eið eða hvort ALLIR þingmenn geri það en ef svo er að einungis nýliðar geri þetta, þá er full ástæða til að "eldri" þingmenn rifji þennan eið einnig upp.....


mbl.is Ríkissjóður kaupir 93% eignarhlut í Landsneti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Jóhann.

Það er eins og allir (flestir) séu búnir að gleyma til hvers við höfum Alþingi og þingmenn sem koma saman í húsnæði við Kirkjustræti í Reykjavík. Það liggur við að hægt sé að framvísa ákvarðanatökum fyrir hönd íslensku þjóðarinnar beint til Davos í Sviss.

En við eigum að kallast lýðræðisríki, mér sýnist hinsvegar það orðatiltæki eingöngu notað til hátíðarbrigða nú orðið.

Þeir sem kosnir eru í ábyrgðarstöður af almenningi s.s. þingmenn, borgar- og sveitastjórnarfulltrúar fara engu eftir því sem þeir hafa lofað kjósendum sínum, virðast bara halda að þeir séu þarna til að stimpla nafn sitt undir ákvarðanir elítunnar, þeirra sem hugsa bara um sig og sína.

Að lokum vil ég óska þér Jóhann gleðilegs nýs árs og óska okkur öllum þess að lýðræðið Ísland fái að festa rætur á okkar annars góða landi og að kærleikur, frjálsræði og friður fái að blómstra.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.12.2022 kl. 22:17

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sjá fjárlög 2022: https://www.althingi.is/altext/pdf/152/s/0286.pdf

Í 6. gr., tölulið 5.11, er ráðherra veitt heimild til "Að ganga til samninga við eigendur Landsnets ohf. um kaup eða tilfærslu eignarhluta í félaginu til ríkissjóðs."

Þannig að já, sú heimild hefur verið samþykkt á Alþingi og málið verið rætt þar. Mér skilst það eigi sér líka lengri aðdraganda tengdan raforkulögum sem hafa einnig verið rædd.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.12.2022 kl. 01:08

3 identicon

Sæll Jóhann, þarna er ríkið í raun að kaupa af sjálfu sér með almanna fé, -af fyrirtækjum sem eru í almennings eigu.

Kæmi ekki á óvart að verið sé að flytja fé almennings í þessi fyrirtæki til að gera þau fýsilegri til einkavinavæðingar sölu.

freemason (IP-tala skráð) 31.12.2022 kl. 07:43

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér kærlega fyrir góðar kveðjur Tómas og sömuleiðis óska ég þér og fjölskyldu þinni gæfu og farsældar á nýu ári....

Jóhann Elíasson, 31.12.2022 kl. 12:36

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir að láta mig vita af þessu.  En ég veit ekki betur en að fjárlögin hafi verið afgreidd með hraði rétt fyrir jól og jafnvel að almennir þingmenn hafi ekki verið búnir að gera sér almennilega grein fyrir að  þetta ákvæð væri þarna inn.  Þá vil ég óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegs árs og farsældar á nýju ári.....

Jóhann Elíasson, 31.12.2022 kl. 13:05

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já "freemason", þarna bendir þú á virkilega mikilvægan punkt, sem þarfnast virkilegrar endurskoðunar. Þá vil ég óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegs árs og farsældar á nýju ári.....

Jóhann Elíasson, 31.12.2022 kl. 13:08

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Yfirlýstur tilgangur er að koma eignarhaldi Landsnets þannig fyrir að flutningskerfið verði ekki í eigu orkuframleiðenda, til samræmis við EES-reglur um aðskilnað þar á milli.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.12.2022 kl. 13:53

8 identicon

Guðmundur, það hefði verið hægt að gera með mun einfaldri aðgerð, þegar ríkið situr jú allt í kringum borðið með almannafé.

þó svo að OR og OV séu leppuð til sögunnar, þá ætti engum að dyljast sá skrípaleikur, , , -ekki einu sinni EES aðdáendum.

freemason (IP-tala skráð) 31.12.2022 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband