Eru kosningar til Alþingis framundan???

Miðað við stefnuræðu Forsætisráðherra, gæti manni dottið það í hug,  þar var lítið bitastætt nema það að honum var tíðrætt um mikil verkefni sem væru framundan.  Það eina sem hann sagði, sem ekki var kosningalykt af, var að nú væri "þenslan" á undanhaldi en hann skaut þessa "ekki kosningabombu" niður með því að segja að með góðri afkomu ríkissjóðs skapaðist svigrúm til skattalækkana.  Er manninum ekki sjálfrátt?  Hvernig er með heilbrigðiskerfið, félagsmálakerfið og samneysluna í heild sinni?  Hefur ekki skapast svigrúm til að gera þessa málaflokka þokkalega?  Um skattalækkanir er tómt mál að tala um án þess að til komi JAFNMIKILL SAMDRÁTTUR Í ÚTGJÖLDUM HINS OPINBERA Á MÓTI og ríkisstjórnin virðist ekki vera fær um að draga saman þensluna í rekstri ríkisins.
mbl.is Traust afkoma ríkissjóðs forsenda fyrir frekari skattalækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góð spurning Jóhann og einmitt í ætt við það sem mitt " pólítiska nef " hefur skynjað.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.10.2007 kl. 00:02

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Veistu þetta er nákvæmlega það sem ég hugsaði þegar hann talaði um þennan mikla tekjuafgang ríkisins.  Hvað með alla þá sem hallar undan fæti fyrir og geta ekki bjargað sér.  Hvað með þá sem eru að missa heimili sin vegna of hárra vaxta.  Og svo alla þá sem minna mega sín.  Maður verður bara reiður yfir svona yfirlýsingum.  Eru þessi menn gjörsamlega úr takti við þjóðarsálina?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.10.2007 kl. 09:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband