Föstudagsgrín

Jæja kæra dagbók, ég er byrjaður í ræktinni. Ég fór í fyrsta sinn í dag.  Þegar ég var búinn í sturtunni hringdi GSM síminn. Ég svaraði símanum. "Halló" "Hæ, ástin mín þetta er ég. Ertu enn í ræktinni." "Já ég var að koma úr sturtunni." "Allt í lagi, ég ætla ekki að trufla þig lengi. Ég er niðri í bæ. Mig langaði bara að spyrja þig hvort ég mætti kaupa pelsinn sem ég sýndi þér um daginn. Hann kostar ekki nema 450.000,-" "Jæja ástin mín, fyrst þér líkar hann svona vel skaltu bara kaupa hann" "Æi krúttið mitt þú ert svo góður við mig. Ég set hann þá á kortið. Heyrðu og svo var það þetta með bílinn, ætlarðu að koma við og skoða bílinn sem við vorum að spá í." "Æi nei, nú vil ég að þú farir og gangir frá kaupum á nýjum bíl. Ég hugsa meira að segja að við ættum að leyfa okkur að kaupa nýjan Porsche frá Bílabúð Benna. Komdu mér á óvart og vertu búin að ganga frá því þegar ég kem heim, og hafðu hann með öflugum aukahlutum." "Ohh ástin mín þetta er aldeilis ólíkt þér. Þú sem ert alltaf að leggja áherslu á að spara, en ég geri þetta. Heyrðu fyrst þú ert í svona miklu stuði. Ég sá að húsið sem okkur langaði svo í á Arnarnesinu er enn til sölu.  Það eru settar á það 45 milljónir. Ættum við kannski bara að slá þessu upp í kæruleysi og kaupa það." "Æi hjartað mitt, ég hef ekki tíma í það, getur þú gengið frá því. Við þyrftum reyndar að taka 100% lán fyrir því en það er nú í góðu lagi. Bjóddu 42 milljónir og vittu hvað kemur út úr því." "Ohhhh spennó, ég er alveg viss um að við fáum húsið, það er búið að vera svo lengi á sölu. Sjáumst svo í kvöld ástin mín. Bless" "Bless", sagði ég og lagði á. Að þessu loknu ákvað ég að hegða mér heiðarlega, veifaði símanum og spurði viðstadda, "Á einhver ykkar þennan síma."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Mjög svo góður þessi, kær kveðja Jóhann vinur min

Haraldur Haraldsson, 12.12.2014 kl. 17:32

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Góður þessi nafni.

Kveðja fra Houston

Jóhann Kristinsson, 12.12.2014 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband