Er þetta óvenjulegt????

.....Málið er að við höfum ekki orðið vitni að þessu áður, en þetta þarf ekki að vera óvenjulegt fyrir það en ef hvalaskoðunarmenn skyldu ekki hafa vitað það þá er þetta gangur náttúrunnar.  Háhyrningarnir fara ekki í stórmarkaðina og "kaupa" þar vaakumpakkað kjöt til neyslu. Shocking
mbl.is Hrefna barðist fyrir lífi sínu við hóp háhyrninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Billi bilaði

Það óvenjulega er eflaust að ná þessu á mynd.

En, ef hvalveiðimenn hefðu orðið vitni að þessu, hefðu þá ekki samtök ferðaþjónustunnar farið hamförum yfir því að þeir hefðu nú átt að hjálpa háhyrningunum og aflífa hrefnuna fljótt og vel svo að hún hefði ekki þurft að þjást?

Þarna var greinilega tekin sú afstaða að fylgjast vel með þjáningum dýrsins og lýsa því svo fjálglega.

Billi bilaði, 24.7.2008 kl. 08:33

2 identicon

Halló! Þetta er náttúran! Hvað heldur fólk að hvalir rækta fiska eins og við búfé og slátra þá svo "the nice way" til að borða???? Mér finnst líka að maður sem fer með ferðamenn að skoða "sæta" hvali ætti ekki að nota svona heimskulegt orð á borði við "drápshvalir" en verra er að gera þetta mennskt með því að segja að ungarnir "léku sér í blóði". Þetta gera bara menn!

Sigrún (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 10:19

3 identicon

Sigrún; "Drápshvalir" er þýðing á ensku nafngiftinni "Killer-Whale".  Einnig heita háhyrningar (sh. Háhyrna) á ensku "Orca", sem mér skilst að sé úr latínu "Orcinus orca".

Svo væri gaman að fá frekari upplýsingar hvar og þá hvernig menn "leika sér í blóði".

Uppreisnarseggurinn@gmail.com

Uppreisnarseggurinn@gmail.com (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 11:17

4 identicon

Þetta er ábyggilega daglegur atburður í hafinu. Það að við höfum ekki náð mynd af svona atburði fyrr undirstrikar bara enn og aftur hvað við Íslendingar vitum skammarlega lítið um hafið í kring um okkur.

Svo finnst mér óþolandi að kalla dýr grimm. Þessir háhyrningar voru einfaldlega að fá sé að éta.

Steinar K (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 12:23

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður sér að það Jóhann að þú hefur ítt við ýmsum,og lífríkið!!!Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 24.7.2008 kl. 17:10

6 identicon

Þetta hefur gerst áður þegar ég var á veiðum ekki langt frá við Eldey 1982 sá ég stóran hóp háhyrninga umkringja búrhval eða hrefnu var aldrei alveg viss. Man vel eftir því hvernig háhyningarnir héldu hvalum uppi við þar til þeir væntanlega drápu hann hægt og bítandi og átu. Það er og það var ekki tekin mynd af þessu það var engin myndavél um borð.

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 00:38

7 Smámynd: Ragna Þorsteinsdóttir

Úff, munurinn á búrhval og hrefnu er ansi mikill. Ég er viss um að meira að segja ég gæti þekkt búrhval frá hrefnu, þrátt fyrir að hvalurinn væri langt frá.

Nafnið ,,drápshvalur" (s.s. ,,Killer Whale") kemur til einmitt út af því að sjómenn til forna sáu hvalina drepa minni hvali eða seli. Fræðilega heitið er háhyrningur (e. Orca).

Hvalaskoðunarmenn segjast aldrei ætla að skoða ,,sæta" hvali. Ferðirnar eru engöngu til að njóta náttúrunnar og fygjast með hvölum í sínu náttúrulega umhverfi. 

Ragna Þorsteinsdóttir, 26.7.2008 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband