SEM BETUR FER RÆÐUR ÖGMUNDUR BARA Í NOKKRA MÁNUÐI Í VIÐBÓT!!

En aftur á móti sé ég ekki alveg hvernig menn ætla að "færa" flugvöllinn.  En það er alveg á hreinu að flugvallarstarfsemin verður í Vatnsmýrinni í nokkur ár í viðbót.  En þann tíma sem við höfum á að nota til þess að finna innanlandsfluginu og flugtengdri starfsemi í Vatnsmýrinni framtíðarstaðsetningu.  Að mínum dómi er það ekki nokkur spurning að ódýrasta og besta leiðin fyrir þjóðfélagið yrði að flytja ALLA flugtengda starfsemi á Keflavíkurflugvöll og Landhelgisgæsluna ásamt Samhæfingarmiðstöðinni þar með.
mbl.is Hætt við nýjan flugvöll á Hólmsheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ef flugvöllurinn verður fluttur til Keflavíkur Jóhann minn, þá legg ég til að Keflavík verði gerð að höfuðborg landsins með öllu tilheyrandi stjórnsýslu og umsýslu, þá hefði maður ekkert erindi til Reykjavíkur lengur gæti bara skellt sér beint í höfuðborgina og þaðan til útlanda.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.7.2011 kl. 08:17

2 identicon

Þar að auki myndi innanlandsflug leggjast af, nema á Egilstaði sökum lengri ferðatíma og umtalsverðrar hækkunar á miðaverði.

arnar.runar (IP-tala skráð) 6.7.2011 kl. 08:29

3 identicon

Fullkomlega sammála Ásthildi, engin flugvöllur í Reykjavík, þýðir einfaldlega alla stjórnsýslu til Keflavíkur, sama gildir um sjúkrahúsin, hætta strax við þetta "hátækni sjúkrahús" þangað til útséð er hvar flugvöllur verður.

Bjössi (IP-tala skráð) 6.7.2011 kl. 09:27

4 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Ég er ósammála þér í þessu máli Jóhann en alveg sammála Ásthildi og Arnari og einnig Ögmundi.Það var algjörlega galin hugmynd að ætla að fara með flugvöll upp á Hólmsheiði. Um það hafa allir sem eitthvað vit hafa á flugi bent á. Að færa innanlandsflugið til Keflavíkur er bara ávísun á að leggja eigi niður allt innanlandsflug. Ef einhverntíma yrði tekin sú ákvörðun myndi ég leggja til að það yrði gert í tilraunaskyni í segjum c.a. 6 mán og sjá hvaða áhrif það hefði áður en sú ákvörðun yrði endanleg. Það er mín skoðun sem mikið hef notað flugið að það yrði nægur timi til að innanlandsflugfélögin færu lóðbeint á hausinn. Við myndum einfaldlega hætta að nota flugið. Jafnvel til Egilsstaða.

Ég hef hinsvegar aldrei skilið þessa áráttu að vilja flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni. Að mínu áliti er það einkum þrennt sem gerir Reykjavík að heillandi höfuðborg. Flugvöllur í miðri borg, frábær hafnaraðstaða í miðri borg og síðast en ekki síst lifandi og gjöful laxveiðiá í miðri höfuðborginni! Geri aðrir betur.

Hugmyndir um tugþúsundmanna byggð í Vatnsmýrinn finnst mér hinsvegar galnar. Hvernig skyldu menn ætla að leysa það umferðaröngþveyti sem slíku myndi fylgja og er þó nægt fyrir sýnist manni.

Nei, látum flugvöllinn vera þar sem hann er og ef nauðsynlegt bverður að færa hann einhverntíma, færum hann þá bara aðeins til útá skerin.

Það finnst mér svolítið spennandi hugmynd.

Viðar Friðgeirsson, 6.7.2011 kl. 09:54

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég geri innlegg Ásthildar að mínu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.7.2011 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband