Grillað um helgina.

Þeir voru fljótir að veiða fyrstu hrefnuna, enda er mikið af henni og stútfull af þorski, sem HAFRÓ segir að sé ekki til.  Svo er næst að fara að veiða hnúfubakinn, sem hámar í sig loðnuna eins og honum sé borgað fyrir það, dæmi eru um að erfitt hafi reynst að kasta á loðnutorfur fyrir ágangi hnúfubaka og enn fleiri dæmi eru um það að hnúfubakar hafi þvælst í nætur skipa, stórskemmt þær og jafnvel eyðilagt.  Mér skilst að kjötið af þeim sé líka mjög gott á grillið.

Annars hugnast mér best tillaga bloggvinar míns, Hafsteins Viðars Ásgeirssonar, en hann lagði það til að  Íslendingar myndu fá Japani eða Kóreubúa, sem verktaka í hvalveiðar, það yrði í samningi sem gerður yrði við þá að þeir fengju að hirða "hræin" af öllum þeim hvölum sem þeir veiddu, þannig losnuðum við öll leiðindi varðandi sölu og -markaðsmál og myndum sjálfir eingöngu veiða fyrir innanlandsmarkað.


mbl.is Fyrsta hrefnan veidd á Faxafló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það virðist vera mikið af hval samkvæmt fréttum, svo menn þurfa ekki að hika þess vegna.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 21.5.2008 kl. 09:01

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann , þetta er gott innleg í hvala umræðuna og mér líst askoti vel á þessa tillögu Hafsteins Viðar bloggvinar okkar þett er góð hugmynd í fullri alvöru talað. 

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 21.5.2008 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband