SKÁRRA VÆRI ÞAÐ - HANN VAR JÚ SETTUR Í ÞETTA RÁÐUNEYTI TIL AÐ LÆKKA VEIÐIGJÖLDIN

Það vakti FURÐU margra að Kristján Þór Júlíusson skyldi vera valinn Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðherra, því ekki lá neitt eftir hann þegar hann var í Heilbrigðisráðuneytinu í ríkisstjórninni á undan.  En margir nefndu það að hann væri "varðhundur" stórútgerðanna og þá sérstaklega Samherja hf og nú er þessi orðrómur  staðfestur.  Það er alveg merkilegt að það er búið að þrátta um kvótakerfið í áratugi og það er lengi búið að þrátta um hvað ÚTGERÐIN EIGI AÐ BORGA FYRIR AÐGANGINN AÐ AUÐLINDINNI.  En að sjálfsögðu fæst engin niðurstaða, einfaldlega vegna þess að um leið og þetta er nefnt FARA ALLIR BEINUSTU LEIÐ OFAN Í SKOTGRAFIRNAR OG ÞÁ FER EKKI FRAM NEIN SKYNSAMLEG EÐA VITRÆN UMRÆÐA UM ÞESSI MÁL.  Enda hefur tekist á þessum áratugum, sem þessi mál hafa verið á döfinni, AÐ GERA ÞETTA EINFALDA MÁL ALVEG ÓTRÚLEGA FLÓKIÐ OG UM ÞETTA HEFUR ALDREI ORÐIÐ NEINN SÁTT OG VERÐUR EKKI HELDUR NÚNA.  Og svo er annað mál ég veit ekki til þess að það sé neitt verið að tala um auðlindagjöld og sameign þjóðarinnar á auðlindum nema í sambandi við fiskveiðiauðlindina?  Greiðir Landsvirkjun eitthvað fyrir virkjanirnar, greiðir ferðaþjónustan eitthvað fyrir notkun á landinu og fleira og fleira??????


mbl.is Hyggur á nýtt frumvarp um veiðigjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

ÞEIR  sem borga mest í kostnungasjóði fá fyrirgreiðslu- þ.kallast mafiustarfsemi á Italy..

 Það syna hin stórmerkilegu Vaðlaheiðargöng- fiskiflotinn og aðrir  sem hafa rettu samböndin-  og miklar fjárhæðir  hafa sinn mann á þingi.

 Heilbrigðiskerfið og Lögreglan auk annara virðast ekki borga nóg.

Erla Magna Alexandersdóttir, 6.9.2018 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband