Menn þurfa ekki að vera hissa - skrítið að þetta skyldi ekki gerast fyrr...

Hagkerfið hér er orðið "funheitt", ríkisútgjöldin þenjast stjórnlaust út og það er ekki að sjá að "dýralæknirinn" hafi neina getu eða vilja til að draga úr þeim á neinn hátt, það er ekki að sjá að neitt lát sé á framkvæmdagleði "hins opinbera", útflutningsatvinnuvegum þjóðarinnar er að blæða út vegna vaxtaokurs og er Seðlabanki Íslands, með Davíð Oddsson í farabroddi, aðallega ábyrgur fyrir þeim gjörningi, viðskiptahallinn við útlönd eykst stöðugt, sem þýðir einfaldlega það að einkaneyslan er fjármögnuð með lántökum, þetta þýðir að hlutfall skulda af Lfr. eykst stöðugt.  Hélt ríkisstjórnin  virkilega að þetta gengið svona endalaust?
mbl.is Lánshæfishorfur ríkissjóðs versna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðærinu er lokið góðir hálsar !  Nú hrynja hlutabréfin og fasteignaverðið er þegar á niðurleið, nýbyggingasala stöðvast alveg fljótlega, stórlega mun draga úr innflutningi á bílum og bílaverð hríðlækkar rétt eins og fasteignaverð. Bankarnir hafa farið illa með landann í íbúðalánum og eru þegar byrjaðir að hækka vexti sem aldrei fyrr. Þjóðin hefur sukkað yfir sig og svo verður fólk hissa, eða hvað ?

Stefán (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 14:54

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll félagi!

Kiljan lætur Jón Marteinssn segja við nafna sin Hreggviðsson í"Íslandsklukkunni":"Nú fáum við okkur franskt brennivín og súpu því Ísland er sokkið hvort sem er""Nú er sennilega komið að"súpunni"Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 21.11.2007 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband