MEÐ ÖÐRUM ORÐUM: "HALLUR ÚTILOKAR ALLA LJÓSVAKAMIÐLA"

Því það kom berlega í ljós, bæi á Stöð 2 og RÚV í gærkvöldi þegar oddvitar framboðanna sátu fyrir svörum, að þar höfðu BÁÐIR fjölmiðlarnir tekið afstöðu en kannski sú afstaða sé Halli meira að skapi, því í báðum tilfellum var afstaðan GEGN Sveinbjörgu.  Og meira að segja var andstaðan svo hörð að hún var beðin um að útskýra mál sitt en þegar til kom gat hún það ekki vegna frammíkalla og athugasemda stjórnenda þáttanna á báðum stöðvum.  Það er kannski ráð að skoða hvernig vinnubrögð múslima hafa verið í öðrum löndum til þessa, kannski er smá möguleiki að við gætum lært af því.  Til að byrja með er alltaf komið fram með það að þarna sé eingöngu um að ræða lítinn hóp friðsamra og umburðarlyndra manna (konur eru að þeirra mati bara hluti af búfénaði og eru hafðar annars staðar), sem vilja iðka trú sína í friði.  En smám saman bætist við t.d í Svíþjóð vilja þeir banna svínakjöt í skólamötuneytum og sums staðar eru þeir búnir að fá það í gegn, í flestum löndum hafa þeir komið því þannig fyrir að múslimakonur fá ekki að mennta sig nema upp að vissu marki (Í flestum löndum hins vestræna heims er skólaskylda og þegar henni er lokið er menntun múslimakvenna lokið).  Svokölluð "heiðursmorð" eru nokkuð algeng meðal múslima í hinum vestræna heimi. Nýjasta dæmið er að gerð var tillaga um að "saria-lög" tækju opinberlega gildi í Danmörku, það er vitað að þau eru í gildi meðal múslima en það er ekki opinberlega viðurkennt.  Svona mætti lengi telja en þróunin hefur alls staðar verið á einn veg í löndunum í kringum okkur.  ER EITTHVAÐ SEM BENDIR TIL AÐ ÞRÓUNIN VERÐI ÖNNUR HÉR Á LANDI????  Það hefur komið mér verulega á óvart að "ofur-femínistar" og aðrir sem hafa barist fyrir réttindum kvenna, skuli vera að verja málstað múslima í nafni MANNRÉTTINDA.  KANNSKI MÁ SEGJA AÐ FÁFRÆÐIN OG FORDÓMARNIR LIGGI AÐALLEGA HJÁ ÞESSU FÓLKI.  Ég held, svei mér þá, að ef ég byggi í Reykjavík myndi ég kjósa Sveinbjörgu og á hún hrós skilið fyrir að hafa kjark til að hefja máls á þessu.................
mbl.is Hallur hættir á Útvarpi Sögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband