Færsluflokkur: Formúla 1

Vill einhver útskýra fyrir mér KERS-búnaðinn????

Ég verð að viðurkenna fáfræði mína og þar með að líklega hef ég ekki fylgst nógu og vel með.
mbl.is Renault brúkar KERS í Melbourne
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögurstund runnin upp hjá liðinu......

"Hondamenn" gera sér alveg grein fyrir í að því að sýni liðið ekki góðan árangur á komandi formúluvertíð, getur það þýtt endalokin fyrir liðið í formúlunni og því má búast við þeir leggi sig extra mikið fram í sumar.
mbl.is Brawn GP byrjar vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott fordæmi

Margir myndu segja: "Hann hefur vel efni á þessu" en skítt með það maðurinn sýnir með þessum gjörningi allt aðra hlið á sér en menn hafa gert sér í hugarlund áður.  Margir mættu taka sér þetta til fyrirmyndar og segir okkur að það á ekki að gera sér upp skoðanir á mönnum án þess að vita nokkuð um þá.  Ég viðurkenni það að ég hafði myndað með mér skoðun á Jenson Button, sem greinilega var röng, skömmin er mín. 
mbl.is Button örlátur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sem betur fer er þessu leiðindamáli að ljúka...

Það kemur hvergi fram að McLaren-menn hafi notfært þessi gögn á nokkurn hátt en þeir höfðu aðgang að  þessum gögnum og um það snýst málið.  Óneitanlega setur þetta leiðinlegan svip á formúluna og því er það gott mál, fyrir íþróttina, að þessir tveir fornu fjendur hafi náð sátt í málinu.  Það eina sem setur dökkan blett á komandi formúluvertíð er, að formúlan skuli áfram sýnd á stöð2 sport, ég tek einfaldlega ekki séns á því að missa af starti keppni og fyrri hluta hennar, vegna þess að einhver lélegur tæknimaður "gleymi" að taka "ruglið" af, eins og gerðist hjá þeim á síðustu formúluvertíð.
mbl.is Ítalskur dómstóll gerir sektarsátt við tæknimenn McLaren
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er verið að ganga frá formúlunni?????

Það reynir vonandi ekki nokkur maður að bera á móti því að Alonso er MJÖG góður ökumaður en ég er þess fullviss að nú sé hann hjá liði (Renault) sem passar honum best og samstarf hans og Renault hefur verið með miklum ágætum, það sannast af árangri liðsins eftir að hann kom þangað aftur.  Eftir hasarinn hjá McLaren reiknaði ég með því að Alonso myndi láta lítið fara fyrir sér í einhvern tíma ég held enn í þá von og á meðan ekki kemur staðfesting á þessari frétt lít ég á hana sem hverja aðra kjaftasögu.
mbl.is Alonso sagður hafa samið á laun við Ferrari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endanlega búinn að gefast upp á Stöð 2 sport og horfi á formúluna annars staðar.

Ég er svo mikill tæknimaður að ég varð að fá son minn til þess að finna stöð á sjónvarpinu fyrir mig, þar sem formúlan væri alveg örugglega svo ég geti nú horft á dásemdina í nótt.

Eiga forsvarsmenn 365 endalaust að komast upp með að "þeir harmi leiðinda mistök"???

Þar sem ég gisti á Akureyri um helgina, er ekki áskrift að stöð 2 sport, en þar sem það er í samningsskilmálum fyrir því að þeir fengu sýningarréttinn að formúlunni, að þeir myndu sýna bæði frá tímatökunum og sjálfum keppnunum í opinni dagskrá,ákváðum við nokkrir félagar, að setjast niður þar sem ég hélt til og horfa saman á formúluna.  Ég viðurkenni alveg að það hefði verið mun gáfulegra hjá okkur að hittast bara heima hjá þeim aðila sem var með áskrift að stöð 2 sport en vegna heimilisástæðna hjá honum var það ekki gert.  Þess í stað "plöntuðum" við okkur fyrir framan sjónvarpið hjá mér stundvíslega klukkan 04 aðfaranótt sunnudags, á þeim tíma sem auglýst dagskrá átti að hefjast, jú formúlan byrjaði alveg á réttum tíma en dagskráin var "rugluð".  Til að byrja með þá urðum við ekkert órólegir en þegar fór að nálgast "ræsingu" var okkur ekki farið að lítast á blikuna og meðal annars reyndum við að hringja á stöð 2en án árangursog svo hófst keppnin og ennþá var dagskráin "rugluð" og það var ekki fyrr en á fjórða hring keppninnar að dagskráin varð órugluð.  Það skal tekið fram að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta kemur fyrir en í þetta skipti keyrði út yfir alla "þjófabálka" og varð mikil reiði í hópi okkar félaganna og var "áskrifandinn" að stöð 2 sport svo reiður að hann sagðist ætla að segja áskriftinni upp strax á mánudaginn og segja þeim á stöð 2 að þeir gætu troðið þessu he..... upp í ra...... á sér.  Ég get að mörgu leiti skilið gremju hans og ég get ekki með nokkru móti séð að stöð 2 sport fjölgi áskrifendum sínum með svona framkomu.

 


Nú getur hann farið að snúa sér að kappakstrinum!!

Kaupin á snekkjunni eru í höfn, en það er sennilegt að þar sé kominn helsta skýringin á slökum framgangi hans í undanförnum mótum.  Ég hef trú á því að hann "skjóti" sér framúr Kovalainen í ræsingunni og ekki kæmi það mér svo rosalega á óvart þótt Massa færi framúr Hamilton.
mbl.is Räikkönen heldur í sigurvon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hungrið enn til staðar??

Hraðasekt er nú líklega eins og að skvetta vatni á gæsen það er spurning hvort hann fái nóga útrás fyrir hraðaþörfina við að mæta á keppnisstað, væri ekki betra fyrir Ferrarí að leyfa honum að aka einn og einn "hring"?
mbl.is Schumacher gómaður hraðfara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞrælMASSAÐ..

Hann ók þetta eins og hann ætti brautina skuldlausa og aðrir áttu ekki möguleika, svo miklir voru yfirburðirnir.  Ekki get ég ímyndað mér hvað það er sem hrjáir Raikkonen þessa dagana, hann virðist alveg vera úti á túni og svei mér þá er hann kannski að bíta gras þar.  Frammistaða Raikkonen í síðustu mótum er alveg skelfileg og í dag fór hann alveg með það.
mbl.is Massa ók eins og meistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband