ÞAÐ ER ENGINN VAFI Á ÞESSU!!!!!!!

Um þetta hefur verið talað lengi en nú er ekki nokkur vafi á málinu.  Sé einhver dugur í Íslendingum ætti að endurskoða norrænt samstarf STRAX, hætta samstarfinu við AGS og senda þá heim til sín, fara með Ices(L)ave fyrir dómstóla og fá skorið úr þessu máli í eitt skipti fyrir öll og falli dómsúrskurður Íslandi í óhag ÞÁ verði leitað eftir samningum við Breta og Hollendinga og síðast en ekki síst: "KOMA ÞESSARI RÍKISSTJÓRN FRÁ OG SETJA Í UTANÞINGSSTJÓRN FÓLK SEM HEFUR GETU TIL ÞESS AÐ LEIÐA LANDIÐ ÚR ÞEIM ÓGÖNGUM SEM ÞAÐ ER KOMIÐ Í".
mbl.is Finnar tengja AGS við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, nú er ég sko sammála þér, ég get ekki hugsað þá hugsun til enda hvernig þetta endar allt saman.

kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 22.1.2010 kl. 16:43

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Brýnasta verkefni stjórnvalda í dag er að hefja nú þegar markvissan undirbúning að greiðsluþroti þjóðarbúsins.

Það er ekki mikill tími til stefnu. Það átti fyrir löngu að vera öllum ljóst að sú ferð sem byrjaði með einkavæðingu bankanna ásamt íbúðalánasturluninni endaði með helför íslensks efnahagslífs. Orðuveitingar á Bessastöðum og viðurkenningarskjöl vegna þróttmikilla ránsferða voru innistæðulaus fíflagangur að séríslenskum sið.

Árni Gunnarsson, 23.1.2010 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband