BREYTINGAR Á BLOGGI!!!!!!

Ég verð nú að viðurkenna að mér brá nokkuð í gærkvöldi, þegar ég ætlaði inn á "bloggið" mitt og komst ég hvorki lönd né strönd.  Ég hugsaði bara með mér að best væri bara að sofa á þessu.  En um morguninn hafði ekkert breyst og þá fór nú að fara aðeins um mig helsta áhyggjuefnið var að fyrir dyrum stóð liður, sem ég kalla "föstudagsgrín" og fór ég að hugsa hvernig í ósköpunum ég ætti að redda því.  Ég þurfti nú ekki að hugsa það lengi,m upp kom í hugann maður sem hefur í nokkur ár "kommenterað" á þennan lið hjá mér og sett inn vísur og fleira gamanmál og satt best að segja var ég farinn að bíða nokkuð spenntur eftir því hvað kæmi frá honum.  Þar af leiðandi hafði ég samband við hann og bað hann um að taka við þessum lið og tók hann vel í það, þessi maður heitir Sigurður I. B. Guðmundsson SJÁ HÉR og hvet ég menn til að fara inn á bloggið hans.  En svo undir kvöld í dag komst ég aftur inn á bloggið hjá mér en það breytir þessari ráðstöfun ekkert en ég kem til með að halda eitthvað áfram á blogginu.  Að lokum ÓSKA ÉG ÖLLUM GLEÐILEG SUMARS MEÐ ÞÖKKUM FYRIR VETURINN OG VONANDI GETA ALLIR FARIÐ AÐ "ANDA" LÉTTAR...............


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

takk fyrir thad Johann og somuleidis.

Sigurður Kristján Hjaltested, 23.4.2021 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband