KÖSTUÐU FRÁ SÉR UNNUM LEIK............

Það má segja að fyrri hálfleikurinn hafi verið allt að því fullkominn hjá strákunum okkar og ég verð nú að viðurkenna að ég var bara orðinn verulega bjartsýnn (segi svona næstum því að ég hafi þurft á rafsuðuhjálmi að halda.  En þegar um það bil 15 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik, var engu líkara en að strákunum okkar hafi þótt nóg komið, þeir fóru að misnota dauðafæri og kasta frá sér boltanum  og svo fóru þeir að taka mjög skrýtnar ákvarðanir og Ungverjarnir refsuðu trekk í trekk og til að bæta gráu ofan á svart þá fór Ungverski markmaðurinn að verja eins og berserkur.  Og síðustu mínúturnar voru þannig að glundroðinn hjá strákunum okkar var algjör og sjálfstraustið var alveg í molum og því fór sem fór og því miður gerði enginn neitt þegar á reyndi.  En það er óþarfi  að hengja haus því mótið er bara rétt að byrja.........


mbl.is Það hrundi allt sem gat hrunið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband