Færsluflokkur: Formúla 1
27.7.2009 | 15:45
Á kóngurinn að vera að koma til baka??????
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Lauda vekur athygli með "glannalegum" og oft á tíðum vanhugsuðum yfirlýsingum sínum. Maðurinn er hættur í formúlunni, að mínum dómi eru menn annað hvort hættir eða ekki og ég held að hann myndi aðeins skaða orðstír sinn ef hann væri eitthvað að hringla með þá ákvörðun sína.
![]() |
Lauda: Schumacher hlaupi í skarð Massa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.7.2009 | 13:55
Enn einu sinni sanna Formúlu bílarnir hversu öruggir þeir eru!!!!!!
Sem betur fer sannaðist okkur hversu öryggi formúluökumanna er orðið mikið núna seinni árin. Það er alveg með ólíkindum að eftir að bíllinn fer svo gjörsamlega í köku, að ekki virðist vera nokkurs staðar heil brú í honum, að ökumaðurinn skuli sleppa frá "óhappinu" með skrámur. Samkvæmt BBC sport slapp Massa frá þessu með minniháttar meiðsli og má það þakka að vel hefur verið unnið í öryggismálum ökumanna á síðustu árum.
![]() |
Tímatakan tefst vegna slyss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.7.2009 | 11:04
En getur hann unnið keppni??????
Oft hefur hann verið nærri því, bæði að vinna ráspól og að vera ofarlega í keppni, en alltaf, þar til núna, hefur "EITTHVAÐ" orðið til þess að hann hefur fallið út. Það er þetta "EITTHVAÐ" sem hefur vantað uppá, það verður gaman að fylgjast með á eftir hvort þetta "EITTHVAÐ" verði enn einu sinni að þvælast fyrir honum.
![]() |
Webber: Mjög sérstök stund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.6.2009 | 14:07
Hann er að koma sér þangað sem hann á heima!!!!!!!!!!
Semsagt meðal TOPPMANNANNA í formúlunni. Hann lætur ekki sömu mistökin koma fyrir aftur, eins og þegar Button komst framú honum eftir síðasta ráspól. Þessi strákur er búinn að "stimpla sig rækilega inn". Ekki yrði ég neitt hissa þótt hann kæmi til Ferrari og myndi þá koma í staðin fyrir Raikkonen því frammistaða Raikkonen hefur valdið miklum vonbrygðum.
![]() |
Vettel minnkar forskot Buttons |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.6.2009 | 08:24
Hlaut að enda svona...
Þessi niðurstaða hefur legið nokkuð lengi í loftinu en svo virðist sem aðstandendur formúlu 1 mótaraðarinnar hafi áætlað sem svo að þeir hefðu öll tromp á hendinni og þyrftu því ekki í neinu að hlusta á raddir annarra hagsmunaaðila í formúlunni eða almennings. Er ekki sagt að dramb sé falli næst?
![]() |
8 lið af 10 segja skilið við formúlu-1 og stofna nýja mótaröð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.6.2009 | 12:33
Strákurinn er að ná stöðugleika................
Það er ekki spurning um það að hann á eftir að velgja "Þeim stóru" all verulega undir uggum. Var ekki haft eftir Schumacher sjálfum "að þarna væri næsti Schumacher á ferðinni"?
![]() |
Vettel vann rimmu við Button |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2009 | 08:58
Hann ætlar sér örugglega að verða næsti heimsmeistari en......
Verði hann það, er það bara til bráðabirgða því Sebastian Vettel er byrjaður að láta vita af því að hann sé á staðnum og ég er á því að mjög fátt stöðvi drenginn þegar hann verður kominn af stað.
![]() |
Button á ráspól á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.4.2009 | 15:09
ÞAÐ ER SVONA VITLEYSA SEM KEMUR ÓORÐI Á ÍÞRÓTTINA!!!!!!!
Það er búið að refsa liðinu fyrir þetta svokallaða "lygamál" og liðið hefur tekið út refsingu sína. Kannski gilda önnur lög innan FIA en ég hélt að ekki væri hægt að "dæma" neinn tvisvar fyrir sama brotið. Þessi málsmeðferð er mikil hneisa og íþróttinni til vansa.
![]() |
McLaren vísað úr keppni í þremur mótum skilorðsbundið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2009 | 09:25
Flottur!!!!
Tímatakan gat vart farið betur, Brawn-bíllinn var flottur og "svínvirkaði" Ross Brawn hefur unnið kraftaverk með liðið ef nokkur getur unnið kraftaverk í formúlunni þá er það hann. Það verður gaman að fylgjast með formúlunni þessa vertíðina. Það eina sem vantaði var að Ferraribílarnir væru framar á ráslínunni en það á eftir að breytast. Ekki skil ég í mér núna að hafa verið að eltast við að fylgjast með formúlunni á Stöð 2 sport þegar miklu betri umfjöllun er í boði á mörgum erlendum stöðvum og þar þarf maður ekki að vera hræddur um að einhver "rugludallur" gleymi að taka "ruglið" og maður missi af ræsingunni.
![]() |
Fyrsti póll í fyrsta móti nýs liðs frá 1954 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.3.2009 | 10:00
Í rauninni er verið að halda því fram að eftirlitsmennirnir séu ekki starfi sínu vaxnir...
Er ekki nóg komið af einhverjum klögumálum og veseni í þessari íþrótt, er ekki tími til kominn að keppnin fari fram á brautinni?
![]() |
Kæra dreifi Brawnbílsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |