ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ REIKNA MEÐ AÐ HANN ÞROSKIST MEIRA ÚR ÞESSU

Og kannski ekki við því að búast að "STÆRÐFRÆÐINGURINN" sendi neitt frá sér af viti og því er þessi tillaga hans bara dæmigerð fyrir hann og það sem hann kemur til með að gera í framtíðinni.  Og samflutningsmenn hans að þessari tillögu eru nokkuð dæmigerðir "flautaþyrlar", sem vilja láta til sín taka á Alþingi.  Þó kom það mér á óvart að grandvar og vel þenkjandi maður eins og hann Ólafur Ísleifsson er, skyldi falla í þann drullupytt að "spyrða" sig við þessa kjána og uppskafninga, sem fluttu þessa tillögu.......


mbl.is Vill laga „frekjukast forsetans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Í Biblíunni, hinni helgu bók, nánar tiltekið í Sakaría 12.kafla 3.versi stendur ritað:

3Á þeim degi mun ég gjöra Jerúsalem að aflraunasteini fyrir allar þjóðir. Hver sá, er hefur hann upp, mun hrufla sig til blóðs, og allar þjóðir jarðarinnar munu safnast gegn henni.

Þetta vers segir okkur það að þegar við förum gegn Jerúsalem mun það hafa afleiðingar í för með sér. Þær afleiðingar munu ekki vera okkur til góðs heldur ills, við munum hrufla okkur til blóðs vegna þess. Íslensk stjórnvöld ættu að hafa þetta orð Drottins í huga þegar afstaða er tekin til Jerúsalem.

Þessi uppákoma Smára Pírata og þeirra sem ljáðu honum atkvæði sín er lítil vísbending um hvert stefnir förum við ekki að gát í samskiptum okkar við Ísrael og ég tala nú ekki um Jerúsalem.

Það myndi vera okkur til heilla ef við tækjum upp náið samstarf við Ísrael t.d. á stjórnmála-, viðskipta-, menningar- og menntasviði, við höfum margt af þeim að læra þeir eru fremstir í vísindum og á mörgum öðrum sviðum.

En að lokum þetta úr Davíðssálmi 122.kafla versi 6: 6 Biðjið Jerúsalem friðar, hljóti heill þeir, er elska þig.

Gleðilegt nýtt ár.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.12.2017 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband