MEÐ ÖÐRUM ORÐUM: "ENGA SAMKEPPNI HÉR Á LANDI TAKK SÉRSTAKLEGA EKKI Í FLUGINU".........

En kannski áttar maðurinn sig ekki á því flugið er ekki eingöngu að keppa á innlendum markaði, þá er verið að keppa á alþjóðlegum markaði. Alls ekki er hægt að miða við árið 2020, sem er sérstakasta ár sögunnar hingað til.  Það er draumur flestra sem standa í rekstri að þurfa ekki að vera að fást við samkeppni af nokkru tagi og geta þá bara verið "einráðir" á markaðnum, þetta kallast EINOKUNARMARKAÐUR (Monopoly).  Nú hefur þessi maður verið það lengi forstjóri að hann er búinn að átta sig á þessu, enda er hann endurskoðandi og markaðsmálin eru ekki ofarlega hjá mönnum í hans atvinnugrein, en nú er hann aðeins farinn að ranka við sér en virðist ekki átta sig á því að til sé nokkuð sem heitir alþjóðlegur markaður og á þeim markaði er fyrirtækið sem hann rekur hvort sem honum líkar það betur eða verr.  Það er bara dapurlegt að lesa svona bull og menn eiga bara að sætta sig við þá stöðu sem þeir eru í og vinna samkvæmt því en ekki að vera að væla um hvernig hlutirnir "eiga" að vera að þeirra mati.....


mbl.is Óraunhæft að reka tvö flugfélög á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband