HA - BARA 40%???????????????

Þegar þessi gjöld voru sett á voru rökin þau að þau gjöld sem væru greidd til ríkisins af eldsneytisverðinu DYGÐU EKKI til að viðhalda vegakerfinu.  Annað hvort á ekki að gera allt sem þarf að gera eða þá að gjöldin eru of há.......
mbl.is Óttast stórkostlegt tjón á vegakerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Við skulum halda því til haga Jóhann, að þarna er verið að tala um þau gjöld af eldsneyti sem eyrnamerkt eru viðaldi og endurnýjun vegakerfisins. Einungis 40% af því fer til þess sem það er ætlað, hitt fer í hýtina.

En það eru fleiri gjöld á eldsneytinu, kolefnisgjaldið er það nýjasta. Ofaná allt saman er svo lagður söluskattur, skatturinn er semsagt skattlagður! Því eru tekjur ríkisins mun meiri en þessi frétt ber með sér.

Með þessu er verið að mismuna fólki gróflega. Þeir sem háðir eru einkabílnum til allra nauðsynja, greiða hærri skatta til ríkisins en þeir sem geta verið án einkabílsins. Þá eru þeir sem búa utan höfuðborgasvæðisins að greiða hærri skatta til samfélagsins, vegna dýrari flutningskostnaðar á nauðsynjavörum. Mismununin er því orðin hrópleg.

Ég sé ekkert nema eðlilegt að eldsneyti sé skattlagt til viðhalds og endurnýjun vegakerfisins, en hver ein króna sem ég þarf að greiða umfram það er aukaskattur, sem ekki er með nokkru móti hægt að sætta sig við. Þá er ekkert að því að greiða virðisaukaskatt af innkupsverði, flutningskostnaði og álagningu olíufélaganna, en að greiða virðisaukaskatt af skattlagningu eldsneytis er gjörsamlega út í hött, enda ekki víst að það standist lög. Það er ekki heimilt að skattleggja skatt. En það er auðviað aukaatriði fyrir ríkisstjórn Jóhönnu, lög og reglur hafa ekki verið að flækjast fyrir henni!

Gunnar Heiðarsson, 10.3.2012 kl. 10:21

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þetta er einfalelga rangt hjá Samtökum atvinnulífsins. Þesir 40 milljarðar eru með virðisaukaskatti og tollum. Þeir skattar eru hluti almennra skatta til að standa undir almennum útgjöldum ríkisins þar með talið mettakerfinu, heilbrigðiskerfinu og velferðarkerfini svo stærstu útgjaldaliðirnir séu talir upp.

Þeir skattar af eldsneyti sem eru ætlaðir til vegaframkvæmda gefe minni tekjur en nemur útgjöldum ríksins til samgangna. Þá er ótalinn allur kostnaður sveitafélaganna. Almennir skattgreiðendur eru því stórlega að niðurgreiða einkabílanotkun.

Sigurður M Grétarsson, 10.3.2012 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband