VEIT Á GOTT, VONANDI AÐ LANDSMENN SÝNI AÐ ÞEIR LÁTI EKKI ALLT YFIR SIG GANGA!!!!!

Þótt þau skötuhjúin Heilög Jóhanna og Steingrímur Júdas ætli að sitja heima (þau hafa ekki mikla trú á verkum sínum), þá vona ég að menn og konur mæti á kjörstað og sýni þar með hug sinn til þeirra laga sem "ríkisstjórn fólksins" ætlaði að þröngva upp á þjóðina.  Í gærkvöldi sá ég viðtöl við laganema og þeir VISSU EKKI almennilega um hvað var verið að kjósa, þetta fólk verður ekki að gæfulegum lögfræðingum í framtíðinni og það er eins gott að maður fái ekki svona fólk til að gæta hagsmuna sinna í náinni framtíð.  Þetta fólk er það sem á víst að erfa landið og því virðist vera slétt sama þó að nokkur hundruð milljarða skuld, sem leikur vafi á að þau eigi að borga, fylgi með.  En þeim og öðrum sem eru í vafa til glöggvunar er hægt að draga þetta saman að það skiptir ENGU máli þótt ANNAÐ samkomulag liggi fyrir, hitt samkomulagið, sem á að kjósa um, er LÖG sem þau þvinguðu gegnum Alþingi og þótt annað samkomulag lægi fyrir þá ætti það eftir að fara þrjár umræður í gegnum þingið ÁÐUR en það yrði að LÖGUM og síðan ætti forsetinn EFTIRað staðfesta það og þar getur brugðið til beggja vona, það þekkja menn.  Þarna hafði forsetinn vit fyrir Heilagri Jóhönnu og Steingrími Júdasi en það er enginn kominn til með að segja að það verði alltaf reyndin.
mbl.is Atkvæðagreiðslan hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband