RÉTT SEM HANN SEGIR EN HEFÐI MÁTT KOMA MEÐ EINHVERJAR LAUSNIR....

En þetta er alveg rétt hjá honum, þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru ekkert annað en "kattaþvottur" og aumt yfirklór, sem koma ekki til með að skila nokkrum sköpuðum hlut þegar til lengri tíma er litið, sem dæmi má nefna að það er ein af tillögunum að fella niður gistináttaskattinn, Halló það eru engir ferðamenn og þar af leiðandi er enginn gistináttaskattur til að fella niður og aðrar tillögur ríkisstjórnarinnar eru á svipuðum nótum.  ER ÞETTA EKKI KALLAÐ AÐ PISSA Í SKÓINN SINN?.  Á sérstökum tímum þarf að grípa til sérstakra aðgerða:

  • Setja þarf neyðarlög í landinu, sem taka gildi STRAX.
  • Byrjað verði á að kippa verðtryggingunni úr sambandi, þannig að almenningur verði ekki látinn greiða fyrir "sukkið" eins og gert var í HRUNINU.
  • Þessi neyðarlög fela meðal annars í sér að 45% launahækkunin sem Kjararáð færði þingmönnum, ráðherrum og æðstu embættismönnum þjóðarinnar, verði afturkölluð.
  • Tryggingagjaldið á atvinnurekstur verði aflagt fyrir alla starfsmenn yfir 50 ára aldur en verði 5% fyrir starfsmenn 20-30 ára, 3% fyrir starfsmenn 31-40 ára og síðan 1% fyrir starfsmenn 41-50 ára.  Þetta myndi auka vilja atvinnurekenda til að hafa reynslumeira fólk í vinnu og kannski myndi þessi aðgerð slá aðeins á þessa æskudýrkun sem er í gangi hér á landi.
  • Felldur yrði alfarið niður tekjuskattur á laun undir 550 þúsundum og eftir það færi tekjuskattur stighækkandi en aldrei meiri en 30%.
  • Allar nýráðningar í opinbera geiranum yrðu "frystar".

Sjálfsagt þykir mörgum þetta vera ansi "brattar" tillögur en á einhverju verður að byrja........


mbl.is Átakanlegt að fylgjast með forystuleysinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband