ÞETTA ER EKKI NOKKUR SPURNING.........................................

Þetta eru bara sona típísk" viðbrögð hjá Íslenskum ráðamönnum, þegar eitthvað kemur upp á.  Hérna fyrir mörgum árum gerðist það að tveir ungir menn voru að "skemmta" sér og fengu þá flugu í höfuðið að skella sér útfyrir landsteinana.  En vandamálið var bara það að þeir áttu engan pening og þá voru góð ráð dýr.  Þeir fóru upp á Keflavíkurflugvöll og fóru bara upp í næstu flugvél og fengu sér sæti.  Svo leið og beið og farþegar fóru að tínast inn og um leið fór að þrengjast um vini okkar tvo.  Vélin fór í loftið og stefnan var tekin á New York og var lent á Kennedyflugvelli nokkru síðar.  Þar fóru þeir óáreittir út úr vélinni.  Eftir nokkra leit fundu þeirgat á girðingunni, sem var umhverfis flugvöllinn og fóru þar í gegn.  Þá fóru þeir í "bæjarferð" og voru í henni í einhverja klukkutíma.  Þeir fóru aftur í gegnum sama gatið á girðingunni og þarna var sama flugvélin enn þá svo þeir fóru bara um borðí hana.  Eftir nokkra stund fóru að tínast farþegar um borð og svo var lagt í hann áleiðis til Íslands og endaði ferðin á Keflavíkurflegvelli.  En það var borin kennsl á vinina við heimkomuna og sá sem bar kennsl á þá vissi að mennirnir áttu enga peninga og þar með komst allt saman upp.  Þetta atvik fréttist að sjálfsögðu og ALLIR sem voru á öryggisvaktinni á Kennedyflugvelli, þegar þetta átti sér stað, voru reknir hvort sem var um háttsetta eða undirmenn og öll öryggisplön voru yfirfarin.  En á Keflavíkurflugvelli gerðist ekkert.  Þó svo að þetta atvik núna sé ekki alveg sambærilegt, enda eru um 35 ár sem líða þarna á milli, þá virðist ekki mikið hafa breyst í sumu hér í stjórnkerfinu.............
mbl.is Bíður skýrslu flugmálastjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Já, mannréttindaráðherrann Ögmundur Jónasson passar bara uppá þá sem skaffa honum svartamarkaðs-dópið, sem hefur gert áruna hans svartari en áruna hjá rónum götunnar.

Hugsjónir Ögmundar ná ekki lengur út fyrir svarta orkuhjúpinn hans.

Það er vandræðalegt og sárt fyrir mig að viðurkenna það, hversu mikið ég lét blekkjast af þessum svarta-péturs pólitíkus og svikara. En ég viðurkenni það núna að ég var of meðvirk og blind á hvað þessi maður er hættulegur fyrir lýðræðið.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.7.2012 kl. 14:23

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er í raun og veru takmörk fyrir því hve svona menn geta leikið sér lengi eins og Ögmundur, ég hélt að hann væri meiri maður, en nú er ég að sjá ljósið og hverslags mörður hann er í íslenskri pólitík.  Hugsar bara um sig sjálfan og hve lengi hann kemst upp með lygamolluna.  Svei honum bara.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.7.2012 kl. 14:28

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Já Áshildur mín. Það er svona sem svikararnir stjórna Íslandi.

Ég er þrjósk og gef mig ekki svo létt, en nú er Ögmundur kominn á svartasta listann, og ég gefst upp við að finna réttlætið sem getur varið manninn/mannréttindaráðherrann Ögmund Jónasson.

Ég lét blekkjast, og er reið út í sjálfa mig vegna meðvirkninnar. Ég hélt að ég væri að styðja mannréttinda-hugsjónarmann, en hann var þá bara útsendari svikadómskerfisins.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.7.2012 kl. 15:03

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ögmundur er hvorki betri né verri en aðrir ráðherrar í þessari aumu ríkisstjórn.

Mér líkaði betur við Önnu Sigríði þegar hún viðhafði guðsorðið í hverri setningu...

Kolbrún Hilmars, 10.7.2012 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband