ENGAR LÍKUR Á ÁRANGRI Í NÆSTU KOSNINGUM MEÐ ÞETTA LIÐ Í FRAMBOÐI

En sennilega hefur LANDRÁÐAFYLKINGIN ekki upp á neitt skárra að bjóða og hefur bara séð fram á að skásti kosturinn væri bara að "kasta inn handklæðinu", sem vott um uppgjöf í baráttunni um borgina.......


mbl.is Heiða fær annað sæti og Skúli það þriðja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við skulum bara vona ekki. Annars er aldrei að vita, þar sem Dagur virðist hafa þó nokkuð persónufylgi. Nú er BF heldur ekki að þvælast fyrir honum, og fylgi þeirra komið yfir á Samfó. Ég stend samt enn fast á því, að Hjálmar muni undir engum kringumstæðum ná inn. Svo mikið er víst. Það eru allir löngu búnir að fá sig fullsadda af honum. Vonandi getur bæði Eyþór og eins Vigdís Hauksdóttir tekið stóran slatta af atkvæðum frá Degi og kó, enda eru þau Eyþór og Vigdís kjarnafólk og mjög þekkt, Eyþór sem tónlistarmaður, og Vigdís var mjög skelegg á Alþingi og sjónarsviptur af henni þar. Framsóknarflokkurinn hefur nú ekki birt lista sinn ennþá, en þegar hann hefur komið í ljós, þá er að sjá,hvað hann tekur til sín af atkvæðum. Mér líst samt ekkert á það, ef verða alltof mörg framboð hérna, eins og hefur verið boðað, og borgarfulltrúum jafnvel fjölgað, sem mér finnst alveg óþarfi. Ég efast um, að Dagur hafi að fá marga inn með sér, þó að kjósendur séu til alls vísir, en maður hefði nú ætlað, að þeir væru búnir að fá sig fullsadda af þessu liði og vilji fara að breyta til, enda meira en þörf á því, hvað sem öllu persónufylgi líður. Það verður samt fróðlegt að fylgjast með þessu og þeim skoðanakönnunum, sem fara að birtast úr þessu, hversu mikið sem er svo að marka þær. Það er annað mál. Þá er að spyrja að leikslokum.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 11.2.2018 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband