ÓVÆNT VARÐ ÞESSI KAPPAKSTUR BARA MJÖG SPENNANDI........

Ástæða þess að ég hafði MJÖG litlar væntingar til þess að þessi kappakstur yrði hvorki "fugl eða fiskur", er fyrst og fremst sú að brautin er frekar einhæf og þar eru frekar fá tækifæri til framúraksturs án þess að DRS búnaðurinn sé notaður.  En raunin varð önnur, það að Max Verstappen ákvað að taka TVÖ þjónustuhlé í stað EINS, sem hafði verið gefið út sem "trend" í keppninni.  Þetta hleypti heldur betur spennu í keppnina.  Verstappen sem var á ráspól gerði mistök í ræsingunni sem urðu til þess að Hamilton, sem var í öðru sæti, komst framúr en þegar Verstappen tók sitt þjónustuhlé einum hring á undan Hamilton, ók hann það vel að  náði að komast fram fyrir Hamilton þegar Hamilton tók sitt þjónustuhlé þrátt fyrir að hléið hjá Hamilton hafi aðeins verið 2,3 sekúndur.  En þegar keppnin var um það bil hálfnuð hleypti Verstappen heldur betur spennu í keppnina með því að taka sitt ANNAÐ þjónustuhlé í keppninni.  Hann lét setja mýkri dekk undir bílinn, þjónustuhléið tókst mjög vel og hann kom út á brautina í fjórða sæti.  Hann fór fram úr hverjum bílnum á fætur öðrum og alveg í lok keppninnar náði hann að fara fram ú Hamilton og þar með vann hann keppnina.  Ekki eingöngu uppskar hann með þessu tiltæki sínu  25 stig fyrir sigurinn heldur fékk hann eitt aukastig fyrir að eiga hraðasta hringinn og þar að auki var hann kosinn ökumaður dagsins af áhorfendum Channel four, þannig að þetta var algjörlega hans dagur.......


mbl.is Max sá við Mercedes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband