FYRSTI TITILL BÍLASMIÐA SÍÐAN 1953 Í HÖFN HJÁ MERCEDES

Nú er bara spurningin hvort tekst að verja titilinn á næsta ári.  Þessi keppni var nú frekar litlaus, nema mistökin hjá Rosberg í fyrstu beygju, sem voru völd að úrslitunum.  En aksturinn hjá Rosberg, eftir þessi mistök, var hreint út sagt stórkostlegur og má líkja því við snilld að geta látið dekkjaganginn endast í 52 hringi en það á nánast ekki að vera hægt.  Það var synd að Max Chilton skyldi falla úr keppni og þar með Marushia liðið en það var gert af virðingu við Jules Bianci, að liðið keppti á einum bíl í þessari keppni.  En eins og allir vita þá slasaðist hann illa í síðustu keppni og berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Japan.  Og enn einu sinni set ég spurningamerki við frammistöðu 365 miðla, því ÖLL útsendingin frá kappakstrinum í dag var RUGLUÐVoru ekki ákvæði í samningnum þess efnis að það átti að sýna frá tímatökunum og keppninni sjálfri í opinni dagskrá?????...


mbl.is Mercedes heimsmeistari bílsmiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband